Morgunblaðið - 17.04.2018, Side 2
Hvorki fleiri né færri en 302 bílar af
hverjum eitt þúsund eru seldir í
Kína. Ísland er afar neðarlega á
lista yfir stærstu bílamarkaði en á
þar reyndar eitt met fyrir árið
2017.
Í Kína voru seldar í fyrra rúm-
lega 28 milljónir bíla, eða
28.271.791, sem eru 30,2% af heild-
arsölunni um heim allan.
Bandaríkin eru næststærsti
markaðurinn með 17.237.702 selda
bíla eða 18,4%. Og í þriðja sæti er
Japan með 5.090.408 bíla selda sem
er 5,4% hlutdeild í heildinni.
Sé litið á söluna miðað við bíla á
hvert þúsund íbúa lendir Kína fyrir
neðan bæði þessi lönd, eða 20 bíla á
hvert þúsund. Í Bandaríkjunum
voru nýskráðir 52 bílar á hverja
þúsund íbúa í fyrra og 40 í Japan.
Ísland tekur toppsætið
Og það er einmitt þegar litið er
til þessarar viðmiðunar, höfðatöl-
unnar frægu, sem Ísland tekur
toppsætið. Þótt þar hafi ekki verið
nýskráðir nema 21.204 bílar í fyrra
jafngildir það engu að síður 63 ný-
skráningum á hverja þúsund lands-
menn. Hvergi er hlutfall þetta
hærra á byggðu bóli. Aftur á móti
er íslenski markaðurinn aðeins sá
86. stærsti í heimi.
Af Norðurlöndunum er Danmörk
í öðru sæti þegar miðað er við
höfðatölu, eða með 45 bíla selda á
hvert þúsund íbúa. Svíþjóð er á nær
sama stað með 44 bíla, Noregur
með 37 og Finnland 24. Sænski
markaðurinn er stærstur þeirra
norrænu með 433 þúsund nýskrán-
ingar í fyrra, en það nemur 0,5% af
heimsmarkaði, en á honum er Sví-
þjóð í 28. sæti.
Danmörk er í öðru sæti á Norður-
löndunum með 257 þúsund bíla,
Noregur í þriðja með 194 þúsund
bíla og Finnland með 131 þúsund.
Ísland rekur þar lestina með 21.204
bíla. Á heimsvísu er Danmörk 37.
stærsti bílamarkaður heims, Nor-
egur í 41. sæti og Finnland 48.
Sé litið til þess hvaða lönd önnur
en þau þrjú áðurnefndu fylla lista
yfir 10 stærstu bílamarkaði heims
er niðurstaðan þessi fyrir árið 2017:
4. Þýskaland 3.700.758 (4,0%)
5. Indland 3.223.429 (3,4%)
6. Bretland 2.903.058 (3,1%)
7. Frakkland 2.541.321 (2,7%)
8. Brasilía 2.172.452 (2,3%)
9. Ítalía 2.140.248 (2,3%)
10. Kanada 2.043.615 (2,2%)
agas@mbl.is
Mest bílasala á mann á Íslandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýjir bílar í Sundahöfn. 21.204 nýir bílar í fyrra jafngildir 63 nýskráningum á hverja þúsund landsmenn. Hvergi
er hlutfall þetta hærra á byggðu bóli. Aftur á móti er íslenski markaðurinn aðeins sá 86. stærsti í heimi.
Gamla góða höfðatalan, enn og aftur
2 | MORGUNBLAÐIÐ
Hjá bílaumboðinu BL eru um 10%
starfsmanna af erlendum uppruna.
Nýverið var þeim öllum boðið að
taka stöðupróf í íslensku og hafa
fjórtán þeirra nú hafið nám á 1.
stigi í íslensku.
Kennt er í tvær klukkustundir í
einu í tíu skipti og lýkur námskeið-
inu í lok maí. Kennslan er á vegum
Retor fræðslu sem býður fyr-
irtækjum slíka þjónustu.
Að sögn Önnu Láru Guðfinns-
dóttur, starfsmannastjóra BL, legg-
ur fyrirtækið áherslu á íslensku
sem leiðandi tungumál í starfsemi
sinni.
„Í því fjölmenningarsamfélagi
sem Ísland er í dag er nauðsynlegt
að fyrirtækin aðstoði erlent starfs-
fólk sitt við að verða sem virkastir
þátttakendur í samfélaginu. Í því
sambandi er íslenskukunnátta á
meðal lykilatriða í aðlögun að sam-
félaginu og í tengslamyndun við
aðra, ekki síst samstarfsfólk og við-
skiptavini,“ segir Anna Lára.
agas@mbl.is
Hinir erlendu starfsmenn BL eru sestur á skólabekk. Að sögn Önnu Láru Guðfinnsdóttur, starfsmannastjóra
BL, leggur fyrirtækið áherslu á íslensku sem leiðandi tungumál í starfsemi sinni.
