Morgunblaðið - 17.04.2018, Síða 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
T
vennt hefur mátt taka sem
gefnum hlut í heimi
bílanna á síðustu miss-
erum; annars vegar er
það stríður straumur smágerðra
borgarjeppa frá nánast hverjum
framleiðanda sem vera skal, og
hins vegar að ólíklegustu sport- og
lúxusbílaframleiðendur eru að
fikra sig yfir á jeppamarkaðinn.
Það sem leit út fyrir að vera
einkaframtak hjá Porsche með
kynningu og framleiðslu á Ca-
yenne fyrir 15 árum hefur smitað
út frá sér í ólíklegustu afkima,
eins og tíundað var reyndar í síð-
asta Bílablaði Morgunblaðsins. Til-
veran er orðin ansi öfugsnúin frá
því sem áður var þegar ítalskir
framleiðendur á borð við Ferrari
og Lamborghini hafa gefist upp á
því að streitast við og kynna jeppa
til sögunnar í sínu nafni. Annar
nafntogaður ítalskur framleiðandi,
Alfa Romeo, hefur að sama skapi
bæst í hópinn og fyrsti jeppinn frá
þessu fornfræga merki – Stelvio –
er kominn á klakann.
Útlitið leynir ekki upprunanum
Í gegnum tíðina hafa Alfa Ro-
meo-bílar verið býsna auðþekkj-
anlegir ásýndum, bæði gegnum
blómaskeiðið frá 1950 til 1975, og
svo þegar framleiðandinn átti stutt
„comeback“ í kringum síðustu
aldamót með 156- og 166-týpunum.
Rétt eins og þeir bílar minntu
rækilega á fornfræga sportbíla frá
Alfa Romeo þá gerir nýjasta kyn-
slóðin það líka; Giulia, Giulietta og
jeppinn Stelvio. Auðþekkjanlegt
framgrillið líkist engu öðru og
ljóst hvaða bíll er hér á ferð. Þetta
er skynsamleg hönnunarstefna hjá
þeim ítölsku og þar með er tónn-
inn gefinn fyrir yfirbygginguna
eins og hún leggur sig. Það er erf-
itt að ímynda sér að þessi bíll gæti
átt rætur að rekja til annars lands
en Ítalíu. Hönnunin er full af
ítalskri „sprezzatura“-stemningu
en þó eru bönd á útlitinu. Þetta er
straumlínulöguð naumhyggja, al-
sett ramm-ítölskum áherslupunkt-
um.
Framendinn er þrælvel heppn-
aður og allir sem áður hafa kunn-
að að meta Alfa Romeo fá vafa-
laust hlýju í hjartað við að horfa á
Stelvio. Töffaraleg næstum illileg
framljósin bera með sér sjálfs-
traustið sem einkennir hönnunina
alla, eftir rennilegum hliðunum og
aftur á breiðan skotthlerann með
vel hallandi rúðu og vígalegar inn-
felldar krómhulsur á púströrunum.
Útlitslega er vart snöggan blett að
finna á Alfa Romeo Stelvio. Þetta
er í stuttu máli sagt framúrskar-
andi vel heppnaður sportjeppi
hvað útlitið varðar – hvert sem lit-
ið er.
Smart innrétting, en
ekki gallalaus
Ef yfirbygging Stelvio ber
ítalskri smekkvísi glöggt vitni þá
er hið sama upp á teningnum inn-
andyra. Stílhrein hönnun með
býsna smart smáatriðum hér og
hvar sem fá mann til að brosa út í
annað yfir sér-ítalskri hönn-
unarvitund. Viðarlína frá mæla-
borði og að farþegahurðinni setti
skemmtilegan svip á innrétt-
inguna, alveg ekta Ítalíuskapur að
hafa ræsingarhnappinn í stýrinu
en ekki hægra megin við það eins
og nærfellt allir aðrir, fallega
hannað stýri – í stuttu máli sagt er
efnisvalið og útbúnaður allur ljóm-
andi. Tvennt verð ég þó að setja út
á. Smæð upplýsingaskjásins, ekki
síst af því að það hefði hæglega
verið hægt að hafa hann stærri í
innréttingunni. Meira er betra
þegar skjárinn er annars vegar.
Hitt eru svo framsætin. Þau eru
þægileg, það vantar ekki, en þegar
bíll er gerður til að höndla vel
hraðan akstur er nauðsynlegt að
dýpka sætin eilítið, hafa þau að-
eins meiri „fötur“ með almennileg-
um hliðarstuðningi. Þarna vantar
aðeins upp á hinn forna anda Alfa
Romeo; að búast við því að bílnum
verði stundum ekið hratt.
Ökumaðurinn í essinu sínu
Alfa Romeo er – í sögulegu sam-
hengi – bíll sem hannaður er fyrst
og síðast fyrir ökumanninn. Þeir
Það er svona sem Ítalir ganga frá hlutunum. Hér hefur tekist að láta frumlega og næstum framúrstefnulega hönnun mæta praktískum atriðum og það sem sóma.
Ítölsk fágun að
hætti Alfa Romeo
Morgunblaðið/RAX
Þríhyrningslaga framgrillið og nánast ógnvekjandi framljósin gefa Alfa
Romeo Stelvio einkar flottan svip. Sögulegt merkið skemmir ekki fyrir.
Voldugar krómhulsur á púströrunum gefa annars einföldum afturend-
anum ómetanlegan svip. Vel gert, Alfa Romeo – vel gert.
+
Útlit, hönnun innanrýmis, afl.
–
Lítill skjár í innréttingu.