Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 1
GESTRISNI UMFRAM ALLTÆTLA AÐVAXA ERLENDIS
elta- og skíðissett breytir torfæruhjólinu í vélsleða. 4
Sea Data Center er eina sérhæfða upp-
lýsingaveitan á sviði sjávarútvegs og
sér fyrir sér vaxtatækifæri erlendis. 7
VIÐSKIPTA
4
B
Unnið í samvinnu við
Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri segir
að umfram allt eigum við að einblína á að halda áfram
að taka vel á móti ferðamönnum.
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Bættu sjóðunum kostnaðinn
Kaupþing, sem í gegnum félagið
Kaupskil, á langstærsta hlutinn í
Arion banka, féllst á að greiða hópi líf-
eyrissjóða um 60 milljónir króna í
sáttagreiðslu í kjölfar viðræðna
þeirra um möguleg kaup lífeyris-
sjóðanna á umtalsverðum hlut í bank-
anum.
Greiðslan var hugsuð til að mæta
þeim útlagða kostnaði sem sjóðirnir
höfðu stofnað til vegna viðræðnanna.
Þetta herma heimildir Viðskipta-
Moggans.
Forsaga málsins var sú að í upphafi
árs 2017 var rykið dustað af viðræðum
milli lífeyrissjóðanna og Kaupþings
um mögulega aðkomu sjóðanna að
eignarhaldinu á Arion banka. Sjóð-
irnir töldu að viðræðurnar væru
komnar á rekspöl í marsmánuði þeg-
ar skyndilega var tilkynnt að fjórir
sjóðir, sem allir voru hluthafar í
Kaupþingi, hefðu keypt 29% hlut í
bankanum og tryggt sér forkaupsrétt
að umtalsverðum hlut í bankanum til
viðbótar við þann hlut.
Fljótlega kom í ljós að samingar
um kaupin höfðu í raun gengið í gegn
um miðjan febrúarmánuð og þá var
ljóst að sjóðirnir höfðu verið dregnir á
asnaeyrunum um nokkurt skeið í við-
ræðum við Kaupþing. Lýstu þeir
hreinni furðu á framgöngu Kaup-
þings og hótuðu að leita réttar síns.
Niðurstaðan í viðræðum aðilanna var
sú að Kaupþing tók á sig kostnaðinn
vegna viðræðnanna sem engu höfðu
skilað.
Í blaðinu í dag er ítarlega rakin
saga söluþreifinga á Arion banka und-
anfarin ár og þess darraðardans sem
stiginn hefur ver-
ið í kringum þær.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Kaupþing greiddi lífeyris-
sjóðum um 60 milljónir í
bætur vegna útlagðs
kostnaðar þeirra við samn-
ingaviðræður um möguleg
kaup á Arion banka.
Morgunblaðið/Golli
Enn hefur ekki orðið af aðkomu lífeyrissjóðanna að eignarhaldinu á Arion.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
22.8.‘17
22.8.‘17
21.2.‘18
21.2.‘18
1.748,66
1.788,09
130
125
120
115
110
124,75
123,8 Öryggisfyrirtækið Securitas skrifaði
á dögunum undir samstarfssamning
við bandaríska tæknirisann
Alarm.com. Samningurinn kveður á
um sölu og þjónustu á snjöllum
öryggislausnum fyrir heimili og
fyrirtæki. Ómar Svavarsson, forstjóri
Securitas, segir að Alarm.com sé með
rúmlega sex milljónir viðskiptavina í
Bandaríkjunum og sé langstærsti að-
ilinn á þessu sviði í heiminum. Hann
segir að það sé mikill gæðastimpill að
fá að selja lausnir þeirra hér á landi,
en að hans sögn er um að ræða eina
mestu byltingu í öryggisbúnaði hér á
landi í mörg ár.
Ómar segir að lausnin muni veita
viðskiptavinum „aukin lífsgæði og
hugarró“og íslensk heimili geti með
búnaðinum fært sig inn í 21. öldina í
öryggisvöktun, enda sé hægt að
klæðskerasníða lausnirnar eftir þörf-
um hvers og eins.
Áætlað er að sala á lausninni hefj-
ist í næstu viku, en um 50 aðilar eru
nú þegar með kerfið í prófun með
góðum árangri, að sögn Ómars.
Opnar hurðir fyrir sendla
Hann segir að um nýja nálgun sé
að ræða hjá Securitas, sem standi öll-
um til boða. „Þetta er hugsað bæði
fyrir heimili og einnig fyrir lítil og
meðalstór fyrirtæki, sem fá þarna allt
í einum pakka.“
Sem dæmi um það sem nýi bún-
aðurinn getur gert í gegnum sérstakt
smáforrit er að láta vita þegar börnin
koma heim úr skólanum, eða opna
hurðir fyrir sendla með pakka frá
netverslunum.
Segja öryggið fært inn í 21. öldina
Morgunblaðið/Golli
Starfsmenn Securitas eru rúmlega
500, þar af 300 öryggisverðir.
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Securitas hefur náð samn-
ingum um samstarf við
Alarm.com, stærsta fyrir-
tæki heims á sínu sviði.
Masayoshi Son, forstjóri Soft-
Bank, líkir sjálfum sér gjarn-
an við Warren Buffett og gerir
nú tilraun til þess
að kaupa Swiss Re.
Son vill líkjast
læriföðurnum
10
Tilraun stærsta smásölufyrir-
tækis heims, Walmart, til að
skora Amazon á hólm tókst
ekki sem skyldi í
jólavertíðinni.
Walmart hrasar í
glímu við Amazon
11 8-10