Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 13
Keppnishöllin Spaladium Arena í Split þar sem Ísland leikur gegn Svíþjóð, Króatíu og Serbíu á næstu dögum. Flautað er til leiks 17.15 í dag.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018
13
Höllin sem leikirnir í A-riðli verða
spilaðir í er glæsileg. Hún ber
nafnið Spaladium og er fjölnota
íþróttahöll sem uppfyllir allar kröf-
ur og viðmiðunarstaðla alþjóðaól-
ympíunefndarinnar um slík mann-
virki. Körfuboltaliðið KK Split
leikur heimaleiki sína í höllinni en
það hét áður Jugoplastika Split.
Höllin tekur 12 þúsund manns í
sæti og má gera ráð fyrir því að
hvert sæti verði skipað á fyrsta
keppnisdegi þegar gestgjafarnir
taka á móti grönnum sínum frá
Serbíu. Spaladium var tekin í notk-
un fyrir HM karla í handknattleik
sem fram fór í Króatíu árið 2009
og var þá einn riðillinn spilaður í
Split. Ef handboltaunnendur eru
að spóla til baka í huganum um
hvernig Íslandi vegnaði í þeirri
keppni þá var lokakeppni HM 2009
ein fárra keppna sem Ísland missti
af á þessari öld.
Spaladium er glæsilegt mannvirki
Íslenskir handknattleiksdómarar
verða fjarri góðu gamni þegar
kollegar þeirra flauta til leiks á
EM í Króatíu. Það verður reyndar
ekki í fyrsta sinn því íslenskir
dómarar voru síðast í eldlínunni í
lokakeppni EM fyrir sex árum
þegar Serbar voru gestgjafar. Þá
dæmdu Anton Gylfi Pálsson og
Hlynur Leifsson þrjá leiki í keppn-
inni áður en veikindi þess síð-
arnefnda bundu enda á þátttöku
þeirra í mótinu áður en úr-
slitahelgin gekk í garð.
Stefán Arnaldsson og Gunnar
Viðarsson dæmdu á EM karla
2006 og Stefán dæmdi ásamt
Rögnvald Erlingssyni í lokakeppni
EM karla fyrir 20 árum.
Tólf dómarapör dæma á EM og
koma frá Hvíta-Rússlandi, Króat-
íu, Tékklandi, Danmörku, Frakk-
landi, Þýskalandi, Litháen, Make-
dóníu, Portúgal, Rúmeníu, Spáni
og Rússlandi. iben@mbl.is
Íslendingar
dæma ekki
í Króatíu
SPLIT
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Borgin Split verður vettvangur A-
riðils okkar Íslendinga á EM. Borg-
in er sú næststærsta í Króatíu og
vinsæll ferðamannastaður en hún
liggur að Adríahafinu. Á svæðinu
búa tæplega 300 þúsund manns eða
nokkuð svipað og á Íslandi.
Viðeigandi er að riðill á stórmóti
sé spilaður í borginni því þar er
geysilega mikill íþróttaáhugi og afar
fjölbreytt íþróttalíf. Sjálfir eiga íbú-
arnir það til að kalla Split mestu
íþróttaborg heimsins. Stærsti
íþróttaviðburðurinn sem fram hefur
farið í borginni er EM í frjálsum árið
1990.
Frægasti handboltamaður Króat-
íu, í það minnsta eftir að Júgóslavía
liðaðist í sundur, Ivano Balic er
fæddur í Split. Hann var í lykilhlut-
verki þegar Króatía varð ólympíu-
meistari 2004 og heimsmeistari
2003. Balic var valinn besti leikmað-
urinn á fimm stórmótum landsliða í
röð frá 2004-2007.
Vinsælasta knattspyrnulið Króat-
íu, Hadjuk Split, er í borginni og víð-
frægt er hversu mikinn stuðning lið-
ið fær. Stuðningsmannafélög liðsins
má til dæmis finna í Þýskalandi, Ír-
landi, Ástralíu og Bandaríkjunum.
Treyja númer 12 verður ekki notuð
framar hjá Hadjuk til heiðurs stuðn-
ingsmönnum liðsins, með vísan í að
stuðningsmenn geti verið tólfti mað-
urinn á vellinum. Kunnir knatt-
spyrnumenn eins og Slaven Bilic,
Igor Tudor og Stipe Pletikosa eru
frá Split. Stjörnur úr bronsliðið Kró-
atíu á HM 1998 léku með Hadjuk um
tíma: Robert Jarni, Alen Boksic og
Igor Stimac.
Ivanovic og Vlasic
Íþróttastjörnur sem skarað hafa
fram úr í ýmsum greinum hafa haft
búsetu í borginni og þar má nefna
tenniskappann Goran Ivanovic sem
sigraði á Wimbledon 2001 og há-
stökkvarann Blönku Vlasic sem
bæði varð heims- og Evrópumeist-
ari. Auk þess státar Split af ólympíu-
meisturum í ýmsum greinum eins og
sundi, sundknattleik og róðri.
Íþróttalífið er borginni er sérlega
fjölskrúðugt en þar dafna einnig
ágætlega greinar eins og rugby og
hafnabolti.
Körfuboltalið borgarinnar KK
Split var besta lið Evrópu undir lok
þess tíma sem Júgóslavía var til.
Liðið varð Evrópumeistari þrjú ár í
röð. Lykilmenn í liðinu, sem og
landsliðinu sem varð heims- og Evr-
ópumeistari, þeir Toni Kukoc og
Dino Radja, eru frá Split. Báðir léku
þeir síðar í NBA.
