Morgunblaðið - 20.03.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 20.03.2018, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 Hildur Gylfadóttir, jóga- og smíðakennari, á 50 ára afmæli ídag. Hún rekur ásamt fleiri Yogasmiðjuna. „Við bjóðum uppá fjölbreytta heilsurækt fyrir líkama og sál, t.d. hatha- og kundalini jóga, djúpslökun, námskeið sem heitir Stoð og styrkur og eru almennar líkamsræktaræfingar til að styrkja stoðkerfið. Síðan er- um við með Yogaflæði sem er mitt námskeið. Á fimmtudagskvöldum er alltaf frítt hjá okkur í Gongslökun. Í þessari viku hefjast tvö námskeið, „Hathayoga og djúpslökun“ og „Yoga gegn streitu og kvíða“. Næsta laugardag verður „Eróbik þemadagur í anda Jane Fonda“, Frekari upplýsingar eru á Facebook- síðu Yogasmiðjunnar. Hildur er einnig smíðakennari í Hamraskóla í Grafarvogi og kennir 1. til 7. bekk. „Ég er í stuðinu með krökkunum á daginn og fer svo í slökun í jóga seinnipartinn. Þetta er mitt yin og yang. Ég er einnig að vinna sem Thai Yoga nuddari. Thai yoga nudd & heilun er meðferð þar sem meðferðaraðilinn nuddar, teygir, togar og ruggar líkama viðtakanda, til að viðhalda orkuflæðinu til allra hluta líkamans. Þessi meðferð hentar öllum, t.d. ófrískum konum. Upplýsingar um þessa meðferð eru inni á Facebook-síðu minni, „Lunayoga Iceland“. Eiginmaður Hildar er Björn Sigurður Vilhjálmsson, sjálfstætt starfandi múrari. Samanlagt eiga þau fimm börn og átta barnabörn og það síðasta kom í fyrradag. Svo er eitt barnabarn á leiðinni. „Ég verð í vinnunni og með mínu jógafólki í dag og svo verður partí með fjölskyldunni í kvöld.“ Hjónin Hildur og Björn á brúðkaupsdegi sínum 6. október síðastliðinn. Jóga- og smíðakennari og Thai Yoga nuddari Hildur Gylfadóttir er fimmtug í dag Á sthildur Einarsdóttir fæddist í Búðinni á Raufarhöfn 20.3. 1933 og ólst þar upp til 19 ára aldurs. Hún var í Barnaskólanum og Unglinga- skólanum á Raufarhöfn, lauk prófi frá Gagnfræðaskóla Húsavíkur og útskrifaðist frá Hjúkrunarskóla Íslands í Reykjavík 1956. Var ekki allt á kafi í síld á Raufar- höfn á þínum uppvaxtarárum? „Jú, jú. Ég náði varla niður í botn á tunnunum þegar ég byrjaði að salta, 10-11 ára. Allir voru í síldinni sem vettlingi gátu valdið. Ég var líka sendill hjá rannsóknarstofu verksmiðjunnar og eftir vinnu þar skrapp maður niður eftir á kvöldin og saltaði í svona tíu tunnur. Helstu síldarspekúlantarnir á Ásthildur Einarsdóttir, fyrrverandi hjúkrunarforstjóri – 85 ára Á rölti í London Talið frá vinstri: Gerður Helga, afmælisbarnið, Helgi Kristmann, Haraldur og Einar Baldvin. Síld á Raufarhöfn og hjúkrun á Skaganum Hjónin Ásthildur og Helgi Kristmann, á leiðinni í British Museum. Reykjavík Matthías Karl Ís- feld Jóhannesson fæddist 2. mars 2017 kl. 15.03. Hann vó 4.170 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Eva Marý Ísfjörð Heiðarsdóttir og Jóhannes Ísfeld Eggertsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Láttu birtuna ekki trufla þig Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is PLÍ-SÓL GARDÍNUR Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 alnabaer.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.