Morgunblaðið - 20.03.2018, Page 41

Morgunblaðið - 20.03.2018, Page 41
»Hápunktur hátíðar-innar hjá nokkrum gestum var þó frekar óvæntur, þegar Björk gekk um sali Hörpu með höfuðskraut sem ekki er hægt að lýsa öðruvísi en mjög Bjarkarlegu og tók vel í beiðnir fólks um sjálfur með sér. AF SÓNAR Hallur Már Hallsson hallurmar@mbl.is Skipuleggjendur Sónar-hátíðarinnar hafa í gegn-um tíðina þurft að aðlagahana eftirspurn og að- stæðum hér á landi. Hátíðin í ár var styttri en undanfarin ár. Tvö kvöld með dagskrá í fjórum rýmum: Silfurbergi, Kaldalóni og Norður- ljósasal auk bílakjallarans. Eflaust er það fín lending að láta tvö kvöld duga og mögulega hentar það er- lendum gestum betur en mín til- finning var að þeir væru fleiri í ár en oft áður. Hinsvegar má alveg gera athugasemdir við það að rukka 20 þúsund krónur fyrir kvöldin tvö og það er eitthvað sem maður hefur heyrt á fólki að hafi fælt það frá því að mæta. Annað skipulagsatriði sem má setja út á er að selja bara bjórmiða sem ekki er hægt að fá endurgreidda ef eitt- hvað kemur upp á og ekki er hægt að kaupa sér einn bjór, bara fimm hið minnsta. En að hátíðinni sjálfri. Föstu- dagskvöldið fór rólega af stað, ég var mættur frekar snemma og það virtist vera sem margir væru að spara sig fyrir nóttina því dag- skráin stóð ansi langt fram á nótt. Silfurberg var því tómlegt þegar Blissful steig á svið í fyrsta skipti í þessari mynd. Svala og Einar geta samið fyrsta flokks popplög og þau nutu sín vel á stóra sviðinu og flutn- ingurinn var óaðfinnanlegur. Lík- lega væri auðveldari leiðin fyrir þau að keyra bara á Eurovision- smellinum „Paper“ og því virðing- arvert að sjá þau fara aðrar leiðir. Í Kaldalóni var raftónlistarkonan Silvia Kastel búin að stilla sér upp. Hún hefur vakið þónokkra eftirtekt en ég tengdi ekki við tónlistina sem virkaði fulleinföld. Aftur í Silfur- berg. Þar var Cyber komin á svið. Ég hef aldrei séð þetta band áður sem samanstendur af fjórum stelp- um sem rappa og syngja ofan á takta. Þær settu upp mjög skemmtilegt atriði þar sem þær notuðu leikmuni og voru klæddar í einhverjar furðulegar næntís- dragtir sem settu kómískan svip á atriðið. Auk þess geta þær samið lög sem límast á heilann, „I’m your new stepmom“ er mjög grípandi en líka ólíkt flestu öðru sem maður heyrir. Í lokin komu svo meðlimir Hatara á sviðið með leðurólarnar sínar og þrumuræðu sem sjálfur Hitler væri líklega stoltur af. Frá- bærir tónleikar og ekkert skrýtið að búið sé að bóka stelpurnar á 25 ára afmælishátíð Sónar í Barcelona í sumar. Það er mjög góð þróun ef íslenskir flytjendur eiga greiðari leið þangað vegna íslensku útgáf- unnar af hátíðinni. Þegar Vök fór á svið í Norður- ljósasalnum var orðið fjölmennara í húsinu. Sveitin hefur vaxið vel í gegnum árin og Margrét söngkona hefur útgeislun sem heldur athygli fólks algerlega. Vel gert. Bad Gyal var eitt af stærstu númerum hátíð- arinnar en hún heillaði mig ekki. Lítil spænskukunnátta hefur þar kannski eitthvað að segja. Silfur- berg var orðið troðfullt þegar Gus Gus byrjaði og það var ennþá troð- fullt þegar hún kláraði. Það segir manni oft ansi mikið um hvernig til tókst, engin þreytumerki á Bigga Veiru og Daníel Ágústi. Hápunktur