Morgunblaðið - 17.04.2018, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11
bílar sem skópu nafn Alfa Romeo
hér á áratugum áður voru teikn-
aðir og smíðaðir út frá tiltölulega
einfaldri pælingu: farþegar skipta
ekki máli, farangursrými skiptir
ekki máli, sparneytni skiptir ekki
máli. Aðeins útlitið og svo ánægja
ökumanns skiptir máli. Þetta er
kannski svolítil einföldun, en samt
ekki. Tilgangurinn með þessum
bílum var akstursánægja. Það er
vitaskuld ekki vænlegt til árang-
urs að hugsa hlutina með þessum
hætti nú til dags, en það er með
mikilli ánægju sem undirritaður
staðfestir hér með að Stelvio er
bíll akstursánægjunnar, hiksta-
laust!
Þrjár mismunandi akstursstill-
ingar standa ökumanni til boða
með þar til gerðum snúningsrofa
þar sem D stendur fyrir Dynamic,
N fyrir Natural og A fyrir Adv-
anced Efficiency, eða DNA. Vel
spilað, Alfa Romeo.
N, fullu nafni Natural, er ígildi
þess er kallast Comfort í flestum
bílum; allt á meðalstillingu. Stelvio
er ekki amalegur í hvunndagsgall-
anum en hann er hreinlega geggj-
aður í djammgallanum, Dynamic.
Meira urr í vélinni, stífari fjöðrun,
nákvæmari stýring, meira
bremsuviðbragð – hrikalega gam-
an! Reyndar er þá fjöðrunin svo
hörð að helst hentar nýlega mal-
bikuðum stofnbrautum. Misfellur í
misvel frágengnum vistgötum og
botnlöngum fara allar rakleiðis
upp í sitjandann og vissara að
skipta þar yfir í eitthvað mýkra,
N eða A eftir atvikum. Það er líka
praktískara því Stelvio verður
býsna þorstlátur, nánast drykk-
felldur, þegar hann fer á kostum í
D-ham, satt að segja. En maður
lifandi hvað það er gaman að taka
þennan bíl til kostanna og keyra
hann svolítið. Í A-stillingu var bíll-
inn tekinn í bíltúr um malarvegi í
Heiðmörk og plumaði sig fantavel,
en það þarf ekki að koma neinum
á óvart þegar sagt er að þessi bíll
er frekar hugsaður fyrir vegi en
vegleysur. Ítölsk fágun er almennt
hugsuð fyrir malbikið.
Geysivel heppnuð endurkoma
Það verður því ekki annað sagt
en endurkoma Alfa Romeo fari vel
af stað með komu og kynningu
Stelvio hér á landi. Fólksbíllinn
Giulia hefur að sama skapi fengið
fína dóma erlendis og sannarlega
tilhlökkunarefni að máta hann hið
sama. Þá má líka láta sig hlakka
til þess að fá að spreyta sig á Alfa
Romeo Stelvio Quadrifoglio en sú
útfærsla eignaði sér titilinn „hrað-
skreiðasti framleiðslujeppi heims“
í september síðastliðnum er hann
fór hinn sögufræga Nürburgring-
hring á sjö mínútum og 51,7 sek-
úndum. Lítill fugl hvíslaði því að
mér að hans gæti vel verið von –
krossum putta!
Grunngerðin af Alfa Romeo
Stelvio er á rétt tæpar átta millj-
ónir, sem telst vel viðunandi fyrir
bíl sem er í senn fallegur,
skemmtilegur í akstri og með
merki Alfa Romeo í ofanálag.
Innréttingin er stílhrein og með mátulega mikið „design“ til að gleðja augað. Gaman hefði þó verið að fá aðeins
stærri skjá, óneitanlega. Takið eftir start-hnappinum í stýrinu, vinstra megin við miðjuna.
Ekki væsir um farþega í aftursæti og breiddin slík að þar komast þrír full-
orðnir fyrir með góðu móti. Tveir eru eins og kóngar í ríki sínu.
Það er óneitanlega gæjalegt um að litast þegar aðstaða ökumanns er skoðuð. Aðeins dýpri sæti með meiri hlið-
arstuðningi hefðu þó ekki komið að sök því þetta er bíll sem vel þolir að vera ekið hratt.
Eins og sjá má er yfirbygging Alfa Romeo Stelvio tiltölulega einföld en gengur feikivel upp.
Tvískipt framgrillið og þessi uggi þar fyrir neðan minna lúmskt á
hinn Batmobile úr sjónvarpsþáttunum um Leðurblökumanninn.
Rautt keramik merkt Alfa Romeo skín í gegnum felgu-
teinana. Því fagna allir smekkvísir menn og konur.
Skotthlerinn opnast vel og farangursrýmið er ljómandi, eða
um 525 lítrar með aftursætið uppi.
2,2 lítra dísil
210 hestöfl/470 Nm
8 þrepa sjálfskipting
0-100 km/klst.: 6,6 sek.
Hámarkshr.: 215 km/klst.
Fjórhjóladrif
18" álfelgur
Eigin þyngd: 1.803 kg
Farangursrými: 525 lítrar
Mengunargildi: 127 g/km
Verð frá: 7.990.000 kr.
Alfa Romeo
Stelvio
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Reynsluakstur