Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 14
EM í handbolta karla 2018 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 14 UPPRIFJUN Kristján Jónsson kris@mbl.is Í hefðbundinni upprifjun á hand- boltasögunni í EM-blaði Morgun- blaðsins eru að þessu sinni rifjaðir upp þrír sætir sigrar hjá Íslandi í lokakeppni Evrópumóts karla í gegn- um tíðina. Sigurleikirnir sem urðu fyrir valinu komu gegn Þjóðverjum, Dönum og Norðmönnum á tólf ára tímabili, frá 2002 til 2014. Ísland vann Þýskaland í fyrsta skipti á stórmóti í handbolta, eftir að Þýskaland sameinaðist á ný, á EM í Svíþjóð árið 2002. Liðin mættust þá í síðasta leiknum í milliriðlinum og voru bæði taplaus í mótinu þegar að leiknum kom. Liðin áttust við í Västerås og voru Þjóðverjar öruggir um sæti í undan- úrslitum keppninnar enda með af- skaplega vel mannað lið á þessum ár- um. Íslendingar þurftu að ná stigi út úr leiknum en tækist það ekki gátu stórþjóðirnar Frakkland og Spánn blandað sér í slaginn um lausa sætið í undanúrslitum. Flækti það aðeins stöðu íslenska liðsins að hafa gert jafntefli gegn bæði Spánverjum og Frökkum. Með sannfærandi sigri, 29:24, tryggði Ísland sér hins vegar efsta sæti milliriðilsins og var þá taplaust eftir sex leiki í riðlinum og milliriðl- inum. Tveir sigrar gáfu sjálfstraust Ekki var mikið svigrúm fyrir liðin til að koma hvort öðru á óvart. Fyrir utan að hafa spilað fimm leiki hvort í mótinu mættust Ísland og Þýskaland tvívegis á Íslandi í vináttu- landsleikjum í aðdraganda keppn- innar. Ísland vann þá báða 28:24 og fóru landsliðsmennirnir með gott sjálfstraust til Svíþjóðar. Á EM mun- aði því litlu að nákvæmlega sömu úr- slitin yrðu þrjá leiki í röð. Ísland byrjaði vel í leiknum og náði frumkvæðinu. Fór liðið með gott fjögurra marka forskot, 15:11, til búningsherbergja að loknum fyrri hálfleiknum. Íslenska liðið spilaði hratt í mótinu og keyrði fram þegar færi gafst. Ólafur Stefánsson og Pat- rekur Jóhannesson voru báðir af- skaplega snjallir í því að koma með boltann fram í hröðum sóknum. Þeg- ar vörnin hélt í mótinu skoraði liðið oft úr hraðaupphlaupum eða úr ann- arri bylgju. Átti íslenska liðið marga leikkafla í mótinu þar sem það valtaði yfir andstæðingana. Má ef til vill segja að á EM 2002 hafi íslenska landsliðið í fyrsta skipti spilað þann hraða leik sem einkennir handbolt- ann í dag. Um fimm ár voru liðin frá því að leyft var að taka „hraða miðju“ í íþróttinni. Guðmundur Guðmunds- son stýrði liðinu og Einar Þorvarð- arson var honum til aðstoðar. Komnir níu mörkum yfir Þjóðverjum tókst ekki að saxa á fjögurra marka forskotið í síðari hálf- leik því íslenska liðið gaf í um miðbik síðari hálfleiks. Forskotið fór upp í níu mörk þegar Patrekur kom Íslandi yfir 25:16 en hann var markahæstur með átta mörk. Sigfús Sigurðsson gerði sjö en hann fann sig virkilega vel í fyrsta skipti með landsliðinu í mótinu. EM 2002 var ein besta keppni Guðmundar Hrafnkelssonar á glæsilegum ferli með landsliðinu. Hann varði 14 skot í sigrinum á Þjóð- verjum og mörg hver úr dauðafær- um. Fimm af línunni og eitt vítakast. „Sigur Íslendinga var fyllilega verðskuldaður og ég vil óska þeim kærlega til hamingju með hann. Mína menn skorti einbeitingu í leiknum, ef til vill var það vegna þess að við vor- um þegar öruggir um sæti í undan- úrslitunum, en stefna okkar var eigi að síður að halda okkar striki, vinna alla leiki og vera efstir í riðlinum. Það tókst ekki, ég verð að sætta mig við að hafa tapað fyrir góðu liði,“ sagði Heiner Brand, hinn kunni landsliðs- þjálfari Þýskalands, í Morgunblaðinu daginn eftir, 1. febrúar. „Eftir að leikurinn var hafinn var aldrei vafi í mínum huga að við mynd- um vinna, allir voru fullkomlega með hugann við leikinn og gerðu frábæra hluti á leikvellinum,“ sagði Guð- mundur þjálfari í samtali við Ívar