Morgunblaðið - 05.02.2018, Page 1
MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2018
ÍÞRÓTTIR
Reykjavíkurleikar Arna Stefanía vann þá hollensku í 400 metra hlaupinu en vildi komast nær HM-lágmarki.
Boðið á mót í Tyrklandi. Aníta missti Cherotich fram úr sér á lokametrunum í 800 metra hlaupinu 4 og 5
Íþróttir
mbl.is
María Ben Er-
lingsdóttir, fyrr-
verandi lands-
liðskona í
körfubolta, hefur
fengið félaga-
skipti frá Grinda-
vík til Kefla-
víkur. Sverrir
Þór Sverrisson
þjálfari sagði við
Morgunblaðið að
María yrði til taks en að ekki væri
víst að hún tæki nokkurn þátt með
liðinu.
María lék 28 deildarleiki með
Grindavík á síðustu leiktíð og skor-
aði þá 12,6 stig að meðaltali í leik,
tók 7,1 fráköst og gaf 2,5 stoðsend-
ingar. sindris@mbl.is
María til taks
í Keflavík
María Ben
Erlingsdóttir
Eyjamaðurinn Hlynur Andrésson
úr ÍR setti um helgina Íslandsmet í
3.000 metra hlaupi í Bandaríkj-
unum. Mótið heitir Ryan Shay In-
vitational og fór fram hjá hinum
kunna Notre Dame-háskóla í In-
diana-ríki í Bandaríkjunum.
Hann kom fyrstur í mark í
hlaupinu eftir frábæran endasprett
eftir því sem fram kemur hjá
Frjálsíþróttasambandi Íslands. Sig-
urtími Hlyns var 8:02,08 mínútur
en gamla Íslandsmetið var einnig í
eigu Hlyns. Þá hljóp Hlynur á tím-
anum 8:06,69 mínútum. Hlynur hef-
ur staðið sig vel í vetur en í desem-
ber náði hann þriðja besta tíma
Íslendings frá upphafi í 5.000
metra hlaupi. Methafinn í þeirri
grein er Kári Steinn Karlsson.
Hlynur er í 22. sæti á lista
NCAA en það nær yfir alla háskóla
Bandaríkjanna en þeir bestu í
frjálsum í bandarísku háskóla-
íþróttunum eru gjarnan verðandi
ólympíufarar. Hlynur keppir fyrir
Eastern Michigan-skólann. kris@m-
bl.is
Íslandsmet sett í Indiana
Hlynur Andrésson setti nýtt met í 3.000 metra hlaupi og fagnaði sigri
HANDBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Það eru tíu ár síðan liðið vann titil síðast þannig
að það er mjög mikil gleði hérna,“ sagði Vignir
Svavarsson sigurreifur við Morgunblaðið í gær-
kvöld og hækkaði aðeins róminn til að yfirgnæfa
fagnaðarlæti liðsfélaga sinna. Vignir og félagar í
Team Tvis Holstebro urðu í gær danskir bikar-
meistarar í handbolta.
Vignir skoraði fjögur mörk í úrslitaleiknum
gegn GOG í gær, sem Holstebro vann 26:21, og
hann var hylltur sem hetja eftir ótrúlegan 26:25-
sigur liðsins á Ribe-Esbjerg í undanúrslita-
leiknum á laugardag. Þetta er annar bikar-
meistaratitill Vignis á þremur árum, en hann vann
titilinn með Midtjylland árið 2016:
„Já, við unnum einmitt GOG einnig í úrslita-
leiknum þá svo það liggur greinilega vel fyrir mér
að mæta þeim í úrslitum. Leikurinn núna snerist
fyrst og fremst um varnarleik. Sóknarleikurinn
var frekar dapur en ég er mjög ánægður með hve
vel við héldum dampi í vörninni allan leikinn. Við
náðum að halda þeim í 21 marki sem er mikill sig-
ur, en við hefðum alveg getað unnið leikinn með
10 mörkum,“ sagði Vignir. Dramatíkin var því
ekki mikil í sjálfum úrslitaleiknum en í undan-
úrslitaleiknum skoraði Vignir sigurmarkið á síð-
ustu sekúndu, með marki frá miðju þegar leik-
menn GOG héldu að þeir hefðu verið að enda við
að tryggja sér framlengingu með marki nokkrum
sekúndum fyrir leikslok:
„Við klúðruðum málum síðustu tíu mínúturnar
og fórum að vera mjög varfærnir, sem hentar
okkur mjög illa. Þeir tóku svo leikhlé þegar það
voru nokkrar sekúndur eftir og við ræddum fyrst
og fremst um það hvernig við næðum að stoppa
þá, en einhvern veginn lak boltinn í netið og þeir
jöfnuðu. Ég var búinn að segja markverðinum að
hann ætti að vera snöggur að koma boltanum á
mig á miðjunni ef svona færi, en maður vissi í raun
ekkert hvað maður var að gera. Ég fékk boltann
bara til mín, passaði mig að stíga á línuna, kastaði
og skoraði,“ sagði Vignir. Myndband af markinu
má finna í gegnum mbl.is og þar sást vel hve
gríðarmikill fögnuður Holstebro-manna var:
„Þetta var alveg brjálæðislegt. Ég hafði ekki
hugmynd um hvað tímanum leið og vissi ekki
hvort markið var gilt fyrr en ég var umkringdur
af liðsfélögum mínum í fagnaðarlátum. Það var
geggjuð stund, en það var töluvert skemmtilegra
samt að vinna úrslitaleikinn,“ sagði Vignir.
