Morgunblaðið - 17.04.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 17.04.2018, Síða 8
Lincoln Aviator 2019 jeppinn var afhjúpaður á bílasýningunni í New York um daginn við góð- ar undirtektir viðstaddra. Þessi stílhreini jeppi skartar breyttu útliti og þremur sætaröðum. Bílasýningin í New York sem lauk 8. apríl var enn eitt tækifærið fyrir helstu bílsmiði heims að sýna stoltir nýjustu bíla sína og þróunarbíla. Þar gafst ekki síður stund til að veita gestum innsýn í nýjustu útgáfur sjálfaksturstækni. Sérfræðingar segja þó, að langur vegur sé enn í að óskoraðir sjálfakstursbílar bruni um götur og vegi. Lúxusbílar og ofurbílar hafa löngum sett mark sitt á sýninguna í New York og var engin undantekn- ing á því í ár. Jeppar og jeppar og aftur jeppar voru annars mál mál- anna. En meðal bíla sem þóttu bera af á sýningunni voru þrír sem höfða til þeirra sem vilja ekki kaupa úr hófi fram dýra bíla. Tveir þessara voru fulltrúar nýrrar kynslóðar við- komandi módels, Toyota RAV4 og Subaru Forester. Þeir tilheyra „heitasta“ bílaflokknum um þessar mundir, jepplingaflokki. Sá þriðji er svo hinn rennilegi stallbakur Nissan Altima, sem með fögrum línum og snjallri tækni ætlar að reyna að lifa af í ört þverrandi flokki. Toyota RAV4 hefur mælst vel fyrir Toyota RAV4 hefur mælst vel fyr- ir í Bandaríkjunum sem áreið- anlegur heimilisbíll og nýja útgáfan vakti hrifningu fyrir beitt og skarpt en aðlaðandi útlit. Sjálfir sögðu fulltrúar Toyota að bíllinn hefði „töfra stærri og öflugri jeppa“. Stilla má hann til aksturs á margskonar yfirborði utanvegar, svo sem sandi eða aurbleytu. Hann verður í boði með fjögurra strokka 2,5 lítra bens- ínvél en einnig sem tvinnbíll með drifbúnaði er eykur snúningsvægi afturhjólanna, sem bætir snerpu er tekið er af stað. Bíllinn verður jafn- framt búinn þróuðum öryggisbúnaði sem staðalbúnaði, meðal annars sjálfvirkri bremsu til að forða aftan- ákeyrslu og einnig búnaði er heldur bílnum á akrein sinni. Subaru Forester á sinn trausta aðdáendahóp og kemur því ekki á óvart þótt útlit frumburðar þriðju kynslóðarinnar sé býsna keimlíkt út- liti forverans. Nýi bíllinn tekur hins vegar fleiri farþega og farang- ursrýmið hefur stækkað. Örygg- isbúnaður er meiri og skilvirkari og drif á öllum fjórum hjólum er stað- allinn. Fylgist með andlitsdráttum Meðal nýs búnaðar er tækni er fylgist með andlitsdráttum öku- manns og grípur inn í með hljóð- merkjum ef hann sýnist vera að líða út af vegna þreytu eða hafa látið af- vegaleiðast frá stjórn bílsins. Er þetta fyrsti bíllinn sem ekki telst til lúxusbíla sem er með búnað þennan, að sögn Tom Doll, forstjóra Subaru í Ameríku. Þá er Forester eins og RAV4 einnig með sjálfvirka neyð- arbremsu og akreinastýringu. Bíll- inn er með nýrri útgáfu af 2,5 lítra og fjögurra strokka bensínvél með aukinni endingu og brúkar sjö lítra á hundraðið á þjóðvegum úti. Til meiri gagnsemi í utanvegaakstri hefur hæð undir lægst punkt verið aukin í 23 sentimetra. Nissan gerir sér vonir um að með nýju útliti og nýjum tæknibúnaði haldi ný útgáfa Altima velli og haldi í kaupendur sem annars myndu yf- irgefa meðalstóra stallbaka og ganga á vit jepplinga í staðinn. Í boði verður útgáfa með fjórhjóladrifi, sem ætlað er að styrkja stöðu bílsins gagnvart helstu keppinautunum, Toyota Camry og Honda Accord. Stallbakurinn á í vök að verjast Samkvæmt rannsóknum sem gerðar hafa verið fyrir Nissan völdu margir kaupendur, einkum í norð- urríkjum Bandaríkjanna, jeppa frekar en stallbaka vegna þess að þeir vildu njóta fjórhjóladrifs í slæmri vetrarfærð. Í stað V6-vélar verða í boði annaðhvort venjuleg 2,5 lítra fjögurra strokka vél í Altima eða fjögurra strokka vél með túrbói. Sjálfvirk neyðarbremsa er stað- albúnaður í öllum útgáfum auk ann- ars öryggisbúnaðar. Þar á meðal er sjálfvirk bremsa sem stöðvar bílinn í akstri afturábak nemi skynjarar fólk eða aðra fyrirstöðu sem ökumaður fær ekki séð í bakkmyndavél. Að frátöldum