Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018FRÉTTIR SVEIGJANLEG OG LIPUR INNHEIMTUÞJÓNUSTA Hafðu samband, við leysum málin með þér! Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is Óhætt er að segja að krefjandi verkefni bíði nýs ferðamálastjóra enda vex ferðaþjónustan með ógn- arhraða og hægara sagt en gert að laga greinina farsællega að mikilli fjölgun ferðamanna ár frá ári. Skarphéðinn Berg Steinarsson tók við starfinu í ársbyrjun. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Það er ljóst að ferðaþjónusta hefur verið að aukast að umfangi undanfarin ár og því fylgja ýmsar áskoranir. Umfram allt verður þó að einblína á að við eigum að halda áfram að taka vel á móti þeim ferðamönnum sem hingað koma, sýna þeim gestrisni og umhyggju en á sama tíma að reka arðsama atvinnugrein til framtíðar. Hver var síðasti fyrirlesturinn eða ráðstefnan sem þú sóttir? Líklega er ég allra manna lat- astur við að sækja fyrirlestra og ráðstefnur, leiðist það frekar. Mætti jafnvel halda að ég væri með eitthvert óþol gagnvart slíku. Hef meira gert af því að ræða við skemmtilegt fólk í smærri hópum. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Ég hef alltaf gert meira af því að lesa skáldskap en vinnutengdar bókmenntir. Held að maður fái úr skáldskap gagnrýna hugsun og ímyndunarafl, það tvennt sem gagnast manni best við að leysa verkefni dagsins. Mest áhrif hafði bíómynd, Touching the Void, sem segir frá ótrúlegum raunum tveggja fjall- göngumanna. Tekur sérlega vel á því hversu mikilvægt er að halda áfram að taka ákvarðanir og fram- kvæma. Simpson og Yates vissu að þegar þeir hættu því tæki dauðinn við. Það er ekkert mál að komast á toppinn. Áskorunin er að komast óskaddaður niður. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Reyni að læra af reynslunni, bæði minni eigin og annarra. Að vinna með fólki sem hefur góða þekkingu á viðfangsefninu er lær- dómsríkt. Þá hef ég sótt mér þekkingu á netinu, m.a. með því að horfa á fyrirlestra og lesa greinar. Hugsarðu vel um líkamann? Mín íþrótt er hestamennska. Þar fæ ég mína útiveru og líkams- hreyfingu. Það er fátt eins gott og góður reiðtúr. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Í tvö sumur sigldi ég með ferða- menn um Breiðafjörð, ýmist í náttúruskoðun eða sjóstöng. Það var ótrúlega gefandi að kynna þeim rituna, sjávarföllin eða að veiða þorsk. Væri til í það starf aftur. Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Á sínum tíma sló ég slöku við í námi í vélritun og dönsku. Sé nokkuð eftir því eftir að mér lærð- ist að það hefði ég átt að taka fast- ari tökum. Held samt að ég nenni ekki að bæta úr því á þessum aldri. Er með alveg nóg af gráðum þannig að það væri frekar að gera eitthvað skemmtilegt eins og um árið þegar ég tók pungaprófið, eða skipstjórnarréttindi eins og ég kýs að kalla það. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Það er fátt betra en fara á kór- æfingu. Byrjaði nýlega í Fóst- bræðrum. Það er endurnærandi að syngja. SVIPMYND Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri Sér eftir að hafa ekki lært vélritun og dönsku betur Morgunblaðið/Eggert Skarphéðinn Berg segir umfram allt þurfa að halda áfram að taka vel á móti erlendum ferðamönnum og sinna þeim af gestrisni og umhyggju. GRÆJAN Tölvuframleiðendur hafa lengi reynt að gera tölv- urnar sínar eins nettar og mögulegt er, svo að þær taki sem minnst pláss á skrifborðinu. LunaDesk frá M33 Labs (www.m33labs.com) fer allt aðra leið og gerir skrifborðið sjálft að tölv- unni. Undir plötunni er að finna meira en nóg pláss fyrir hátalara, móðurborð, minni, örgjörva og allt hitt sem góð tölva þarf á að halda. Vélbúnaður- inn er tengdur við stóran snertiskjá sem stendur á hreyfanlegum fæti sem hægt er að snúa og teygja eins og þarf. Auðvelt er að koma fyrir inn- stungum ofan á borðplötunni s.s. fyrir heyrnartólin eða USB- snúrurnar, og á framhliðinni eru lít- il hólf þar sem geyma má penna- veski, skrifblokk eða nokkrar vel valdar bækur. Luna desk kostar frá 3.500 dölum vestanhafs. ai@mbl.is Hönnunin er stíl- hrein og vinnu- flöturinn stór. Þegar skrif- borðið er tölvan Kaupandinn ræður samsetningu vélbúnaðarins. FARARTÆKIÐ Þeir sem hafa gaman af að spana um á torfæruhjóli þurfa ekki lengur að láta snjóinn stöðva sig. Fyrirtækið Timbersled framleiðir sér- stakt belta- og skíðis-sett sem breytir torfæruhjólinu í n.k. torfæru-vélsleða. Á að duga að skipta um nokkr- ar skrúfur og herða nokkrar rær og beltasetttið er komið á sinn stað. Hér er hugsanlega komin lausn sem hentar vel við íslensk- ar aðstæður, enda hefur það gerst oft í vetur að gagnlegt væri að eiga inni í bílskúr farartæki sem fer létt með að spana yfir snjó- skaflana. Settin frá Timbersled kosta í kringum 2.000 til 6.200 dali. ai@mbl.is Heilsárshjól fyrir íslenska færð NÁM: Stúdent frá Menntaskólanum við Sund. Viðskiptafræð- ingur frá Háskóla Íslands með framhaldsmenntun frá Bandaríkj- unum. STÖRF: Fjármálaráðuneytið 1987-1989 og 1991-1998; Forsæt- isráðuneytið 1998-2002; Baugur Group 2002-2007; Landic Pro- perty 2007-2008; Eignarhaldsfélagið Fengur, Astraeus Airlines og Iceland Express 2010-2013; Ferðaskrifstofa Íslands 2014- 2015; Íshestar 2015-2017. Jafnframt eigin rekstur í ferðaþjón- ustu 2012-2017. Ferðamálastjóri frá ársbyrjun 2018. ÁHUGAMÁL: Hestamennska, kórsöngur og skíði. FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Sigríði Jóhannesdóttur. Eigum þrjú börn, þrjár tengdadætur og þrjú barnabörn. HIN HLIÐIN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.