hátíðarinnar hjá nokkrum gestum var þó frekar óvæntur, þegar Björk gekk um sali Hörpu með höfuð- skraut sem ekki er hægt að lýsa öðruvísi en mjög Bjarkarlegu og tók vel í beiðnir fólks um sjálfur með sér. Svipbrigðin á fólkinu eftir að hafa hitt goðsögnina hefðu ekki verið minna tilefni í stöðuupp- færslu. Fyrsta atriðið á laugardags- kvöldinu var hinn stórskemmtilegi serpentwithfeet. R&B-skotin fram- úrstefna, Barbie-dúkka á sviðinu og frábær söngvari sem hvatti fólk eindregið til að dansa á meðan það grætur. Vonandi segir þetta ein- hverjum eitthvað, en allavega eftir- minnilegir tónleikar. „Er einhver hér sem hefur farið á hestbak?“ spurði Elli Grill salinn. Jú, einhver hafði farið hestbak sem er náttúrlega tómt rugl og stór- hættulegt að mati Ella sem grillaði í salnum af töluverðri færni en ég get ekki sagt að tónlistin hafi skilið mikið eftir sig. Ben Frost var í Silfurbergi ásamt samverkamanni. Seiðurinn sem þeir brugguðu var virkilega flottur, þung undiralda og einhver galdur í gangi. Sviðið var sérstaklega flott þar sem búið var að strengja plastt- jald yfir sviðið og svo var myndum varpað á tjald fyrir aftan. Þetta er alltaf stór hluti af Sónar-upplifun- inni og í ár voru margar mjög flott- ar útfærslur á ljósum og myndrænu efni. Því miður var Hildur Guðna á sama tíma í Kaldalóni og þegar ég kom þangað var hún eiginlega búin, frekar svekkjandi. Maður vissi lítið við hverju var að búast af Underworld sem var stofn- uð árið 1980 en var upp á sitt besta um miðjan tíunda áratuginn. Ein- hver hnýtti í aldur meðlima tvíeyk- isins í aðdraganda hátíðarinnar. En það er lítil innistæða fyrir þeirri gagnrýni, Karl Hyde söngvari er jú fæddur árið 1957 en það er ekki að merkja þreytu hjá honum. Fólk sem fæddist árið 1994 þegar dubno- basswithmyheadman kom út gæti flest verið stolt af mjaðmahreyf- ingum á borð við þær sem Hyde bauð upp á. Það er líka áhugavert að sjá fólk í þessum geira tónlistar- innar eldast. Gamlir teknóhundar eru aðeins öðruvísi en gamlir rokk- hundar. Þess utan voru tónleikarn- ir líka frábærir með leysigeislum og öllu tilheyrandi. Hápunktarnir voru náttúrlega þegar lögin af fyrr- nefndri plötu voru spiluð og aldrei hef ég fundið gólfið í Silfurbergi dúa jafnmikið og á laugardaginn. Stjúpmömmur og rosknir teknóhundar Ljósmynd/Ásgeir Helgi Leikrænt Stelpurnar í Cyber settu upp skemmtilegt atriði þar sem þær notuðu leikmuni og voru klæddar í furðu- legar næntís-dragtir sem settu kómískan svip á atriðið. Hér sjást tvær af fjórum Cyber-konum á sviði. Ljósmynd/Ívar Eyþórsson Galdur Ben Frost og samverkamaður hans brugguðu bragðmikinn seið. Óþreyttur Karl Hyde, söngvari Underworld, er fæddur árið 1957 en bar þess engin merki að vera þreyttur á tónleikunum á laugardaginn. Ljósmynd/Ásgeir Helgi MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 ICQC 2018-20 PÖNTUN AUGLÝSINGA: fyrir mánudaginn 16. apríl. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ Fatnaður fyrir brúðhjónin, förðun, hárgreiðsla, brúðkaupsferðin, veislumatur, veislusalir og brúðargjafir eru meðal efnis í blaðinu. Brúðkaupsblað fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 20. apríl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.