Morgunblaðið - 17.04.2018, Síða 14
BílarBílar
BílarBílar
Bílar
Morgunblaðið/RAX
Sænska sigurförin
heldur áfram
Þ
að viðrar vel í Volvo-landi
um þessar mundir, og hef-
ur reyndar gert um nokk-
urra ára skeið þegar hér er
komið sögu. Hinn sænsk-ættaði
framleiðandi sem áður fyrr þótti fer-
kantaður og þunglamalegur í flesta
stað, þó sannarlega væri hann örugg-
ur, hefur undanfarin misseri ekki
sent frá sér annað en framúrskarandi
bíla sem eru í senn hörkuflottir að sjá,
skemmtilegir að keyra og sem fyrr
þrælöruggir, bæði fyrir farþega og í
auknum mæli gangandi vegfarendur
sömuleiðis.
Jepparnir tveir sem fyrirtækið hef-
ur státað af undanfarið, XC90 og
XC60, hafa rakað saman verðlaunum
og vegtyllum, og nú hefur sá þriðji
lent hér á landi; sá minnsti þeirra,
XC40. Skemmst er frá því að segja að
hann er enginn eftirbátur stóru
bræðranna, nema síður sé.
Sérlega svipfríður
Hönnunarteymi Volvo datt fyrir fá-
einum árum niður á grunnútlit sem
þeir hafa útfært á alla framleiðslulín-
una hjá sér með frábærlega vel
heppnuðum hætti; hver einasti bíll
hefur sín einkenni en hópurinn er
engu að síður tengdur sterkum bönd-
um. Rauði þráðurinn er augljós frá
einum bíl til annars. Framendinn
rímar þannig einna helst við S90 bíl-
inn, með framgrilli sem er lítillega
innfellt, á meðan afturljósin eru í stíl
við XC60 og V60 bílana. Eftir sem áð-
ur er XC40 algerlega frístandandi
týpa og á heildina litið engum líkur. Í
2,0 lítra dísil
190 hestöfl/400 Nm
8 þrepa sjálfskipting
0-100 km/klst.: 7,5 sek.
Hámarkshr.: 210 km/klst.
AWD
18"
Eigin þyngd: 1.725 kg
Farangursrými: 460 lítrar
Mengunargildi: 139 g/km
Verð frá: 5.990.000 kr.
5,1 l í blönduðum akstri
Umboð: Brimborg
Volvo XC40 D4
AWD Momentum
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Reynsluakstur
Það er ekkert út á innréttingu, sæti og annað innanstokks að setja í Volvo
XC40. Hann er einfaldlega bæði fallegur og vel búinn í bak og fyrir.
+
Flott útlit, innrétt-
ing, rými, fjöðrun.
–
Ómarkviss sjálf-
skipting þegar
gefið er í.
14 | MORGUNBLAÐIÐ
Leitar þú að traustu
BÍLAVERKSTÆÐI
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
TÍMAPANTANIR
587 1400
Við erum sérhæfðir í viðgerðum
á amerískum bílum.
Mótorstilling býður almennar
bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla.
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
kistufell.com
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313