Morgunblaðið - 17.04.2018, Síða 16

Morgunblaðið - 17.04.2018, Síða 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ Þ að er gömul saga og ný að bílaframleiðendur bjóða ekki bara upp á stallbak, hlaðbak, skutbíl og jeppa í vöruvali sínu heldur tugi mismun- andi tegunda af bílum, allt frá smæstu smábílum til voldugustu jeppa. Ford eru þar ekki eftirbátar annarra og sé heimasíða Ford á Ís- landi skoðuð sést glöggt hve margir bílar eru í raun og veru í boði. Nú hefur þar bæst við valkostur að nafni EcoSport, og fellur hann í flokk einhvers staðar á milli fólksbíls og jepplings; yfirbyggingin er nett (EcoSport er um 50 cm styttri en Kuga stóra systir) enda bíllinn á sömu grind og Ford Fiesta, en um leið er veghæðin feikileg, svo vel hæfir jeppa. Ekki leitað langt yfir skammt Þegar hönnun EcoSport er skoð- uð tilsýndar blasir við að hönn- unardeildin hjá Ford hefur afráðið að sækja ekki vatnið yfir lækinn því bíllinn sver sig rækilega í ættina. Svipurinn er sá sami og á jeppunum Kuga og Edge og væri þeim þremur stillt upp hlið við hlið líktust þeir sjálfsagt einna helst rússneskum matryoshka-dúkkum, slík eru lík- indin. Það er gott og blessað út af fyrir sig; undirrituðum hefur alltaf þótt lagið fara smærri jeppum Ford betur, Kuga er til að mynda að mínu mati fallegri en Edge, og þar af leið- ir að EcoSport er í laglegri kant- inum. Hönnunin er engin bylting en bíllinn býður af sér þokka þess sem er rammgert, þétt og traustverkj- andi. Þetta á einkum við framendann, ásjónu bílsins, þar sem fáu er yfir að kvarta nema kannski hversu lygnan sjó hönnunardeildin hefur ákveðið að sigla. Þessi stærðarflokkur bíla er sneisafullur af áhugaverðum kostum um þessar mundir og gerjunin hreint svakaleg, svo ef til vill hefði borgað sig að spila aðeins djarfar? Allt um það, afturendinn er á sömu bókina lærður og lumar reyndar á skemmtilegri gestaþraut sem kalla mætti „finndu út hvernig á að opna afturhlerann“. Það tók blaðamann smá stund af glápi og heilabrotum en loks hafðist það; húnninn er ræki- lega dulbúinn sem hluti af hægra afturljósi og er það býsna haganlega gert. Þegar afturhlerinn er loks opn- aður blasir við farangursrými með hörkufínni opnun. Stórbætt innrétting, fínt útsýni Þeir sem muna upprunalega út- gáfu Ford af EcoSport muna sem er að þar var ekki farin frægðarför. Hér kveður hins vegar við allt annan tón og þó að talsvert sé um plastið þá er innréttingin samt sem áður lagleg á að líta, með veglegan upp- lýsingaskjá og lágstemmda, smekk- lega hönnun. Tengimöguleikar eru bæði fyrir IOS- og Android-kerfi svo nútíminn er til staðar. Sætin eru fín, alltént leðursætin sem voru í bílnum sem prófaður var. Ökumaður situr býsna hátt í Eco- Sport og útsýni hans er fínt til allra átta. Heldur þrengra er um farþega í aftursæti og fullorðnum finnst sjálfsagt að sér vegið þar, satt best að segja. Börn eru eftir sem áður í ágætis málum hvað plássið varðar. Farangursrýmið er 355 lítrar sem telst þokkalegt en ekkert meira en það. Léttur og nettur í akstri Bílar í þessum flokki hafa almennt fengið heitið „borgarjeppar“ hér á landi og sem slíkur er EcoSport fínn. Hann hefur ágætis upptak og togið á Lipur smájeppi frá Ford Fyrir barnafjölskyldur ættu aftursætin að duga en fullorðnir fá varla nóg pláss fyrir hnén þarna aftur í, nema framsætin séu í fremstu stöðu. Innréttingin og sá búnaður sem hún býr yfir er ljómandi fín, og þar á stærðar skjár ekki minnstan þátt. Aðbúnaður og útsýni ökumanns eru ágæt enda situr hann hátt og sér eftir því vel. + Staðalbúnaður, há sætisstaða – Vantar afl, takmarkað rými í aftursæti 1,0 lítra bensínvél 125 hestöfl/170 Nm 6 þrepa sjálfskipting 0-100 km/klst.: 10,5 sek. Hámarkshr.: 180 km/klst. Framhjóladrif 17" álfelgur Eigin þyngd: 1.383 kg Farangursrými: 356 lítrar Mengunargildi: 134 g/km Verð frá: 2.750.000 kr. 3.490.000 kr. (Titanium S) 6,5 l í blönduðum akstri Umboð: Brimborg hf. Ford EcoSport Titanium S Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Reynsluakstur EcoSport er lipur og knár þó hann sé smár. Veg- hæðin er mikill kostur og bíllinn ætti að ráða við þæfingsfærð, þegar aðstæður eru þesslegar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.