Morgunblaðið - 22.02.2018, Page 7

Morgunblaðið - 22.02.2018, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 7SJÁVARÚTVEGUR Frá 1940 www.velasalan.is Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík Pedrollo VXC Öflugar og traustar brunndælur Pedrollo NGA1 PRO Ryðfríar hringrásar- dælur Pedrollo Dælur F Vatnsdælur, miðflóttaafls frá 1,5-1,8 kW Neysluvatns dælusett með kút Pedrollo CK Olíu- dælur Pedrollo TOP 2 Nettar og meðfærilegar brunndælur Alþjóðlega upplýsingaveitan fyrir sjávarútveg, markofish.com, sem rekin hefur verið af greiningardeild ráðgjafafyrirtækisins Markó Part- ners, hefur verið færð í nýtt sjálf- stætt fyrirtæki sem ber nafnið Sea Data Center. „Okkur þótti vera kominn tími til að leggja aukna áherslu á þennan þátt starfseminnar. Með því að setja á fót sérhæft fyrirtæki verður bæði reksturinn og framtíðarsýnin skýr- ari,“ segir Jón Þrándur Stefánsson, stjórnarformaður fyrirtækisins. „Samhliða þessu tekur eignarhald og stjórnun fyrirtækisins breyt- ingum. Starfsmenn félagsins verða lykileigendur ásamt því sem tækni- fyrirtækið Kóði gengur í hluthafa- hópinn og mun aðstoða við uppbygg- inguna.“ Vilja framgang sjávarútvegs Í grunninn veitir Sea Data Center markaðsupplýsingar fyrir sjávar- útveg á alþjóðavísu. Um er að ræða margvíslegar tölulegar upplýsingar um stöðu á mörkuðum, svo sem veiðiþróun, markaðsþróun, verðþró- un, t.d. á uppboðsmörkuðum, út- flutningsverð og verð smásala. Auk þess birtast þar eigin greiningar og annarra ásamt hlekkjum á sjávar- útvegsfréttir. „Um er ræða gögn sem ná allt frá kvótaúthlutun þar til fiskurinn er borinn á borð til neyt- andans,“ segir Jón Þrándur. „Við höfum meðal annars fengið þau við- brögð frá ákveðnum fyrirtækjum tengdum sjávarútvegi að þeim finn- ist óþægilegt að við séum að birta vissar upplýsingar. Þau vilja sitja á þeim. Við viljum hins vegar fram- gang sjávarútvegs sem mestan og erum þeirrar skoðunar að betur upp- lýstur markaður sé betri markaður og muni þannig leiða til þess að sjáv- arútvegsfyrirtæki geti náð betri ár- angri. Við munum jafnframt auka breidd og dýpt þjónustunnar sem í boði verður. Það mun þó ekki gerast á einni nóttu heldur með tíð og tíma.“ Frekari áhersla á greiningar Anna Björk Theodórsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sea Data Center, sem jafnframt leiðir markaðs- og kynn- ingarmál, segir að aukinn þungi muni verða á frekari greiningar. „Markaðurinn kallar eftir betri túlk- un á þeim upplýsingum sem eru til staðar. Það er til yfirdrifið nóg af gögnum. En hvað þýða upplýsing- arnar og hvernig geta þær nýst fyrirtækjum við ákvarðanatöku? Við það eru greiningar gagnlegar,“ segir hún. Jón Þrándur líkir starfsemi Sea Data Center við greiningardeildir fjármálafyrirtækja nema hvað fyrir- tækið rýnir í sjávarútveg. Að hans sögn er um að ræða nýsköpun því ekki séu til sambærileg fyrirtæki í heiminum. „Við höfum mikla þekk- ingu á því sem er að gerast á mark- aðnum. Það er mikilvægt til þess að geta sett upplýsingar í samhengi. Aðrir hafa ekki sömu yfirsýn og við.“ Hafa mikla stjórn á gögnunum Bjarni Rúnar Heimisson verk- efnastjóri segir að Sea Data Center hafi stjórn á gögnunum frá því að þau eru sótt og þar til þau birtast á vefnum. „Það eru engir milliliðir heldur önnumst við málið frá upphafi til enda. Við stýrum því hvernig gögnin raðast í gagnagrunna og get- um brugðist við síbreytilegum mörk- uðum og bætt og breytt eftir þörfum notenda. Þetta snýst um það,“ segir hann. Anna Björk segir að fyrirtækið hafi aflað mikils magns af gögnum í áranna rás. „Það er hvergi annars staðar til jafn mikið af stöðluðum gögnum um sjávarútveg.“ „Hugmyndin að baki fyrirtækinu,“ segir Jón Þrándur, „er að fá fólk til að leiða hugann að því hvers virði gögnin eru sem það hefur undir höndum og hvernig megi nýta þau betur til að stuðla að upplýstri ákvarðanatöku. Við erum þannig að aðstoða fyrirtæki við að nýta að- ferðafræði sem lengi hefur verið þekkt, m.a. í fjármálageiranum, og er smám saman að ryðja sér til rúms í sjávarútvegi og tengdum greinum.