Morgunblaðið - 17.04.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.04.2018, Blaðsíða 15
Aftursvipurinn minnir einna helst á XC60 eða V60 en þegar heildar- svipur XC40 er skoðaður sést að hann er í raun engum líkur. Innréttingin er um margt kunnugleg og ekki leiðum að líkjast þegar XC60 og 90 eru annars vegar. Takið eftir állistanum í innréttingunni. Framgrillið sveigist aðeins inn á við, eins og í lúxusbílunum S90 og V90, og það ljær XC40 sérstakan svip á meðal jeppanna frá Volvo. stærðarflokki þar sem gróskan hefur verið mest undanfarna 18 mánuði og hver framleiðandinn á fætur öðrum sendir bíl í samkeppnina, þá hefur Volvo tekist að teikna bíl sem vekur athygli og af góðu einu. XC40 er sér- lega fallegur bíll að sjá og hvort sem maður virðir hann fyrir sér að fram- an, aftan eða þá hliðarsvipinn, þá er allt á sömu bókina lært. Þessi bíll er „bjútí“ í einu orði sagt. Fantavel heppnuð innrétting Volvo XC40 gefur semsagt fögur fyrirheit með ásýnd sinni og góðu heilli stendur hann við þau öllsömul þegar inn er komið. Hér minnir allt á áðurnefnda stóru bræðurna, XC60 0g 90, og hreint ekki leiðum að líkjast. 9 tommu snertiskjár fyrir allar mögu- legar aðgerðir, þar á meðal loftræst- ingu, afþreyingu, leiðakerfi og annað, með svo kristaltærri grafík og mynd- gæðum að til mikillar fyrirmyndar er. Stýrið er kunnuglegt að sjá, sömu- leiðis gírstangarstubburinn og fyr- irkomulag stjórntækja – þetta höfum við allt saman séð áður og ekki nokk- ur ástæða til að breyta því sem vel er heppnað. Nýlundan er svo skrautlisti úr burstuðu áli með eins konar rúðu- mynstri sem setur skemmtilegan svip á innréttinguna. Volvo kallar þennan þátt innréttingarinnar „Cutting Edge“ – en ekki hvað! Eins og er með yfirbygginguna þá eru hér semsagt ýmsir þræðir sem tengja XC40 við familíuna en um leið eitt og annað sem ljær bílnum ákveðna sérstöðu. Það má segja að hér sé að finna þá fágun sem er í stærri og dýrari jepp- unum en með dassi af flippi í hönnun því bíllinn er eflaust miðaður að yngri og ævintýragjarnari kaupendum. Fyrir þann hóp er líka boðið upp á meira val í litum og frágangi en í XC60 og 90. Þetta er jú ungt og verð- ur þar af leiðandi að fá að leika sér með liti og þess háttar. Íhaldssamari kaupendur geta eftir sem áður siglt lygnan sjó og valið sér hefðbundna og rólega liti. Bíllinn sem prófaður var er búinn Harman / Kardon hljóðkerfi og var það prófað með dæmigerðu dúnd- urlagi, I’m Deranged með meistara David Bowie. Kerfið plumaði sig með sóma og skila góðri gæsahúð á fram- handleggi undirritaðs. Annað er vert að nefna og það er innanrýmið. Hér er á ferðinni eitt til- felli þess þegar 1+1 = 3. Þegar bíll- inni er skoðaður að utan og sest inn í hann er nánast óskiljanlegt hversu gott innanplássið er. Hátt til lofts, vítt til axla og það loftar feikivel um hné farþega í aftursæti; þau eru víðsfjarri framsætisbökunum. Þegar farang- ursrýmið er tekið með í reikninginn – 460 lítrar og hreint gímald þegar aft- ari sætaröðin er felld niður – verður að teljast að unnið sé með plássið eins og best verður á kosið í Volvo XC40. Getiði hvað – frábær í akstri! Þessi bíll lúkkar semsé að utan, hann virkar að innan og til að full- komna þrennuna þá er þrælgaman að keyra hann. Frábær díselvélin skilar heilum 400 Nm í togi og bíður ekki boðanna þegar slegið er í klárinn. XC40 er firnasnarpur og svarar frá- bærlega á alla lund. Stýringin er hreint afbragð, hann bremsar nánast á punktinum og fjöðrunin er svo góð að ég man vart annað eins – hún er hreinasta hraðahindranaæta! Meira að segja hinir válegu vegakoddar sem yfirvöldum hefur þóknast að stinga niður hér og hvar hverfa hreinlega í yfirferðinni og er þá mikið sagt. Það eina sem mögulega má setja út á er að þegar bílnum er gefið rækilega inn þá virkar sjálfskiptingin stundum lít- ið eitt tvístígandi; eigum við að vinda okkur í næsta gír eða taka þennan upp í næsta þúsund snúninga? Tjah, seg þú mér. Ég hef á tilfinningunni að þetta sé ekki vandamál með R-Design út- færsluna af XC40 og hlakka til að prófa hana. Þegar bílnum var hins vegar ekið á skynsamlegum hraða var skiptingin áreynslulaus og silki- mjúk. Allt í allt er Volvo XC40 fortaks- laust með bestu bílunum í sínum flokki, þ.e. dýrari smájeppar, og verð- ur ekki til annars en að bæta í með- byrinn sem fyrirtækið nýtur nú þeg- ar. Feilspor finnast einfaldlega ekki hjá Volvo um þessar mundir og það viðrar áfram vel í Volvo-landi. Farangursrýmið opnast vel og er býsna plássgott, um 460 lítrar. Þegar aftursætin eru felld niður myndast rými sem ræður við nánast allt. MORGUNBLAÐIÐ | 15 landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Ekkert lántökugjald við fjármögnun rafbíla Betri kjör við kaup á vistvænum bílum 50% afsláttur af lántökugjaldi við fjármögnun vistvænna bíla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.