Morgunblaðið - 22.02.2018, Side 16
Settu starfsfólkið í fyrsta sæti
WOW Biz er fyrir þá sem vilja aukin þægindi, einfaldleika og greiða leið inn
í vélina. Innifalið er hraðferð um borð,máltíð, forfallavernd og sömuleiðis
BigSeat, eða besta sætið sem er í boði hverju sinni. WOW air flýgur einu sinni
til tvisvar á dag til allra helstu viðskiptaborga Evrópu og Ameríku. WOW Biz
kjörin leið fyrir þá sem þurfa að komast hratt og örugglega milli staða.
WOW Biz
Sumir þurfa einfaldlega
meira WOW en aðrir.
BRÍETARTÚNI 13 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
er
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Keðjur Jamie Oliver í vondum …
Átta nýir stjórnendur hjá Icelandair
Stokkar upp í stjórninni
Tómas ráðinn framkvæmdastjóri …
Hvatti til breytts verklags
Mest lesið
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Valdimar Grímsson, eigandi hinna
gamalgrónu fyrirtækja Vogue fyrir
heimilið og Sólargluggatjalda, hefur
fest kaup á öllu húsnæðinu Ármúla
13a. Húsið hefur í gegnum tíðina
hýst fjölda fjármálastofnana, þeirra
á meðal VÍB, Kaupþing, Iðnlána-
sjóð, Fjárfestingabanka atvinnulífs-
ins, SPRON og MP banka.
Valdimar hyggur á rekstur versl-
unar Sólargluggatjalda á jarðhæð-
inni, en á neðri hæð sem snýr út í
port verður verkstæði. Sautján
starfa hjá Sólargluggatjöldum, í
verslun, á verkstæði og við upp-
setningu.
Valdimar segir í samtali við Við-
skiptaMoggann að kaupverð sé
trúnaðarmál, en fasteignamat húss-
ins er nærri 450 milljónir króna.
„Þetta kom til af því að eigendur
núverandi húsnæðis vildu hækka
leiguna þar sem fyrirtækið er núna
í Skeifunni 11. Þá fannst mér kom-
inn góður tími til að fara að leita
mér að nýju húsnæði, og eftir að
hafa kannað markaðinn fram og til
baka var þetta niðurstaðan,“ segir
Valdimar.
Þegar verslun og verkstæði
Sólargluggatjalda verða komin í
húsið, verða enn um 1.500 fermetr-
ar lausir á efstu þremur hæðunum.
Valdimar sér þar ýmis tækifæri, en
hann segir að margir hafi sýnt
áhuga á að leigja hæðirnar fyrir
ýmiss konar starfsemi. „Maður er
að stökkva út í djúpu laugina með
þessum kaupum, en það gerist ekk-
ert nema maður þori.“
Sú starfsemi sem mögulega kem-
ur í húsnæðið eru skrifstofur, hostel
eða hótel. „Ég tel staðsetningu
byggingarinnar sterka. Þarna er að
fjölga þjónustuverslunum og gott
að fá bílastæði.“
Valdimar segir að þó að hús-
næðið sé þrisvar sinnum stærra en
hann ætlaði sér upphaflega að
kaupa, þá segi innsæið honum að
þetta muni ganga vel upp.
Morgunblaðið/Eggert
VÍB, Kaupþing, FBA, Iðnlánasjóður, SPRON og MP banki hafa verið í húsinu.
Kaupir 2.500
fm bankahús
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Á morgun verður verslunin
Sólargluggatjöld opnuð í
nýju húsnæði í Ármúla 13a
en í gegnum tíðina hafa
ýmsar fjármálastofnanir
verið þar til húsa.
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Á fundi Heimavalla um íbúða-markaðinn á dögunum komu
fram áhugaverðar upplýsingar um
þróunina hér á Íslandi í fortíð og
framtíð. Meðal annars kom Ásgeir
Jónsson, dósent við HÍ, inn á spár um
mannfjöldaþróun hér á landi, og einn-
ig birti hann áhugaverða mynd af
framboði íbúða.
