Morgunblaðið - 20.03.2018, Page 39

Morgunblaðið - 20.03.2018, Page 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2018 kenna við LSD-vímu er ágerist í lok- in. Hér var það að vísu ópíum, en út- koman ekki ósvipuð. Tortelier stjórnaði að vanda sprotalaust – og nú einnig nótnalaust, til marks um þaulþekkingu hans á þessu tíma- mótaverki. Árangurinn var eftir því. Gamli stríðsfákurinn lifnaði heldur betur við í eldsnarpri nálgun hlutaðeigandi og varð beinlínis hörkuspennandi undir hvatvirkt innsærri stjórn landa tónskáldsins; á köflum svo að jafnaðist á við að upplifa hljómkvið- una í fyrsta sinn. Það var verulega gaman að heyra nærri fullskipaða strengjasveit (16- 14-12-8-8) spila svona samtaka af bæði leiftrandi hrynskerpu og þjálli mýkt – og m.a.s. að viðbættum „nýj- um“ effektum á við víðáttuberg- málin milli dempaðra strokfæra og hjarðpípna í III. þætti (Í sveitinni). Fyrir utan sópandi valsinn í II. (Dansleikur), dulhroll aftökumarsins (IV.) og skrípamyndina af hinni heittelskuðu á nornagnípu í fínaln- um undir dómsdagsáminningu Dies irae. Eini heyrnarsviptirinn þar síðast var af hlandódýru klukknasándi slagverks, er hljómaði eins og ryðg- uð afgangsjárnplata úr blikksmiðju. Að öðru leyti – bravissimo! Mattila Söngkonunni finnsku var tekið með kostum og kynjum utan úr sal. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Í kvöld verður þriðja tilraunakvöld hljómsveitakeppninnar Músíktil- rauna haldið í Hörpu og hefst kl. 19.30. Fjórar hljómsveitir eru komnar áfram í úrslit og í kvöld bætast tvær við. Í kvöld keppa átta hljómsveitir eða einstaklingar, en einherjar eru áberandi, ýmist einir á ferð eða studdir hljóðfæraleikurum. Ateria Vinkonurnar Ása Ólafsdóttir, Eir Ólafsdóttir og Fönn Fannar- dóttir skipa tríóið Ateria. Ása spil- ar á gítar og syngur, Eir Ólafs- dóttir syngur líka og spilar á bassa og selló og Fönn Fannardóttir spilar á trommur. Þær hafa allar stundað tónlistarnám og tekið þátt í Stelpur rokka. Ása og Eir eru systur og Fönn er frænka þeirra. Hljómsveitin var stofnuð haustið 2017 og æfir í bílskúr í Vestur- bænum. Morii Morii er framsækin rokk- hljómsveit með áhrifum úr poppi og þungarokki skipuð þeim Ásþóri Bjarna Guðmundssyni bassaleik- ara, Fannari Pálssyni gítar- og hljómborðsleikara, Kristjáni Jóns- syni trommuleikara og Bjarna Þorgeiri Bjarnasyni söngvara. Þeir eru úr Reykjavík og á aldrinum 21 til 22 ára. Kvöld einherjanna Nótt Hljómsveitin var stofnuð í febrúar sl. af Steingrími Daða Kristjánssyni sem hafði samið nokkur lög og var að leita að fólki til að taka þátt með sér í Músíktilraunum. Hann fékk til liðs við sig Pétur Sigurdór Pálsson bassaleik- ara, Matthías Björn Gíslason rafheila, Jóhann Freyr Jóhannsson gítarleik- ara og Hákon Aðalsteinsson hljómborðsleikara og bakraddasöngvara. Þeir eru úr Hafnarfirði, á aldrinum 16 til 17 ára og segja að það sem einkenni Nótt sé andrúmsloftið og að orkan í lögunum sé ólík öðrum hljómsveitum. Agnarsmár Agnar Dofri Stefánsson er rappari og notar listamanns- nafnið Agnarsmár. Hann er 22 ára Reykvíkingur og segist hafa byrjað að rappa þegar hann var 13 ára en tók sér svo pásu og byrjaði aftur að rappa þegar hann var 17 ára. Jóhanna Elísa Jóhanna Elísa Skúla- dóttir er 22 ára söngkona, píanó- leikari og lagasmiður úr Reykjavík. Hún er yfir sig hrifin af strengjum og fékk til liðs við sig Önnu Katrínu Hálfdanardóttur fiðluleikara, Klöru Rosatti lágfiðluleikara, Soffíu Jóns- dóttur hnéfiðluleikara og Snorra Örn Arnarson bassaleikara. Black Bar Reykvíkingurinn Bjarmi Alexander notar listamannsnafnið Black Bar. Hann er 25 ára, leikur á gítar og vélar