Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 10
B-RIÐILL Kristján Jónsson kris@mbl.is Eins og stundum áður eiga Íslend- ingar fleiri fulltrúa á stórmóti í handbolta en þá sem mæta fyrir Ís- lands hönd. Að þessu sinni eru það Kristján Andrésson, þjálfari Svía, og Patrekur Jóhannesson, þjálfari Austurríkismanna. Morgunblaðið ræddi við Patrek um væntingar hans og Austurríkismanna sem leika í B- riðlinum í Porec. Andstæðingar þeirra verða Frakkar, Norðmenn og Hvít-Rússar og Ísland mun mæta þremur liðum úr B-riðlinum í milli- riðli, nái íslenska liðið að komast áfram úr A-riðli. „Austurríki var á stórmóti 2014 og 2015. Í umspili fyrir HM 2017 var ég með eldra lið og við drógumst á móti Gumma (Guðmundi Guðmundssyni) og Dönum sem unnu sannfærandi. Undankeppnin fyrir EM var fyrsta undankeppnin með þetta lið sem er yngra og margir með takmarkaða reynslu af landsliðsverkefnum. Þar af leiðandi var nokkuð óvænt en skemmtilegt að við skyldum komast á EM í Króatíu vegna þess að okkar vinna snýst svolítið um að vera með gott lið árið 2020. Ég er til dæmis með ellefu leikmenn sem ekki hafa farið áður á stórmót. Þetta er því óreynt lið miðað við það sem ég var með. Fyrir okkur var gott að komast á EM en auðvitað verður okkar markmið að komast áfram í millirið- ilinn. Ekki spurning,“ sagði Patrek- ur á fullu í undirbúningi liðsins. Ellefu á fyrsta stórmóti Efstu þrjú liðin úr B-riðli Austur- ríkis mæta efstu þremur liðunum úr A-riðli Íslands í milliriðli í Zagreb. „Það væri draumur að hitta Íslend- ingana, vini mína, í Zagreb. Að kom- ast þangað er örugglega markmið hjá báðum og það tekst. Við verðum að hugsa þannig.“ Varðandi möguleika Austurríkis á að komast upp úr riðlinum má fyr- irfram búast við því að fyrsti leikur liðsins við Hvít-Rússa gæti ráðið úr- slitum í þeim efnum. Sérstaklega ef mið er tekið af því að Noregur fór alla leið í úrslitaleikinn á HM í fyrra. Hvíta-Rússland hafnaði þó í 1.-2. sæti í sínum undanriðli ásamt Serb- um. Mætir sínum gamla þjálfara „Ég myndi halda að leikurinn gegn Hvít-Rússum væri 50-50- leikur. Þeir voru þó í öðrum styrkleikaflokki, fyrir ofan Norð- menn, og við í fjórða styrkleika- flokki. En eins og við þekkjum getur allt gerst í íþróttum. Hvít-Rússar eru vissulega sterkir eins og Íslend- ingar fengu að kynnast á EM 2016. Þeir eru auk þess með frábæran þjálfara, Júrí Shevtsov, sem þjálfaði mig hjá Essen á sínum tíma. Hann er góður maður og mikill vinur minn. Hvít-Rússarnir eru hættulegir en við stefnum á að vinna þann leik. Maður veit hins vegar aldrei hvað verður þegar ellefu menn eru að fara á sitt fyrsta stórmót. Fyrsta mótið er alltaf svolítið sérstakt en við erum vel stemmdir,“ sagði Patrekur, sem getur miðlað af reynslu sinni enda lék hann á öllum þremur stórmótum landsliða fyrir Íslands hönd. Fá góðan stuðning Staðsetning mótsins verður að teljast hentug fyrir handboltaþyrsta Austurríkismenn og Patrekur á von á að fá ágætan stuðning af áhorf- endapöllunum. „Já ég á von á því. Frá því við tryggðum okkur inn á EM hefur handknattleikssambandið auglýst þetta mjög mikið. Mér skilst að um fimm hundruð manns keyri þangað niður eftir, sem mér skilst að taki um fimm tíma frá Vín. Við eig- um því von á stórum hópi stuðnings- manna, sem er afskaplega jákvætt.“ Frakkar áfram á toppnum Einhverjir þurfa að lenda með Frökkum í riðli og í þetta skiptið kemur það meðal annars í hlut Pat- reks. Frakkar hafa verið geysilega sigursælir í rúman áratug en nú hafa nokkrir af þeirra þekktustu leik- mönnum dregið sig í hlé með lands- liðinu. Spurður hvort Frakkarnir séu fyrir vikið veikari en áður segist Patrekur ekki eiga von á því. „Ég held að skipulagið hjá Frökk- um sé áþekkt því sem Þórir Her- geirsson er að gera með norska kvennalandsliðið. Mér finnst skipu- lagið svo flott hjá þeim. Þeir eru með ákveðna línu í gegnum allt og maður tekur varla eftir því þegar nýir leik- menn koma inn. Frakkar hafa tekið leikmenn inn í liðið og stillt þeim upp með gömlu hetjunum. Maður sér regulega menn hjá þeim sem maður veit varla hvað heita en eru ógeðs- lega góðir í handbolta. Mín tilfinning er sú að vinnubrögðin séu svipuð hjá Frökkunum og norska kvennalands- liðinu. Liðin eru skipulega sett sam- an og ekki horft einungis á næstu keppni. Ég held að það sé kúnstin í þessu. Frakkarnir verða örugglega áfram á toppnum eða við toppinn á næstu árum,“ sagði Patrekur Jó- hannesson í samtali við Morgun- blaðið. