Morgunblaðið - 17.04.2018, Qupperneq 15
Aftursvipurinn minnir einna helst á XC60 eða V60 en þegar heildar-
svipur XC40 er skoðaður sést að hann er í raun engum líkur.
Innréttingin er um margt kunnugleg og ekki leiðum að líkjast þegar
XC60 og 90 eru annars vegar. Takið eftir állistanum í innréttingunni.
Framgrillið sveigist aðeins inn á við, eins og í lúxusbílunum S90 og V90,
og það ljær XC40 sérstakan svip á meðal jeppanna frá Volvo.
stærðarflokki þar sem gróskan hefur
verið mest undanfarna 18 mánuði og
hver framleiðandinn á fætur öðrum
sendir bíl í samkeppnina, þá hefur
Volvo tekist að teikna bíl sem vekur
athygli og af góðu einu. XC40 er sér-
lega fallegur bíll að sjá og hvort sem
maður virðir hann fyrir sér að fram-
an, aftan eða þá hliðarsvipinn, þá er
allt á sömu bókina lært. Þessi bíll er
„bjútí“ í einu orði sagt.
Fantavel heppnuð innrétting
Volvo XC40 gefur semsagt fögur
fyrirheit með ásýnd sinni og góðu
heilli stendur hann við þau öllsömul
þegar inn er komið. Hér minnir allt á
áðurnefnda stóru bræðurna, XC60 0g
90, og hreint ekki leiðum að líkjast. 9
tommu snertiskjár fyrir allar mögu-
legar aðgerðir, þar á meðal loftræst-
ingu, afþreyingu, leiðakerfi og annað,
með svo kristaltærri grafík og mynd-
gæðum að til mikillar fyrirmyndar er.
Stýrið er kunnuglegt að sjá, sömu-
leiðis gírstangarstubburinn og fyr-
irkomulag stjórntækja – þetta höfum
við allt saman séð áður og ekki nokk-
ur ástæða til að breyta því sem vel er
heppnað. Nýlundan er svo skrautlisti
úr burstuðu áli með eins konar rúðu-
mynstri sem setur skemmtilegan svip
á innréttinguna. Volvo kallar þennan
þátt innréttingarinnar „Cutting
Edge“ – en ekki hvað! Eins og er með
yfirbygginguna þá eru hér semsagt
ýmsir þræðir sem tengja XC40 við
familíuna en um leið eitt og annað
sem ljær bílnum ákveðna sérstöðu.
Það má segja að hér sé að finna þá
fágun sem er í stærri og dýrari jepp-
unum en með dassi af flippi í hönnun
því bíllinn er eflaust miðaður að yngri
og ævintýragjarnari kaupendum.
Fyrir þann hóp er líka boðið upp á
meira val í litum og frágangi en í
XC60 og 90. Þetta er jú ungt og verð-
ur þar af leiðandi að fá að leika sér
með liti og þess háttar. Íhaldssamari
kaupendur geta eftir sem áður siglt
lygnan sjó og valið sér hefðbundna og
rólega liti.
Bíllinn sem prófaður var er búinn
Harman / Kardon hljóðkerfi og var
það prófað með dæmigerðu dúnd-
urlagi, I’m Deranged með meistara
David Bowie. Kerfið plumaði sig með
sóma og skila góðri gæsahúð á fram-
handleggi undirritaðs.
Annað er vert að nefna og það er
innanrýmið. Hér er á ferðinni eitt til-
felli þess þegar 1+1 = 3. Þegar bíll-
inni er skoðaður að utan og sest inn í
hann er nánast óskiljanlegt hversu
gott innanplássið er. Hátt til lofts, vítt
til axla og það loftar feikivel um hné
farþega í aftursæti; þau eru víðsfjarri
framsætisbökunum. Þegar farang-
ursrýmið er tekið með í reikninginn –
460 lítrar og hreint gímald þegar aft-
ari sætaröðin er felld niður – verður
að teljast að unnið sé með plássið eins
og best verður á kosið í Volvo XC40.
Getiði hvað – frábær í akstri!
Þessi bíll lúkkar semsé að utan,
hann virkar að innan og til að full-
komna þrennuna þá er þrælgaman að
keyra hann. Frábær díselvélin skilar
heilum 400 Nm í togi og bíður ekki
boðanna þegar slegið er í klárinn.
XC40 er firnasnarpur og svarar frá-
bærlega á alla lund. Stýringin er
hreint afbragð, hann bremsar nánast
á punktinum og fjöðrunin er svo góð
að ég man vart annað eins – hún er
hreinasta hraðahindranaæta! Meira
að segja hinir válegu vegakoddar sem
yfirvöldum hefur þóknast að stinga
niður hér og hvar hverfa hreinlega í
yfirferðinni og er þá mikið sagt. Það
eina sem mögulega má setja út á er
að þegar bílnum er gefið rækilega inn
þá virkar sjálfskiptingin stundum lít-
ið eitt tvístígandi; eigum við að vinda
okkur í næsta gír eða taka þennan
upp í næsta þúsund snúninga? Tjah,
seg þú mér.
Ég hef á tilfinningunni að þetta sé
ekki vandamál með R-Design út-
færsluna af XC40 og hlakka til að
prófa hana. Þegar bílnum var hins
vegar ekið á skynsamlegum hraða
var skiptingin áreynslulaus og silki-
mjúk.
Allt í allt er Volvo XC40 fortaks-
laust með bestu bílunum í sínum
flokki, þ.e. dýrari smájeppar, og verð-
ur ekki til annars en að bæta í með-
byrinn sem fyrirtækið nýtur nú þeg-
ar. Feilspor finnast einfaldlega ekki
hjá Volvo um þessar mundir og það
viðrar áfram vel í Volvo-landi.
Farangursrýmið opnast vel og er býsna plássgott, um 460 lítrar. Þegar
aftursætin eru felld niður myndast rými sem ræður við nánast allt.
MORGUNBLAÐIÐ | 15
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Ekkert lántökugjald við
fjármögnun rafbíla
Betri kjör
við kaup á
vistvænum
bílum
50% afsláttur af lántökugjaldi
við fjármögnun vistvænna bíla