“ Kynslóðaskipti í sjávarútvegi Að hans sögn eiga sér nú stað kyn- slóðaskipti í íslenskum sjávarútvegi. „Vel menntað yngra fólk hefur hafið störf við atvinnuveginn og það er vant öðrum vinnubrögðum. Hjá því tíðkast að vinna með gögn til þess að taka upplýstar ákvarðanir í harðn- andi samkeppni. Þetta er hluti af þeirri þróun.“ Jón segir að sjávarútvegur sé sá atvinnuvegur sem er hvað flóknastur með tilliti til alþjóðaviðskipta. „Sem dæmi má nefna að fiskur er veiddur í Barentshafi. Hann er því næst send- ur til Kína í flökun. Að því loknu er fiskurinn sendur aftur á markað til Evrópu eða Bandaríkjanna. Þetta ferli getur tekið hálft ár.“ Líflegur atvinnuvegur Að sögn Bjarna Rúnars er ávallt mikið um að vera í sjávarútvegi, markaðsaðstæður geti breyst hratt og því skipti máli að hafa góðar upp- lýsingar og skynsamlegar greiningar um málefni líðandi stundar og fram- tíðarhorfur. Jón segir að við þær aðstæður aukist þörfin á greiningum. „Innan- lands eru teikn á lofti. Það er mikil umræða um veiðigjöld á sama tíma og tekjur í erlendri mynt dagast saman vegna styrkingar krónu og kostnaður fer vaxandi vegna launa- hækkana. Það er ljóst að ýmis fyrir- tæki glíma enn við það verkfni að vinna til baka viðskiptasambönd sem flosnuðu upp í sjómannaverkfallinu fyrir ári. Og Rússlandsmarkaður er enn lokaður fyrir íslenskan fisk. Fyr- ir skemmstu náðust aftur samningar við frændur okkar í Færeyjum um heimildir til að veiða í þeirra lögsögu uppsjávarfisk og þar skapast tæki- færi. Auk þess sem það á að leggja fram nýtt frumvarp um fiskeldi. Það er því ávallt eitthvað á döfinni. Alþjóðlega hefur samþjöppun í sjávarútvegi aukist til muna á undan- förnum árum. Fyrirtækin eru orðin stærri og öflugri. Fiskeldisfyrirtæki í Norður-Atlantshafi sem vegnað hefur vel undanfarin ár hafa fjárfest í útgerðum sem veiða hvítfisk og fisk- vinnslum.“ Upplýsingaveita öðlast sjálfstætt líf Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Markofish.com hefur feng- ið nafnið Sea Data Center eftir að upplýsingaveitan var færð í sjálfstætt fyrir- tæki. Áður var hún í eigu Markó Partners en nú eru starfsmenn lykilhluthafar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jón Þrándur Stefánsson, Bjarni Rúnar Heimisson og Anna Björk Theodórsdóttir hjá Sea Data Center, sem hefur hreiðrað um sig í Húsi sjávarklasans. „Vöxtur fyrirtækisins verður erlendis. Þar er stóri markaðurinn,“ segir Jón Þrándur Stefánsson, stjórnarformaður Sea Data Center. „Það varp- ar ágætu ljósi á vaxtartækifærin að hlutdeild Íslendinga í þorskveiðum er 250 þúsund tonn á meðan heildarveiðin á Atlantshafsþorski er um það bil 1,3 milljónir tonna á ári. Svo er hægt að bæta við alaskaufsa, kyrrahafsþorski og öðrum hvítfiski við og þá er markaðurinn fyrir hvít- fisk alls um 7-8 milljónir tonna á ári. Við erum líka að fylgjast með öðr- um tegundum en hvítfiski og svo er fiskeldi einnig áhugavert í þessu samhengi.“ Anna Björk Theódórsdóttir, framkvæmdastjóri Sea Data Center, segir að á meðal viðskiptavina séu stærstu íslensku sjávarútvegsfyrirtækin en auk þess sé seld áskrift til margra fyrirtækja í Rússlandi. Enn fremur hagnýti fiskkaupendur sér einnig upplýsingarnar í samningaviðræðum við seljendur. „Gögnin nýtast því bæði framleiðendum og seljendum.“ Jón Þrándur segir að með því að hagnýta gögn Sea Data Center til- einki stjórnendur sér breyttan hugsunarhátt varðandi reksturinn. „Gögnin bæta ákvarðanatöku varðandi það á hvaða markaði skuli sækja, hvaða verð séu ásættanleg og fleira.“ Anna Björk segir að Sea Data Center muni taka þátt í alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni í Brussel í fyrsta skipti í apríl. „Við erum spennt fyrir því og vonum að það geri okkur sýnilegri á þessum alþjóðamarkaði.“ Vöxtur Sea Data Center verður erlendis

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.