Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 11
11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 Íslenska landsliðið hefur ekki alltaf riðið feitum hesti frá fyrstu við- ureign sinn á Evrópumeistaramóti í handknattleik karla. Í þau níu skipti sem liðið hefur tekið þátt í mótinu hefur það aðeins þrisvar sinnum unnið fyrsta leik í sinn. Tvisvar hef- ur liðið skilið við andstæðinga sína með skiptan hlut í upphafsleik en í fjögur skipti hefur fyrsti leikur mótsins tapast. Á EM 2000 tapaði Ísland fyrir Svíþjóð, 31:23, í fyrsta leik sem fram fór í Rijeka í Króatíu. Segja má að Íslendingar hafi aldrei séð til sólar í leiknum. Tveimur árum síðar gerðu Íslend- ingar og Spánverjar jafntefli, 24:24, í fyrsta leik eftir afdrifarík mistök voru gerð við tímatöku leiksins eftir að leikhlé var tekið nokkrum sek- úndum fyrir leikslok. Leikklukkan var of seint sett í gang eftir leikhléið án þess að athugasemdir væru gerð- ar. Viðbótartíminn nægði Spánverj- um til að jafna metin. Ísland steinlá fyrir heimamönnum í landsliði Slóvena í Celje í fyrsta leik á EM 2004, 34:28, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir snemma í síðari hálfleik. Fyrsti sigurinn í fyrsta leik kom gegn Serbum/Svartfellingum á EM í Sviss 2006, 36:31, þar sem Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur með 10 mörk. Ólafur Stefánsson rif- beinsbrotnaði í leiknum. Á EM 2008 steinlá íslenska lands- liðið fyrir Svíum, 24:19, í fyrsta leik eftir að hafa verið tíu mörk undir um skeið. Ólafur og Guðjón voru marka- hæstir með fjögur mörk hvor. Tveimur árum síðar á EM 2010 gerði Ísland jafntefli við Serba, 29:29, í hörkuleik þar sem Snorra Steini Guðjónssyni brást bogalistinn í vítakasti á síðustu sekúndum. Ísland tapaði með tveggja marka mun, 31:29, fyrir Króötum í fyrsta leik á EM 2012 í Serbíu. Á tveimur síðustu Evrópumótum hefur íslenska liðið hafið keppni á leikjum við Norðmenn. Báðir leik- irnir unnust, 31:26, í Álaborg á EM 2014 og 26:25 í Katowice í Póllandi fyrir tveimur árum. iben@mbl.is Á ýmsu hefur gengið í fyrsta leik Morgunblaðið/Brynjar Gauti Gleði Guðjón Valur Sigurðsson, Al- exander Petersson og Vignir Svav- arsson fagna sigri á EM 2006.  Aðeins þrír sigurleikir  Mistök í tímatöku og rifbeinsbrot  Tvö jafntefli Eftir miklu er að slægjast fyrir Uwe Gensheimer og samherja í þýska landsliðinu að verja Evrópu- meistaratitilinn sem þeir unnu fyrir tveimur ár- um á EM í Pól- landi. Gens- heimer og sam- herjar í þýska landsliðinu munu skipta á milli sín 250.000 evrum, jafnvirði rúmlega 31 milljónar króna, verði þeir Evrópumeistarar í Króatíu. Samkomulag var undir- ritað þess efnis á milli leikmanna og þýska handknattleikssambandsins nokkru áður en undirbúningur fyr- ir mótið hófst. Ef þýska liðið hafnar í öðru sæti verða 200.000 evrur til skiptanna milli leikmannanna, um 24 milljónir króna. Leikmennirnir fá einnig ágæta uppbót þótt þriðja sætið komi í þeirra hlut. Þá verða 150.000 evrur til skiptanna, jafnvirði 18 milljóna króna. Fari hins vegar svo að íslenska landsliðið vinni til verðlauna á EM fá leikmenn lítið annað en ánægj- una að launum auk hefðbundins verðlaunapenings eftir því sem næst verður komist. iben@mbl.is Þjóðverjar skipta með sér verðlaunapotti Uwe Gensheimer Kristján Andr- ésson, landsliðs- þjálfari Svía, verður þriðji Ís- lendingurinn til að stýra landsliði í leik gegn ís- lenska landslið- inu á Evrópu- meistaramóti. Kristján mætir galvaskur með sveit sína til leiks í kvöld gegn Ís- lendingum í Split. Dagur Sigurðsson var landsliðs- þjálfari Austurríkis á EM 2008 þeg- ar hann mætti Íslendingum í riðla- keppninni. Hann náði jafntefli, 37:37, eftir mikla dramatík á síð- ustu mínútu leiksins eins og rakið er á öðrum stað í blaðinu. Aust- urríska liðið var þremur mörkum undir þegar mínúta var til leiksloka eða þar um bil. Patreki Jóhannesson gekk ekki eins vel með austurríska landsliðið þegar það mætti því íslenska í Herning í Danmörku á EM 2014. Ís- lendingar unnu öruggan sigur, 33:27, í leik þar sem Ólafur Andrés Guðmundsson fór á kostum og skoraði sex mörk. Ekki er útilokað að Patrekur og Austurríkismenn mæti Íslendingum á EM að þessu sinni. iben@mbl.is Þriðji Íslending- urinn sem mætir Íslandi Dagur Sigurðsson EKKI VIÐBÆTT VATN ENGIN AUKAEFNI HREIN AFURÐ - ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA TA K T IK /4 7 1 4 #

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.