Samkvæmt þessu þá fjölgar fólki áaldrinum 25-75 ára á þessu ári
um nálægt 5.500 manns, og nær
þannig sögulegu hámarki hvað árlega
fjölgun fólks á þessum aldri varðar.
Næstu árin mun fjölgun fólks fara
jafnt og þétt minnkandi, eða allt þar
til árið 2058 þegar fólki fer að fækka.
Þó einhverjum gæti enn fundistvera langt í árið 2058, þá flýgur
tíminn eins og vitað er, og tímabært
að gera viðeigandi ráðstafanir.
Það var einnig áhugavert að sjámyndina sem Ásgeir varpaði
upp af framboði á íbúðamarkaði. Þar
var mest sláandi að sjá framboðið á
því herrans ári 2007 þegar byrjað var
á 4.500 íbúðum, samanborið við árið
2016 þegar byrjað var á rúmlega
1.000 íbúðum. Á sama tíma horfum
við upp á það samkvæmt tölum
Heimavalla að núverandi skortur á
íbúðamarkaði sé á milli 3 og 5.000
íbúðir. Samkvæmt lauslegum út-
reikningi eru þá kannski 3 - 4.000 ein-
staklingar eða fjölskyldur sem eiga
hvergi höfði sínu að halla, nema þá
heima hjá mömmu og pabba.
Þó að árleg fjölgun Íslendinga fariminnkandi þá er eitthvað bogið
við ástandið á íbúðamarkaði.
Mannfjöldi
og íbúðirForkaupsréttur ríkisins á hlut-um í Arion banka hefur nokk-
uð verið í umræðunni og þá
kannski einkum í sölum Alþingis.
Í sáttmála ríkisstjórnarinnar er
gert ráð fyrir því að ríkið dragi úr
eignarhaldi sínu á fjármálafyr-
irtækjum, svo það myndi óneit-
anlega skjóta skökku við ef ríkið
væri að bæta þriðja viðskipta-
bankanum í eignasafnið. En ekki
eru allir þeirrar skoðunar og telja
að ríkissjóður sé að láta mikilvægt
tækifæri úr greipum ganga og láti
um leið erlenda vogunarsjóði hafa
sig að fífli.
Grundvallarspurning er þóhvort forkaupsréttur rík-
isins hafi í raun virkjast í þau tvö
skipti sem viðskipti hafa verið
með hluti í Arion banka, í ár og á
sama tíma í fyrra. Með eins árs
millibili hafa viðskipti með stóra
hluti átt sér stað í bankanum degi
fyrir birtingu ársuppgjörs. Í bæði
skiptin hefur viðskiptaverðið verið
yfir viðmiðunarmörkum forkaups-
réttarins, sem er 80% af eiginfjár-
grunni, miðað við 9 mánaða stöðu.
Aðra sögu er að segja þegar mið-
að er við eiginfjárstöðu bankans
um áramót samkvæmt endanlegu
og endurskoðuð ársuppgjöri.
Það er ekki að ósekju sem lítiðtraust er almennt borið til
vogunarsjóða enda fara hags-
munir þeirra sjaldnast saman við
samfélagslega hagsmuni. Ítrekuð
viðskipti þeirra með hlutabréf í
Arion banka degi fyrir birtingu
uppgjöra er ekki til að auka það
traust. Á flestum þróuðum mörk-
uðum eru settar hömlur á við-
skipti tengdra aðila með hlutabréf
skömmu fyrir birtingu uppgjöra
og ekki að ástæðulausu.
Viðskipti vogunarsjóðanna degifyrir birtingu uppgjöra þar
sem verð er miðað við þróun eigin
fjár sem fyrirsjáanlegt er að muni
hækka, fara væntanlega ekki á
svig við nein lög eða reglur. Þær
lýsa hins vegar ákveðnu viðhorfi
sem felst í því að ganga eins langt
og kostur er í að maka krókinn.
Myndu margir velja sér slíka
meðfjárfesta?
Viðskipti degi fyrir uppgjör
Matvöruverslunin
Kostur var tekin til
gjaldþrotaskipta í síð-
ustu viku að beiðni
tollstjóra.
Kostur í þrot að
beiðni tollstjóra
1
2
3
4
5