Morgunblaðið - 05.01.2018, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 05.01.2018, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 MORGUNBLAÐIÐ 27 sjálfsögðum hluta af náminu. Sem dæmi um þetta má nefna að á und- anförnum 2 árum hafa æ fleiri skólar tekið upp veflægar þjón- ustur Microsoft (Office 365). Við höfum þess vegna mörg tekið að nýta þjónustur sem eru hluti af því umhverfi í verkefnavinnu nemn- enda, þannig að þeir verði tilbúnir að nýta þann hugbúnað af þekk- ingu og leikni þegar þeir fara að vinna í skólum.“ Hver er þín skoðun á þeirri iðn- byltingu sem er í gangi núna? Ætli það sé ekki að bera í bakkafullan lækinn að fullyrða að fjórða iðnbyltingin muni breyta öllu... En það er varla til það svið mannlegrar tilveru sem er ekki að færast yfir á stafrænt form líka og í leiðinni mun það, hvernig við ger- um hluti og menningin í kringum einstaka svið tilverunnar breytast líka. Við virðumst standa á þeim stað í þróuninni þar sem við sjáum að þeir ótrúlegu hlutir sem staf- ræna tæknin er að gera mögulega, þróast hraðar en við höfum nokkru sinni séð áður og þeir eru mun flóknari en við náum að grípa. Þegar ég byrjaði að kenna á tölvur vorum við að kenna fólki að vinna á skjánum það sem það hafði áður gert á pappír. Það sem þú gerðir á skjánum kom eins út á pappírinn. Þú vannst með skjal og gast nýtt frábæra möguleika eins og „copy- paste“ eða að senda sama bréfið í pósti á marga viðtakendur með persónulegum skilaboðum til hvers og eins án auka vinnu. Síðan þá eru gögnin okkar vistuð á mörgum stöðum „í skýinu“, við þurfum ótal lykilorð til að vernda þau. Við skrifum mörg í sama skjalið sam- tímis, spjöllum í beinni skriflaga, munnlega eða í mynd á meðan við þróum hugmyndirnar og birtum þær svo á vefnum þannig að allir viðskiptavinir fá skilaboðin sam- stundis. Þannig gætum við lengi talið.“ Þurfa að læra ný samskiptamynstur Hver eru tækifærin að þínu mati og hindranirnar? „Tækifærin sem þessi þróun býður uppá eru gríðarleg. Þegar við venjumst því að tæknin breyti hlutum hratt og varanlega, bjóðast uppfinningasömu fólki ótrúleg tækifæri til að hasla sér völl og skapa ný tækifæri þar sem engin voru til áður. En vilji maður taka þátt, hvort sem það er með því að skapa nýtt eða að fylgja og bara halda velli, þá þurfa allir að verða færir um að læra nýjar leiðir í samskiptum og vinnu reglulega og viðstöðulaust. Allt bendir til þess að hraðinn á breytingunum aukist jafnt og þétt. Á undanförnum fimm árum hafa verslun og við- skipti í Kína breyst svo mikið að mánaðarlega versla að minnsta kosti 500 milljónir Kínverja á net- inu með símanum sínum. Þessi hluti atvinnulífsins er að verða óþekkjanlegur. Þannig að málið er ekki bara að læra að nota nýja tækni í merkingunni að vita hvað þú getur gert og hvar þú eigir að smella á skjánum, heldur þurfum við að læra ný vinnubrögð og ný samskiptamynstur. Samskipta- hæfnin sem dugðu verslunarfólki þegar viðskiptavinurinn gengur inn í búðina og spyr um nýjustu bókina eftir Arnald, er allt önnur en sú sem dugar í gegnum vef- miðlana. Þegar kennarar þurfa að hugsa um það hversu sýnilegir þeir eru á Facebook og Twitter, velta fyrir sér hvernig þeir svara spurningum nemenda sinna, eða hvernig þeir hvetja þá áfram og lesa á milli línanna í textaskilaboð- unum, þá þurfa þeir að læra ný samskiptamynstur. Fyrir okkur sem höfum annað hvort fengið að læra þessa hluti hægt og rólega undanfarin 20 ár eða jafnvel leyft okkur að læra þá ekki, þá gætum við fljótt lent í vandræðum. Fólk er ólíkt að því leyti hvernig það lærir. Sumir æða áfram, prófa sig áfram og hætta ekki fyrr en þeir geta. Þeir eru jafnvel tilbúnir að læra nýjar aðferðir í forritinu sem þeir nota, hálftíma áður en þeir skila lokaafurðinni. Meðan það stressar aðra að þurfa að læra eitthvað nýtt á sama tíma og þeir vinna og nota tæknina. Sumir stóla á að fá næði til að læra á nám- skeiði og aðrir fara jafnvel ekki á námskeið nema þeir séu hvattir til þess af yfirmönnum eða kollegum. Við þurfum að taka tillit til þessa og bjóða fólki upp á ólíkar leiðir til að læra, annars skiljum við hluta samstarfsmanna okkar eftir og þeir úreldast, ná ekki að fylgjast með og missa mikilvæg tækifæri.