Morgunblaðið - 20.03.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 20.03.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 Við erum á facebook Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Peysur Kr. 8.990 Str. 38/40-50/52 Litir: bleikt, dökkblátt STAÐSETNING: H Ó T E L R E Y K J AV Í K N AT U R A TÍMASETNING 2 3 . M A R S K L . 12 SKRÁNING FER FRAM Á I S AV I A . I S/ V E I T I N G A R E K S T U R K Y N N I N G A R F U N D U R V E G N A Ú T B O Ð S Á R Ý M I U N D I R V E I T I N G A R E K S T U R Í S U Ð U R - B Y G G I N G U F L U G S T Ö Ð V A R L E I F S E I R Í K S S O N A R Isavia leitar að aðilameð góða reynslu af veitingarekstri og hefur yfir að ráða vörumerki sembýður upp á afgreiðslu ámat úr fersku hráefni á innan við tveimurmínútum. Gerð er krafa um að viðkom- andi bjóði upp á pítsur í sneiðum, fersk salöt o.fl. Nánari upplýsingar verða kynntar á fundinum. V I Ð S K I P T A T Æ K I F Æ R I Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I : G E T U R Þ Ú E L D A Ð F Y R I R M I L L J Ó N I R FA R Þ EG A ? Grasrótin er að vakna varðandi leit að lækningu við mænuskaða og betri umönnun mænuskaddaðra, að sögn Auðar Guðjónsdóttur, stjórnarfor- manns Mænuskaðastofnunar Ís- lands. Hún er nýkomin frá Banda- ríkjunum ásamt þeim Oddnýju Arthúrsdóttur og Soffíu Arnar- dóttur. Þær komust m.a. í samband við Christopher & Dana Reeve Foundation sem styður við leit að lækningu við mænuskaða og bættri umönnun mænuskaddaðra. Þær hittu einnig talskonur bandarískra baráttusamtaka fyrir málefnum mænuskaddaðra. „Allt þetta fólk vissi af þeirri póli- tísku leið sem við á Íslandi höfum talað fyrir. Ef íslensk stjórnvöld vilja vinna áfram að því að vekja at- hygli á mænuskaða og leit að lækn- ingu við honum hjá alþjóðastofn- unum þá er Christopher Reeve-stofnunin tilbúin að styðja það. Sjóðurinn á mikið fé og hefur góð sambönd,“ sagði Auður. Ís- lensku konurnar fóru m.a. á fundi í bandaríska þinghúsinu. „Spinal United, regnhlífarsamtök 50 mænuskaðafélaga, vilja að virkni- meðferð verði beitt í meiri mæli í endurhæfingu,“ sagði Auður. „Við kynntum hina pólitísku leið Íslend- inga og hvert við stefnum. Amerísku konurnar vilja líka fara þessa póli- tísku leið og leita pólitísks stuðnings við betri endurhæfingu og meðferð. Það verður að vekja athygli á þessu. Deborah Flynn á lamaðan son og er stofnandi QUAD-stofnunarinnar. Hún er baráttukona og hefur sterk pólitísk tengsl. Deborah og fleiri ætla að vinna að því að Bandaríkin beiti sér innan alþjóðastofnana, eins og Ísland hefur gert. Þá vinna Warrior Momz að því að betri end- urhæfing og lækning við mænu- skaða verði alheimsverkefni.“ gudni@mbl.is Mikill áhugi á íslensku leiðinni  Grasrótin tekur upp málefni mænuskaddaðra Ljósmynd/Mænuskaðastofnun Þinghús Bandaríkjanna F.v.: Justin Beland almannatengill, starfar fyrir Christopher & Dana Reeve Foundation, Oddný Arthúrsdóttir, Eduardo Sa- casa, lögfræðilegur ráðgjafi Marco Rubio þingmanns frá Florida, Auður Guðjónsdóttir, Soffía Arnardóttir, Deborah Flynn, stofnandi Quad Founda- tion. Neðri röð f.v.: Shelly Kerchner og Tracy Tredennick. Kvikmynda- leikarinn Christopher Reeve (f. 1952, d. 2004) var þekktur fyrir leik sinn í kvikmynd- unum um Superman. Hann lam- aðist 1995 eftir fall af hestbaki. Eftir það var hann bundinn við hjólastól og þurfti að notast við færanlega öndunarvél til hinsta dags. Reeve nýtti frægð sína og fjármuni til að styrkja stofnfrumurannsóknir og rann- sóknir á mænuskaða. Einnig barðist hann fyrir ýmsum hags- munum lamaðra. Stofnun hans, Christopher Reeve Foundation, síðar Christopher & Dana Reeve Foundation, vinnur áfram að því að styrkja hans hjartans mál. Dana Reeve (f. 1961, d. 2006) var bandarísk leik- og söngkona og baráttukona fyrir réttindum fatlaðra. Hún var gift Christopher Reeve og áttu þau einn son. Dana Reeve lést af völdum lungnakrabbameins, þrátt fyrir að hafa aldrei reykt. Hugsjóna- og baráttufólk REEVE-HJÓNIN Christohper og Dana Reeve

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.