Morgunblaðið - 12.01.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 12.01.2018, Qupperneq 8
UPPRIFJUN Ívar Benediktsson iben@mbl.is Afar tveggja leikmanna í EM- hópnum í handknattleik léku lands- leiki í handknattleik á sínum tíma. Annar þeirra lék einnig landsleiki í knattspyrnu og hinn var einnig lands- liðsþjálfari um skeið auk þess að vera formaður landsliðsnefndar HSÍ. Um er að ræða Framarann Rúnar Guðmannsson, móðurafa Rúnars Kárasonar stórskyttu hjá Hannover- Burgdorf og Fram, og FH-inginn Ágúst Birgi Björnsson afa Ágústs Elí Björgvinssonar, markvarðar FH, en Ágúst Elí er sonur Laufeyjar dóttur Ágúst Birgis eða Bigga Björns eins og hann var ævinlega kallaður. Móðir Rúnars Kárasonar er Rann- veig, dóttir Rúnars Guðmanns- sonar. Rúnar og Birgir voru valdir í lands- liðið í handknattleik vegna Norð- urlandaferðar 1959. Þeir náðu þó ekki að leika saman því Birgir meidd- ist skömmu fyrir ferðina og gat ekki leikið með liðinu. Hann fór engu að síður með í ferðina þar sem leiknir voru þrír leikir á sex dögum. Þar sem fjárhagur HSÍ var svo bágur á þeim tíma að ekki var mögulegt að hafa með aukamann var brugðið á það ráð að efna til söfnunar til þess að gera Birgi kleift að farið með. Settir voru upp söfnunarbaukar í Bókabúð Lár- usar Blöndal í Vesturveri, í Morg- unblaðshúsinu og í bókabúð Olivers Steins í Hafnarfirði. Ólafur Thors for- sætisráðherra setti fyrstur í baukinn í Vesturveri, 500 kr., en alls söfnuðust liðlega 3.400 kr. Svo fór að Flugfélag Íslands bauð Birgi flugfarið fram og til baka frá Ósló. Þaðan ferðaðist landsliðið með lest til Slagelse í Dan- mörku og til Borås í Svíþjóð þar sem síðasta viðureignin var háð og á ný til Óslóar. Rúnar lék tvo af leikjunum þremur og voru það hans einu landsleikir í handbolta. Rúnar var einnig öflugur knattspyrnumaður og lék sex lands- leiki í knattspyrnu á árunum 1958 til 1961 áður er hann lagði skóna á hill- una eftir hnéaðgerð 1961, eftir að hafa meiðst í leik við skoska liðið Dundee um sumarið. Þórólfur Beck, leikmaður KR, St. Mirren og Glasgow Rangers, sagði í viðtali við Sigmund Ó. Steinarsson blaðamann árið 1985: „Ég hef leikið gegn mörgum snjöllum leikmönnum. Erfiðasti leikmaðurinn sem ég hef leikið gegn var Rúnar Guðmannsson, sem var snöggur og sprettharður. Þá var hann með mjög góðar staðsetn- ingar og snjall í loftinu. Það voru ekki margir sem unnu skallaeinvígi gegn honum.“ Birgir lék 29 landsleiki af þeim 35 sem íslenska landsliðið lék frá 1958 til 1966 og var þátttakandi í á HM 1958, 1961 og 1964. Birgir var landsliðs- þjálfari 1967 til 1968, aftur 1974 til 1975 og frá 1977 til 1978. Birgir stýrði íslenska landsliðinu og bar hit- ann og þungann af undirbúningi þess á HM 1978 eftir að Pólverjinn Janus Czerwinsky fékkst ekki til starfans eins og til stóð. Ágúst Elí, sem er 22 ára gamall, tekur nú þátt í sínu fyrsta stórmóti með íslenska landsliðinu en hann á að baki sjö landsleiki, þann fyrsta í El- verum í Noregi 8. júní á síðasta ári. Þess má geta að Birgir afi hans lék sinn fyrsta landsleik gegn Tékkum í Magdeburg á HM í Austur-Þýska- landi 27. febrúar 1958. Rúnar Kárason, er 29 ára gamall, og er öllu reyndari með landsliðinu Afi Rúnar Guðmannsson lék með ís- lenska landsliðinu árið 1959. EM í handbolta karla 2018 METHAFI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Fyrir mér er það ekkert sérstakt að mæta á Evrópumót í