Morgunblaðið - 17.04.2018, Side 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að er gömul saga og ný að
bílaframleiðendur bjóða
ekki bara upp á stallbak,
hlaðbak, skutbíl og jeppa í
vöruvali sínu heldur tugi mismun-
andi tegunda af bílum, allt frá
smæstu smábílum til voldugustu
jeppa. Ford eru þar ekki eftirbátar
annarra og sé heimasíða Ford á Ís-
landi skoðuð sést glöggt hve margir
bílar eru í raun og veru í boði. Nú
hefur þar bæst við valkostur að
nafni EcoSport, og fellur hann í
flokk einhvers staðar á milli fólksbíls
og jepplings; yfirbyggingin er nett
(EcoSport er um 50 cm styttri en
Kuga stóra systir) enda bíllinn á
sömu grind og Ford Fiesta, en um
leið er veghæðin feikileg, svo vel
hæfir jeppa.
Ekki leitað langt yfir skammt
Þegar hönnun EcoSport er skoð-
uð tilsýndar blasir við að hönn-
unardeildin hjá Ford hefur afráðið
að sækja ekki vatnið yfir lækinn því
bíllinn sver sig rækilega í ættina.
Svipurinn er sá sami og á jeppunum
Kuga og Edge og væri þeim þremur
stillt upp hlið við hlið líktust þeir
sjálfsagt einna helst rússneskum
matryoshka-dúkkum, slík eru lík-
indin. Það er gott og blessað út af
fyrir sig; undirrituðum hefur alltaf
þótt lagið fara smærri jeppum Ford
betur, Kuga er til að mynda að mínu
mati fallegri en Edge, og þar af leið-
ir að EcoSport er í laglegri kant-
inum. Hönnunin er engin bylting en
bíllinn býður af sér þokka þess sem
er rammgert, þétt og traustverkj-
andi.
Þetta á einkum við framendann,
ásjónu bílsins, þar sem fáu er yfir að
kvarta nema kannski hversu lygnan
sjó hönnunardeildin hefur ákveðið
að sigla. Þessi stærðarflokkur bíla er
sneisafullur af áhugaverðum kostum
um þessar mundir og gerjunin
hreint svakaleg, svo ef til vill hefði
borgað sig að spila aðeins djarfar?
Allt um það, afturendinn er á sömu
bókina lærður og lumar reyndar á
skemmtilegri gestaþraut sem kalla
mætti „finndu út hvernig á að opna
afturhlerann“. Það tók blaðamann
smá stund af glápi og heilabrotum
en loks hafðist það; húnninn er ræki-
lega dulbúinn sem hluti af hægra
afturljósi og er það býsna haganlega
gert. Þegar afturhlerinn er loks opn-
aður blasir við farangursrými með
hörkufínni opnun.
Stórbætt innrétting, fínt útsýni
Þeir sem muna upprunalega út-
gáfu Ford af EcoSport muna sem er
að þar var ekki farin frægðarför.
Hér kveður hins vegar við allt annan
tón og þó að talsvert sé um plastið
þá er innréttingin samt sem áður
lagleg á að líta, með veglegan upp-
lýsingaskjá og lágstemmda, smekk-
lega hönnun. Tengimöguleikar eru
bæði fyrir IOS- og Android-kerfi svo
nútíminn er til staðar. Sætin eru fín,
alltént leðursætin sem voru í bílnum
sem prófaður var.
Ökumaður situr býsna hátt í Eco-
Sport og útsýni hans er fínt til allra
átta. Heldur þrengra er um farþega
í aftursæti og fullorðnum finnst
sjálfsagt að sér vegið þar, satt best
að segja. Börn eru eftir sem áður í
ágætis málum hvað plássið varðar.
Farangursrýmið er 355 lítrar sem
telst þokkalegt en ekkert meira en
það.
Léttur og nettur í akstri
Bílar í þessum flokki hafa almennt
fengið heitið „borgarjeppar“ hér á
landi og sem slíkur er EcoSport fínn.
Hann hefur ágætis upptak og togið á
Lipur smájeppi frá Ford
Fyrir barnafjölskyldur ættu aftursætin að duga en fullorðnir fá varla nóg
pláss fyrir hnén þarna aftur í, nema framsætin séu í fremstu stöðu.
Innréttingin og sá búnaður sem hún býr yfir er ljómandi fín, og þar á stærðar skjár ekki minnstan þátt.
Aðbúnaður og útsýni ökumanns eru ágæt enda situr hann hátt og sér eftir því vel.
+
Staðalbúnaður,
há sætisstaða
–
Vantar afl,
takmarkað rými
í aftursæti
1,0 lítra bensínvél
125 hestöfl/170 Nm
6 þrepa sjálfskipting
0-100 km/klst.: 10,5 sek.
Hámarkshr.: 180 km/klst.
Framhjóladrif
17" álfelgur
Eigin þyngd: 1.383 kg
Farangursrými: 356 lítrar
Mengunargildi: 134 g/km
Verð frá: 2.750.000 kr.
3.490.000 kr. (Titanium S)
6,5 l í blönduðum akstri
Umboð: Brimborg hf.
Ford EcoSport
Titanium S
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Reynsluakstur
EcoSport er lipur og knár þó hann sé smár. Veg-
hæðin er mikill kostur og bíllinn ætti að ráða við
þæfingsfærð, þegar aðstæður eru þesslegar.