Blómlegt íþróttalíf í Split
Heimaborg Ivano Balic Hajduk Split er vinsælasta knattspyrnulið Króatíu
Króatískar stjörnur í ýmsum íþróttagreinum koma frá borginni við Adríahafið
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þau þrjú lið sem komast áfram úr
A-riðlinum í Split halda þaðan til
höfuðborgarinnar Zagreb miðviku-
daginn 17. janúar til að spila þar í
milliriðli keppninnar ásamt þremur
efstu liðum B-riðilsins. Íslenska
landsliðið fer því annaðhvort til
höfuðborgarinnar eða heim á leið.
Frá Split í suðurhluta landsins og
norður til Zagreb er rúmlega 400
kílómetra vegalengd eftir þjóðvegi
E71 og um 4-5 klukkutíma akstur.
Bein loftlína milli borganna er 259
kílómetrar.
Zagreb er stærsta borg Króatíu
en þar búa rúmlega 800 þúsund
manns. Þar er leikið í Arena Zag-
reb, tíu ára gamalli höll sem var
tekin í notkun í árslok 2008 og er
heimavöllur handknattleiksliðsins
RK Zagreb og íshokkíliðsins Med-
vescak Zagreb.
Stórviðburðir í Arena Zagreb
Arena Zagreb rúmar rúmlega 15
þúsund manns á handboltaleikjum
og í henni splunkunýrri fóru fram
fjölmargir leikir á heimsmeistara-
mótinu árið 2009, meðal annars úr-
slitaleikurinn þar sem Frakkar
lögðu Króata að velli. Þar hafa líka
verið fjölmargir aðrir stórir við-
burðir. Úrslitaleikur Króatíu og
Spánar í Davis-bikarnum í tennis
var háður í höllinni í nóvember
2016. Þar hélt rokksveitin gam-
alkunna Deep Purple tónleika síð-
asta vor og áður hafa þar komið
fram stjörnur á borð við Justin Bie-
ber, Depeche Mode, Sting, Tom
Jones, Plácido Domingo, Britney
Spears, George Michael, Roger Wa-
ters, Shakiru, Lady Gaga, Leonard
Cohen, Rammstein og Beyoncé, svo
einhverjar séu tíndar til.
Porec og Varazdin
Keppni í B-riðli fer fram í Porec,
litlum bæ við Adríahafið í norðvest-
urhluta Króatíu, skammt frá landa-
mærunum við Slóveníu. Þar búa að-
eins 17 þúsund manns. Höllin
Zatika Sport Centre er 10 ára göm-
ul og rúmar 3.700 áhorfendur.
D-riðillinn er leikinn í Varazdin,
tæplega 50 þúsund manna borg sem
er 80 kílómetra norður af Zagreb.
Þar er leikið í Varazdin Arena, sem
var einn af keppnisstöðunum á HM
2009, en höllin rúmar um 5.200
áhorfendur. Milliriðill tvö, með sex
liðum úr C- og D-riðlum, er einnig
leikinn í Varazdin.
Til höfuðborgarinnar eða heim
Aðalhöllin Milliriðill 1 og úrslitaleikir EM fara fram í Arena Zagreb.
Tíunda sinn í röð tekur ís-
lenska landsliðið þátt í EM karla í
handknattleik. Mörgum þykir
þátttakan vera sjálfsagð en hún
er það ekki. Íslenska landsliðið
tók ekki þátt í þremur fyrstu Evr-
ópumótunum, 1994, 1996 og
1998. Loks vannst sæti í loka-
keppninni sem fram fór í árs-
byrjun 2000, eftir að stiginn var
krappur dans í leikjum við Sviss.
Raunar voru forráðamenn HSÍ
og landsliðsþjálfarinn ekki betur
upplýstir um reglurnar sem giltu
að þeir voru ekki vissir í leikslok í
Kaplakrika vorið 1999, eftir síðari
leikinn við Sviss hvort Ísland væri
komið inn á EM eða ekki. Þáver-
andi framkvæmdastjóri HSÍ bað
þjóðina afsökunar á að hafa ekki
aflað sér gleggri upplýsinga fyrir
leikinn mikilvæga.
Eftir níu marka tap í Aarau,
29:20, þá sneri íslenska landsliðið
við blaðinu í síðari leiknum og
vann með níu marka mun, 32:23.
Julian Duranona skoraði síðasta
mark Íslands með þrumufleyg af
13 metra færi þegar þrjár sek-
úndur voru eftir af leiktímanum.
Marki sem fáir fögnuðu fyrr en
löngu síðar þegar í ljós kom að
stórsigrar íslenska liðsins á Kýp-
ur, sem var þriðja liðið í riðli und-
ankeppninnar, riðu baggamuninn.
Til að kóróna vitleysuna í leiks-
lok var landsliðsmönnum Íslands
meinað að tala við blaðamenn
Morgunblaðsins vegna óánægju
með gagnrýni sem landsliðið og
landsliðsþjálfari fékk á síðum
blaðsins eftir fyrri viðureignina í
Aarau. Sem betur fer höfðu
nokkrir leikmenn bein í nefinu til
að virða bannið að vettugi.
Með fyrrgreindum leik við
Sviss í Kaplakrika lauk landsliðs-
ferli Geirs Sveinssonar, þá fyr-
irliða til margra ára. Geir er á ný
kominn í landshópinn. Að þessu
sinni sem landsliðsþjálfari þar
sem hann stýrir lítt öfundsverðu
hlutverki að leiða kynslóðaskipti í
landsliðinu á sama tíma og krafa
er gerð um árangur.
Mikið vatnhefur runnið til
sjávar frá leiknum við Sviss í
Kaplakrika. Forsvarsmenn HSÍ og
leikmenn landsliðsins á síðustu
árum hafa sem betur fer verið
betur búnir undir hvað bíður
þeirra en þeir voru þessa vordaga
síðla í maí fyrir nærri 19 árum.
BAKVÖRÐUR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is