Vignir, sem er 37 ára gamall, hefur leikið í Dan-
mörku frá árinu 2014 eftir að hafa leikið í Þýska-
landi í mörg ár þar á undan, en hann fór frá
Haukum í atvinnumennsku árið 2005. Fyrr í vetur
skrifaði hann undir nýjan samning við Holstebro
sem hann hefur leikið með frá árinu 2016:
„Ég er langelstur í liðinu og gæti í raun verið
pabbi flestra strákanna í þessu liði. En ég ákvað
að framlengja um eitt ár til viðbótar enda er ég
virkilega ánægður með þetta félag og fjölskyld-
unni líður vel hérna,“ sagði Vignir.
Átti fínt spjall við Geir í haust
Vignir á að baki 234 A-landsleiki en línumaður-
inn hefur ekki leikið með landsliðinu undanfarin
misseri. Hann veiktist rétt fyrir HM í Frakklandi
í fyrra og tók svo þá ákvörðun að gefa ekki kost á
sér á EM í janúar. Hins vegar er ekki hægt að
segja að landsliðsferlinum sé endilega lokið:
„Ég gaf ekki kost á mér á EM í janúar. Ég átti
fínt spjall við Geira einhvern tímann í haust um
þetta. Við konan mín eigum von á okkar öðru
barni eftir tíu daga og ég vildi bara vera með fjöl-
skyldunni að þessu sinni, og Geir hafði fullan
skilning á því. Þar með var það útrætt. En ég hef
aldrei sagt að ég sé hættur með landsliðinu. Þjálf-
arinn velur liðið og ræður hvaða mannskap hann
vill, og ég sýni því fulla virðingu. Ég hef átt í mjög
góðum samskiptum við Geir og hef alls ekkert út á
þau að setja. Hver veit hvað gerist í framtíðinni,
en ég naut þess reyndar mjög vel að vera í fyrsta
skipti í 12-13 ár ekkert að hugsa um handbolta í
janúar,“ sagði Vignir léttur.
„Þetta var brjálæðislegt“
Vignir danskur bikarmeistari í annað sinn á þremur árum Sannkölluð hetja
Holstebro í undanúrslitum Ekki hættur í landsliðinu en gaf ekki kost á sér á EM
Ljósmynd/Twitter
Bikarmeistari Vignir Svavarsson með verðlaunagripinn eftir að hafa orðið danskur bikarmeistari.
Eftir að hafa
skorað eitt mark
í fyrstu 40 deild-
arleikjum sínum
fyrir Burnley
hefur Jóhann
Berg Guðmunds-
son nú skorað tvö
mörk í síðustu
fimm leikjum. Jó-
hann skoraði
dýrmætt jöfn-
unarmark gegn toppliði ensku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu,
Manchester City, í 1:1-jafntefli um
helgina. Hann var valinn maður
leiksins hjá Sky Sports.
„Ég vil bara komast sem oftast
inn í teiginn og skora mörk. Núna
eru komin tvö í fimm leikjum og ég
vil bara halda þessu áfram. Mark-
vörður þeirra átti mjög góðan leik
og varði oft frábærlega, svo ég var
ánægður með að sjá boltann hafna í
netinu,“ sagði Jóhann í viðtali við
heimasíðu Burnley.
Stigið sem Burnley fékk var dýr-
mætt fyrir liðið, sem hefur átt erfitt
uppdráttar að undanförnu. Burnley
hefur ekki fagnað sigri í deildinni
síðan 12. desember, í níu leikjum,
en er þó enn ofarlega, eða í 7. sæti
deildarinnar, nú níu stigum á eftir
næsta liði.
Ellefti íslenski með þrjú mörk
„Þetta er erfið deild og menn
þurfa að standa sig í hverjum leik,
sem er það sem við gerum. Það fá
ekki mörg lið að æða eitthvað yfir
okkur. Við hættum aldrei heldur
reynum í 95 mínútur ef þess þarf og
það sýndum við núna,“ sagði Jó-
hann.
Jóhann er ellefti Íslendingurinn
sem nær að skora þrjú mörk í efstu
deild Englands. Brynjar Björn
Gunnarsson og Arnar Gunnlaugs-
son skoruðu þrjú mörk hvor í deild-
inni, og þeir Grétar Rafn Steinsson
og Ívar Ingimarsson fjögur mörk
hvor. sindris@mbl.is
Jóhann Berg
hungrar í
fleiri mörk
Jóhann Berg
Guðmundsson