þessum þremur bíl- um hefur sýningin í New York fyrst og fremst snúist um stóra jeppa og smáa. „Nytsemin er í forgrunni og sum sölumikil módel birtust breytt og bætt og lúxusframleiðendur héldu áfram að auka á vöruúrvalið,“ sagði greinandinn Stephanie Brinley hjá ráðgjafafyrirtækinu IHS Markit í umfjöllun CBS-sjónvarpsstöðv- arinnar um sýninguna. Nýir lúxusjeppar Og til marks um að fínheitin séu ekki að fara af sýningunni mættu tveir bandarískir lúxusbílsmiðir til leiks með nýja lúxusjeppa. Lincoln hefur ákveðið að hressa upp á Av- iator-merkið með stílfögrum með- alstórum jeppa með þrjár sætaraðir. Og Cadillac sýndi XT4, smájeppa sem stefnt er til keppni gegn evr- ópskum bílum á borð við BMW X3, Mercedes-Benz GLC Class og Audi Q5. Í Aviator hefur verið leitað eftir því að létta ökumanni lífið og minnka álagið á hann, að sögn talsmanna Lincoln. Í því sambandi verður bíll- inn tæknivæddur í meira lagi. Hægt verður að læsa honum, aflæsa og ræsa vélina með snjallsíma. Þá verð- ur upplýsingum um hraða og fleira er varðar aksturinn varpað upp á framrúðuna, sjónlínuskjá, svo öku- maður þurfi ekki að taka augun af veginum í leit að þeim í mælaborð- inu. Eintakið af Aviator á sýning- unni í New York var forsmíð- iseintak. Jeppinn fer í framleiðslu nálægt næstu áramótum og kemur á götuna 2019, með bensínvél eða sem tengiltvinnbíll. Um árabil framleiddi Cadillac að- eins einn jeppa, hinn risastóra Esca- lade. Núna ætlar bílsmiðurinn bandaríski að skella sér í slaginn í ört vaxandi flokki lúxusjeppa af minni gerðinni. XT4-bíllinn sem tróð upp á sýningunni í New York er að- eins minni en fyrri jepplingur sem Cadillac hafði áður kynnt til sög- unnar, XT5. Nýja útgáfan er að öllu leyti ný og byggð upp af nýjum und- irvagni. XT4 verður knúinn tveggja lítra forþjappaðri fjögurra strokka bensínvél sem tengd verður níu hraða sjálfskiptingu. Hinu meitlaða útliti er ætlað að höfða til yngri kaupenda. Bíllinn hefur verið hann- aður með það í huga að vera sem rúmbestur af jepplingi að vera. Hann kemur á götuna næstkomandi haust. Hringurinn lokast Með sýningunni í New York lokast bílasýningahringurinn banda- ríski ár hvert. Hófst hann með sýn- ingunni í Los Angeles sl. haust og síðan lá leiðin til Detroit, Chicago og Washington og þaðan til New York. Inn í þennan hring er svo tæknisýn- ingin CES í Las Vegas í janúar farin að troða sér, enda mikið þar um nýj- ungar í boði á sviði stafrænnar tækni sem ryður sér til rúms í far- artækjum. Í sýningarhöllinni Javits Centre á Manhattan í New York gat að líta nýja bíla, gamla bíla og fróð- lega þróunarbíla. Fulltrúar banda- rískra bílsmiða kvörtuðu þar undan íþyngjandi reglum og ráðstöfunum stjórnvalda sem þeir sögðu leiða til verðhækkana. Kostaði bandaríski meðalbíllinn nú 36.000 dollara og fældu verðhækkanirnar kaupendur frá. Sparneytni og vaxandi raf- eindabúnaður sem kröfur væru gerðar um væru ekki neytendum að skapi. Bílgreinunum væri auk þess stefnt í hættu með auknum reglu- gerðum. Allt um það, þá var að sjá undraverða og fallega bíla, aðdáun- arverða hönnun, íburðarmikil inn- anrými, áður óþekktan tæknibúnað, einstök gæði og byltingarkenndar aflrásir. agas@mbl.is Alþjóðlegu bílasýningunni í New York nýlokið Denis Le Vot, nýr forstjóri Nissan í Norður-Ameríku, stillir sér upp við hlið 2019 árgerðar af Nissan Altima á sýningunni í New York. Bíllinn þótti meðal hinna markverðustu í New York. Fimm bílar stóðu upp úr Lúxusbílar og ofurbílar hafa löngum sett mark sitt á alþjóðlegu bíla- sýninguna í New York og var engin und- antekning á því í ár. Fyrirsæta stillir sér upp við hlið 2019 árgerðarinnar af Cadillac CT6 V-Sport, sem er sérlega rennilegur bíll. Toyota frumsýndi talsvert mikið breyttan Toyota RAV4 2019 á bílasýningunni í New York. Þannig lítur 2019 árgerðin af Subaru Forester út, er hulunni var svipt af honum með viðhöfn í New York. AFP 8 | MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.