Króatíu á nýj- an leik 18 árum eftir að ég tók þar þátt í mínu fyrsta stórmóti. Ég hef áður tekið í þátt í tveimur stórmótum í Sví- þjóð með nokkurra ára millibili auk þess sem ég hef margoft tekið þátt í leikjum með landsliðinu og fé- lagsliðum í Króatíu á undangengnum 18 árum,“ segir Guðjón Valur Sigurðs- son, fyrirliði íslenska landsliðsins, en hann tekur nú þátt í sínu 21. stórmóti með landsliðinu, EM 2018 í Króatíu. Fyrsta stórmót Guðjóns Vals var EM í Króatíu árið 2000. Hans fyrsti leikur í mótinu var 23. janúar gegn Rússum og fjórum dögum síðar skor- aði hann sitt fyrsta EM-mark í leik við Slóvena. Reyndar urðu mörkin fimm í þeirri viðureign auk tveggja í lokaleik Íslands í mótinu og eins sigurleiknum, á Úkraínu, 26:25, í Rijeka 29. janúar. Guðjón Valur er langmarka- og leikja- hæsti landsliðsmaður Íslands á EM og sennilega einn leikja- og markahæsti handknattleiksmaður í sögu Evr- ópumótanna. „Mótin hafa verið misjöfn og árang- urinn verið upp og ofan. Engu að síður hef ég alltaf mætt til leiks með sömu tilhlökkun yfir að taka þátt, mæta á staðinn og sjá hvaða vinna hefur verið lögð í gera mótið sem best úr garði,“ segir Guðjón Valur og bætir við að hann hafi aldrei litið á það sem sjálfsagðan hlut vera hluti af íslenska landsliðinu á stórmóti. „Þess vegna hækkar aðeins blóðþrýstingurinn hjá mér þegar menn segja við mig að fram- undan sé enn eitt stór- mótið hjá mér. Það er hvorki sjálfsagð- ur hlutur að fá að klæðast lands- liðsbúningnum né að taka þátt í stór- móti. Ég nýt þess í botn í hvert skipti sem ég er valinn til þess að leika fyrir íslenska landsliðið og ég ætla að gera það einnig að þessu sinni.“ Umgjörðin batnað í kringum ÓL Guðjón Valur segir að margt hafi breyst í kringum lands- liðið á þeim nærri 20 árum síðan hann var valinn í fyrsta sinn. Um- gjörðin hafi eflst stiga af stigi en á upphafsárunum með landsliðið var HSÍ enn að rétta úr kútnum fjárhags- lega eftir að heimsmeist- aramótið sem haldið var hér á landi 1995. „Starfið hefur gengið í hæðum og lægðum á þessu tíma. Umgjörðin hefur alltaf styrkst í kringum þátttöku okkar á Ólympíuleikum. Kannski er erfitt að fullyrða um þetta vegna þess að á þess- um tíma hefur nokkrum sinnum verið skipt um þjálfara og annað starfsfólk. Með nýju fólki verða alltaf breytingar. Síðan var hrun- ið sem hafði heldur betur áhrif á íþróttalífið á Íslandi og sennilega fengið flest ef ekki öll sérsambönd ÍSÍ að finna fyrir því. Vissulega hefur margt mátt bet- ur fara í kringum landsliðið á þeim árum sem ég hef verið hluti af því. Hinsvegar verður að hafa það í huga að HSÍ rekur mörg landslið og báð- um kynjum þar sem sami metnaður hefur verið lagður í þau öll. Þegar ég tók þátt í mótum og keppni með yngri Ferill Guðjóns Vals EM HM ÓL Ár Leikir Mörk Leikir Mörk Leikir Mörk 2000 4 7 2001 6 15 2002 8 21 2003 9 39 2004 3 15 6 32 2005 5 31 2006 6 38 2007 10 66 2008 6 34 8 43 2009 2010 8 39 2011 9 47 2012 6 41 6 44 2013 6 41 2014 7 44 2015 6 31 2016 3 17 2017 6 24 Alls 51 256 57 294 20 119 Samtals 128 leikir 669 mörk  Guðjón Valur Sigurðsson tekur þátt í sínu 21. stórmóti með íslenska landsliðinu  Segir að alltaf sé sami fiðringurinn fyrir hvert stórmót Ekkert sjálfsagt að klæðast landsliðs- búningnum 8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 Afar tveggja EM- leikmanna voru landsliðskempur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.