Erlendir starfsmenn BL læra íslensku
Það er leikur að læra – íslensku!
Verulegur samdráttur hefur verið
það sem af er ári á sölu dís-
ilknúinna bíla hjá frændum okkar
Norðmönnum. Má segja að þeir
séu á harðahlaupum undan dís-
ilbílnum.
Ekki þarf að fara mörg ár aftur
í tímann til að finna 75% hlutdeild
dísilbíla í nýbílamarkaðinum
norska. Bensínvélin þótti Norð-
mönnum ekki henta nema í smábíl-
um, en á þeim tímum voru rafbílar
ekki komnir til sögunnar.
Dísill í skammarkrókinn
Þetta hefur algjörlega snúist á
haus í seinni tíð og í nýliðnum
marsmánuði var hlutdeild dís-
ilknúinna fólksbíla í nýskráningum
einungis 16%. Hefur hlutfallið
aldrei verið minna, en það var
24,6% í mars í fyrra og þá var tal-
að einnig um hrun. Mætti því segja
að bílar sem brenna dísilolíu séu
komnir í skammarkrók. Hafa þeir
tapað neytendum til rafbíla og þá
sérstaklega til tengiltvinnbíla.
En hvers kyns bíla kaupa norsk-
ir neytendur í staðinn? Í fyrsta
sæti eru rafbílar, sem ekki þarf að
koma á óvart í ljósi þróunarinnar
á norskum bílamarkaði undanfarin
misseri. Af nýskráðum bílum í
mars voru 37% hreinir rafbílar,
26% tvinnbílar og obbinn af þeim
tengiltvinnbílar.
Það er svo athyglisvert, að hlut-
deild bensínbíla er einnig á nið-
urleið í Noregi, þó ekki með jafn
dramatískum hætti og í tilfelli dís-
ilbíla. Hlutfall þeirra í nýskrán-
ingum í mars var aðeins 20% en í
mars í fyrra var það 26,4%.
agas@mbl.is
Dísilbílum hefur verið fundið það til foráttu að þeir spúi lífshættulegum
gastegundum og sótögnum. Norðmenn hafa sett þá í skammarkrókinn.
Norðmenn flýja dísilinn
Dísilbílarnir í skammarkrókinn
Hann heitir því eðla nafni Miss R,
eða ungfrú R, og er sagður snar-
astur í snúningum allra frækinna
ofurbíla. Hann er afurð bílsmiðj-
unnar Xing Mobility sem er lítið
frumkvöðlafyrirtæki á eynni Taív-
an.
Með rafbílaþróuninni hefur
reynst unnt að framleiða fram-
úrskarandi öfluga bíla og nýfyr-
irtæki hafa mörg hver lagt í þann
pott með bílsmíðum sínum.
Miss R er gott dæmi þar um en
hann býr yfir eins megavatts afli
og er sagður komast úr kyrrstöðu
og upp á 100 km/klst ferð á aðeins
1,8 sekúndum.
Til samanburðar er því haldið
fram að næsti Roadster, opni
sportbíllinn frá Tesla, muni ná
96,5 km/klst ferð úr kyrrstöðu á
1,9 sekúndum. Þá var uppgefið við
nýlega frumsýningu Concept Two-
ofurbílsins sem Rimac í Króatíu er
að þróa að hann muni komast í
hundraðið á 1,85 sekúndum með
1,5 megavatta aflrás sinni.
Hröðun af þessu tagi fer að
nálgast mörk þess að vera í raun
möguleg.
Rafbíll Xing Mobility skilur sig
frá hinum tveimur í því að hann er
einnig gerður til utanvegaaksturs.
Í þeirri uppstillingu, utanvega-
ham, mætti prófa hann í rall-
brautum.
Fyrirtækið Xing Mobility sér-
hæfir sig í smíði aflrása fyrir at-
vinnu- og iðnaðarbíla og er til-
gangurinn með smíði Miss R fyrst
og fremst sá, að sýna fram á þá
tæknifærni sem fyrirtækið býr yfir
á sviði rafbílasmíði.
Boðar Xing Mobility frumgerð
götufærrar Miss R seinna í ár. Við
af því taki svo smíði 20 eintaka af
bílnum og muni ódýrasta útgáfa
hans kosta milljón dollara, eða um
100 milljónir íslenskra.
agas@mbl.is
Ungfrúin aðeins
1,8 sekúndur í
hundraðið
Það verður sennilega seint sem not verða fyrir hið snarpa upptak Miss R
ofurbílsins. Það sakar hins vegar ekki við hraðakstur á keppnisbrautum.
Snaggaraleg og snögg upp líka