“ Virk í því að móta framtíðina Hvert er hlutverk almennings í þessari stafrænu byltingu að þínu mati? „Stafræn þróun í samtímanum mun hafa veruleg áhrif á allt okkar líf, samskipti, menningu og gild- ismat. Þess vegna hljótum við öll að þurfa að skilja þróunina það vel að við getum tekið afstöðu til hennar og tekið þátt í að móta hana. Tökum dæmi: Ef símar, sem allir eru með í vasanum, hafa því- líkt aðdráttarafl að fólk nær ekki að einbeita sér nægilega mikið við vinnuna til að það nái árangri við að leysa verkefni sín hvort sem það er í kennslustofu, á fundi eða undir stýri, þá hljótum við að þurfa að þróa venjur, viðhorf og menningu sem styður fólk til þess að umgangast tæknina þannig að hún hindri það ekki í að ná ár- angri. Við búum þessa venjur og menningu til saman í gegnum sam- töl og almennar umræður. Sömu- leiðis hljótum við, sem starfsmenn á vinnustað, eða þátttakendur í lýðræðislegu samfélagi að tala um og vinna að því að við nýtum upp- lýsingatæknina til góðs og látum ekki einhverja sjálfvirkni ráða för óháð því hvaða áhrif hún hefur á líf okkar og menningu. Sem borg- arar ber okkur að vera virk í því að móta framtíðina saman, hvert á sinn hátt. En það gerum við varla ef við hunsum það sem er að ger- ast og skiljum það ekki. Fjölmiðlar spila hér stórt hlutverk. Ljós- vakamiðlarnir sinna til dæmis list- um og menningu æði vel, gjarnan mættu þeir líka taka þennan hluta menningar okkar til fræðandi og gagnrýninnar umræðu reglulega.“ Ertu með námskeið eða vinnu- stofur þar sem farið er yfir þetta efni? „Endurmenntun Háskóla Ís- lands fékk mig einmitt til að hrinda af stað nýju námskeiði þar sem fólki verður boðið að taka frá rólegan eftirmiðdag vikulega í fjórar vikur til að kynna sér nýj- ungar í upplýsingatækni og læra að nýta af skynsemi þau verkfæri og þær þjónustur sem því býðst að nota í vinnunni í dag. Við mun- um skipuleggja námskeiðið þannig að fólk læri að skilja helstu kerfin og þjónusturnar og hvernig það getur nýtt sér þær til góðs í vinnunni. Þátttakendur munu þjálfast í því að fylgjast með og auka leikni sína og læra sjálft að viðhalda þekkingu sinni og færni. Markmiðið er að hjálpa þeim að verða sjálfstæðir í því að þróa sig áfram í notkun upplýsinga- tækninnar. Námskeiðið heitir Verkstæði í upplýsingatækni og það hefst í seinustu viku febrúar,“ segir Hróbjartur að lokum. elinros@mbl.is Nútíminn „Stafrænum verkfærum sem auðvelda allt samstarf fólks fjölgar stöðugt og þau verða mið- læg í hverju starfinu á fætur öðru, þannig að það ríður á fyrir alla að kunna að læra að nota slíkar þjónustur.“ E k i l l ö k u s k ó l i | G o ð a n e s i 8 - 1 0 | 6 0 3 A k u r e y r i | S í m i : 4 6 1 7 8 0 0 | G s m : 8 9 4 5 9 8 5 | w w w . e k i l l . i s ÖKUNÁM Á NETINU Netökuskólinn Ekill gefur þér færi á að stunda ökunám þegar þér hentar, þar sem þér hentar. Skráning á www.ekill.is SKÓLI Háskólinn áHólum Hagnýtt háskólanám • Ferðamálafræði • Stjórnun ferðaþjónustu og móttaka gesta • Viðburðastjórnun • Fiskeldisfræði • Reiðmennska og reiðkennsla Tækifærin eru í okkar greinum Hólaskóli - HáskólinnáHólum Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur Sími 455 6300 holaskoli@holar.is www.holar.is Þú finnur Hólaskóla bæði á Facebook og Twitter! Háskólasamfélagmeð langa sögu Hólar í Hjaltadal er í sennmikill sögustaður og útivistarparadís. Háskólinn á Hólum er lítill en öflugur háskóli sem sinnir kennslu og rannsóknum á sviði ört vaxandi atvinnugreina. w w w .h ol ar .is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.