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Austurríki Patrekur Jóhannesson og hans menn í austurríska liðinu mæta Hvíta-Rússlandi í fyrsta leik sínum í dag. Óvænt en skemmtilegt að komast á EM  Patrekur Jóhannesson mætir með ungt lið Austurríkis sem var með EM 2020 í sigtinu  Dreymir um að mæta Íslendingum í milliriðlinum í Zagreb EM í handbolta karla 2018 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 10 B-RIÐILL Ívar Benediktsson iben@mbl.is Margfaldir Evrópumeistarar Frakka hafa gefið það út að þeir ætli sér að endurheimta Evrópumeistarabikarinn úr hönd- um Þjóðverja að þessu sinni. Til þess verða þeir helst að fara með fullt hús stiga úr B-riðli keppninnar þar sem auk þeirra eru Norðmenn, Hvít-Rússar og lærisveinar Patreks Jóhannessonar í austurríska lands- liðinu. Frakkar eru ríkjandi heims- meistarar. Þeir lögðu Norðmenn í úrslitaleik í París fyrir svo gott sem ári. Franska liðið er hinsvegar þekkt fyrir að fara á tíðum rólega af stað á stórmótum en vaxa ás- megin þegar á líður. Skemmst er að minnast EM í Danmörku fyrir fjórum árum þegar Frakkar tefldu ekki fram sínu besta liði í riðla- keppninni þar sem markvörðurinn Thierry Omeyer kom ekki til skjal- anna fyrir en í milliriðlakeppninni. Baráttan um efsta sætið mun standa á milli Frakka og Norð- manna. Spurningin er sú hvort norska landsliðið nái að fylgja eftir velgengni sinni frá síðustu tveimur stórmótum þar sem það hefur leik- ið til verðlauna. Pressan og vænt- ingarnar eru meiri nú en nokkru sinni áður. Keppnin um þriðja sæti mun væntanlega ráðast strax í fyrstu umferð þegar Austurríkismenn og Hvít-Rússar leiða saman hesta sína. Taplið þeirrar viðureignar mun sennilega pakka saman og halda heim á leið að morgni 17. jan- úar. Fara Frakkar rólega af stað?  Kröfur gerðar til Norðmanna eftir velgengni á tveimur síðustu stórmótum AFP Frakkar Nikola Karabatic er að vanda í lykilhlutverki. Ísland hefur einu sinni átt marka- hæsta leikmann Evrópumótsins. Það var árið 2002 í Svíþjóð en þá varð Ólafur Stefánsson markahæst- ur í keppninni með 58 mörk, einu meira en Stefan Lövgren sem gerði 57 mörk fyrir Svía. Aðeins einu sinni í sögu keppninnar hefur markahæsti maður skorað fleiri mörk en það. Kiril Lazarov, örv- henta stórskyttan, skoraði 61 mark fyrir Makedóníu í lokakeppni EM 2012. Spánverjar hafa átt marka- kónginn á tveimur síðustu mótum. Joan Canellas var markahæstur ár- ið 2014 með 50 mörk og árið 2016 var það Valero Rivera sem skoraði flest mörk, 48. vs@mbl.is Ólafur marka- hæstur í Svíþjóð 2002 Morgunblaðið/Brynjar Gauti 2002 Ólafur Stefánsson með verð- launin sem markakóngur. Ísland leikur á sínu 10. Evrópumóti í röð en eftir að íslenska liðið komst í fyrsta skipti í lokakeppnina árið 2000, sem einmitt var haldin í Króat- íu, hefur það ávallt verið á meðal þátttökuliða. Ísland komst ekki á fyrstu þrjú mótin, 1994, 1996 og 1998. Króatía, Spánn og Frakkland eru þær þrjár þjóðir sem hafa verið með á öllum tólf mótunum og eru því að hefja sitt 13. Evrópumót. Þýskaland, Svíþjóð og Danmörk eru öll á sínu 12. móti. Þjóðverjar sátu heima árið 2014, Svíar árið 2006 og Danir 1998. Ungverjar og Slóvenar eru í loka- keppninni í 11. skipti. Ungverjar misstu af mótinu 2000 og 2002 en Slóvenar misstu af því 1998 og 2014. Tékkar eru með í 9. skipti, Norð- menn í áttunda, Serbar, Hvít-Rússar og Makedóníumenn eru með í fimmta sinn, Svartfellingar í fjórða sinn og Austurríkismenn, undir stjórn Patreks Jóhannessonar, eru með á EM í þriðja skipti. vs@mbl.is Tíunda Evrópu- mót Íslands í röð Tveir leikmenn íslenska landsliðsins á EM í Króatíu hafa ekki áður tekið þátt í stórmóti A-landsliða í hand- knattleik. Það eru markvörðurinn úr FH, Ágúst Elí Björgvinsson, og Valsmaðurinn Ýmir Örn Gíslason. Báðir léku þeir sína fyrstu A- landsleiki á síðasta ári. Fjórir til viðbótar taka þátt í EM í fyrsta sinn, Arnar Freyr Arnarsson, Bjarki Már Elísson, Janus Daði Smárason og Ómar Ingi Magnússon. Fjórmenningarnir voru hinsvegar með á HM í Frakklandi og fara nú á stórmót A-landsliða í annað sinn, að minsta kosti sem leikmenn. Fram til þessa hefur íslenska landsliðið leikið 53 leiki í lokakeppni EM. Fyrsti leikurinn var við Svía í Rijeka í Króatíu 21. janúar 2000. Frá þeim tíma hafa 58 leikmenn tekið þátt í leikjunum. EM-leikmennirnir verða þar með orðnir 64 þegar að EM í Króatíu verður lokið. iben@mbl.is Sex verða í fyrsta sinn með á EM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.