um loopstation, drum-pad og tölvu. Ljósfari Hljómsveitin er hugar- fóstur gítarleikarans Árna Svavars Johnsen og bassaleikarans Snorra Arnar Arnarsonar. Þeir fengu söngvarann Sigvalda Helga Gunn- arsson til liðs við sig. Fljótlega kom í ljós að meira vantaði inní og þá kom til sögunnar hljómborðsleikar- inn Benjamín Gísli Einarsson og loks trommuleikarinn Kristófer Nökkvi Sigurðsson. Þeir eru úr Reykjavík, á aldrinum 21 til 28 ára. Darri Tryggvason Fyrir um tveimur árum byrjaði Darri, sem er 23 ára, að semja texta og syngja og hyggst nota Músíktilraunir sem stökkpall til að koma sér á framfæri. Hann leikur sjálfur undir á píanó. Sænskri fjöl- miðlar hafa síð- ustu daga minnst Bennys Fredriks- sons sem var lengi leikhús- stjóri Borgar- leikhússins í Stokkhólmi og stýrði síðan Menningarhúsinu svonefnda. Fred- riksson féll fyrir eigin hendi í Ástra- líu um helgina, þar sem hann var á ferð með eiginkonu sinni, óperu- söngkonunni dáðu Anne Sofie von Otter, sem átti að koma fram í óp- eruhúsinu í Sydney í vikunni. Í kjölfar mikillar umfjöllunar í fjölmiðlum undir lok síðasta árs, um stjórnunarstíl sem hann á að hafa beitt, sagði Fredriksson upp störfum við Menningarhúsið. Gagnrýnin á hinn stórnunarstíl Fredriksson tengdist #Metoo-umræðunni; hann var þó ekki sakaður um kynferðis- legt ofbeldi heldur gagnrýndu til að mynda um 40 samstarfsmenn hann í grein í dagblaðinu Aftonbladet fyrir stjórnunaraðferðirnar. Umboðsmaður von Otter segir fjölskylduna í djúpri sorg og sakna eiginmanns, föður og afa. Fyrrver- andi samstarfsmenn Fredrikssons minnast hlýlega ástríðufulls leik- húsmanns, þar á meðal sumir þeirra sem gagnrýndu hann opinberlega. Sagði upp og svipti sig lífi Benny Fredriksson Atvinna Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 7/9 kl. 20:00 139. s Mið 12/9 kl. 20:00 141. s Sun 16/9 kl. 20:00 143. s Sun 9/9 kl. 20:00 140. s Fim 13/9 kl. 20:00 142. s Lau 22/9 kl. 20:00 144. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas. Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 13. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Sun 6/5 kl. 20:00 14. s Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Mið 9/5 kl. 20:00 15. s Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Sun 29/4 kl. 20:00 10. s Fim 10/5 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 16. s Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Slá í gegn (Stóra sviðið) Fim 22/3 kl. 19:30 Auka Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn Heillandi verk um höfnun og hindranir. Stríð (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l Efi (Kassinn) Mið 21/3 kl. 19:30 Síðustu Fim 22/3 kl. 19:30 Síðustu Margverðlaunað og spennandi verk ! Faðirinn (Kassinn) Lau 24/3 kl. 19:30 28.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 30.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 29.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 31.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Ég get (Kúlan) Sun 25/3 kl. 13:00 Síðasta Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Oddur og Siggi (Á flakki um landið) Þri 20/3 kl. 11:00 Reykjanes Þri 10/4 kl. 11:00 kirkjub.klaustur Þri 17/4 kl. 11:00 Selfoss Mið 21/3 kl. 11:00 Reykjanes Mið 11/4 kl. 11:00 Höfn Þri 24/4 kl. 11:00 Hveragerði Mán 9/4 kl. 11:00 Vík Mán 16/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 15/5 kl. 11:00 Vestm.eyjar Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00 Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30 Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30 Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.