Benediktsson. Íslendingar töpuðu fyrir heima- mönnum, Svíum, í undanúrslitunum og fyrir Dönum í leiknum um 3. sæt- ið. Um var að ræða jöfnun á besta ár- angri Íslands á stórmóti og var Ólaf- ur Stefánsson valinn í úrvalslið mótsins. Urðu að vinna Dani Sigrar gegn Dönum á íþróttavell- inum eru ávallt kærkomnir fyrir Ís- lendinga. Einn sá mikilvægasti sem unnist hefur gegn Dönum í handbolt- anum kom í síðasta leik riðlakeppn- innar á EM í Austurríki 2010. Ísland hóf keppnina á tveimur jafnteflum gegn Serbíu og Austurríki. Skildu þau bæði eftir beiskt bragð í munni landsliðsmannanna sem flestir höfðu unnið til silfurverðlauna á Ól- ympíuleikunum í Peking einu og hálfu ári fyrr. Snorri Steinn Guðjónsson brenndi af vítakasti á lokasekúnd- unum gegn Serbíu og á lokakaflanum Fóru í undanúrslit eftir yfirburði gegn Þjóðverjum  Þrír eftirminnilegir EM-leikir Íslands rifjaðir upp  Þjóðverjar réðu ekkert við hraða íslenska liðsins  Sigur á Dönum lagði grunninn að EM-bronsinu  Þaggað niður í kokhraustum Norðmönnum í Álaborg Af þeim 17 leik- mönnum sem voru í íslenska landsliðinu á EM í Póllandi fyrir tveimur árum eru sjö þeirra ekki í hópnum að þessu sinni. Þetta eru Aron Rafn Eðvarðsson markvörður, Al- exander Petersson, Guðmundur Hólmar Helgason, Róbert Gunn- arsson, Stefán Rafn Sigurmanns- son, Snorri Steinn Guðjónsson og Vignir Svavarsson. Af sjömenningunum hefur Ró- bert leikið flesta leiki á EM, 37. Vignir á einum leik færra á EM. Á síðasta móti varð Róbert fjórði til þess að skora meira en 100 mörk fyrir íslenska landsliðið í loka- keppni EM, eða 107. Auk breytinga á leikmannahópn- um þá er ekki sami þjálfari við stjórnvölinn nú og á EM 2016. Aron Kristjánsson stýrði landsliðinu á EM 2016 en nú stendur Geir Sveins- son í brúnni. iben@mbl.is Sjö breytingar frá EM fyrir tveimur árum Róbert Gunnarsson Hinn 6. desember var lag keppn- innar, On the wings of victory, sett í spilun en slík lög eru gjarnan samin fyrir stórar alþjóðlegar íþrótta- keppnir. Björgvin Halldórsson og Diddú sungu til dæmis lag keppninnar þegar HM var haldið á Íslandi 1995 og sjálfsagt muna margir Íslend- ingar eftir Dj nokkrum Ötzi þegar Íslendingar unnu brons á EM í Austurríki 2010. Þá bjó hann til sína útgáfu af Sweet Caroline, lagi sem Neil Diamond samdi um dóttur Johns F. Kennedys og Jacqueline Bouvier. Mótshaldarar leituðu til króat- ísku tónlistarkonunnar Indiru Le- vak sem samdi lagið og flytur. On the wings of victory má finna á heimasíðu keppninnar en einnig á Youtube. kris@mbl.is Á vængjum sigursins Handboltaunnendur hafa tækifæri til að fylgjast vel með gangi mála á EM í Króatíu. Fyrir utan það magn frétta sem flæða mun um mbl.is og síður Moggans þá er einnig mikið framboð af sjónvarpsútsendingum. RÚV er með sýningarréttinn hér heima og samkvæmt upplýsingum þaðan mun RÚV sýna 32 leiki í keppninni í beinni útsendingu á sín- um rásum. Auk þess verða átta samantektarþættir. Auk þess er komið mjög til móts við handboltaunnendur á heima- síðu Handknattleikssambands Evr- ópu, EHF. Þar er nokkuð sem kall- að er EHF TV á slóðinni ehftv.com. Þar stendur til að sýna alla leiki keppninnar í beinni útsendingu. Til að gæta sanngirni gagnvart rétt- höfum þá geta notendur í þeim löndum sem eru að leika hverju sinni ekki séð leikinn í netútsend- ingu þeirra. Þegar Ísland og Sví- þjóð mætast í fyrsta leik verður sem dæmi ekki hægt að horfa á EHF-útsendinguna í þeim löndum. Þessi þjónusta gæti hins vegar verið kærkomin fyrir Íslendinga er- lendis sem hafa áhuga á að sjá leiki Íslands. Sama gildir auðvitað um fólk hérlendis sem hefur áhuga á því að fylgja ákveðnum þjóðum vel eftir í mótið. Hérlendis býr til dæm- is fjöldi fólks frá Póllandi og ríkjum gömlu Júgóslavíu. kris@mbl.is Leikirnir eru sýndir á RÚV og EHF TV

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.