Morgunblaðið - 17.04.2018, Page 18

Morgunblaðið - 17.04.2018, Page 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ Hvern vilt þú dekka í umferðinni? MADE TO F E E L GOOD. Ekki gera málamiðlanir þegar kemur að öryggi - veldu Goodyear Þú færð Goodyear vetrardekkin á öllum betri hjólbarðaverkstæðum A kstursíþróttasamband Ís- lands (AKÍS) hefur gengið frá samningum við Alþjóða aksturssambandið (FIA) þess efnis að ein umferð í alþjóðlegu meistaramóti rafbíla FIA í ná- kvæmnisakstri, oft kallað eRally (FIA Electric and New Energy Championship), verði haldið á Íslandi í september á þessu ári. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Aksturs- íþróttasambandinu. Skjótt skipast veður í lofti „Það kom okkur skemmtilega á óvart hve mikill áhugi reyndist vera á því hjá FIA að Ísland héldi eina um- ferð í meistaramóti rafbíla,“ segir Tryggvi M. Þórðarson, formaður AKÍS. „Þegar samkomulag var loks í höfn var það okkur sannarlega mikil gleði, enda notkun rafbíla, orkuskipti í samgöngum og þær hliðarverkanir sem það kann að leiða af sér ofarlega á baugi á Íslandi um þessar mundir og raunar í heiminum öllum.“ Frá því að fyrstu hugmyndir komu fram og þar til staðfest samkomulag lá fyrir liðu aðeins fimm mánuðir, sem telst ótrúlega stuttur tími. Að- eins eru 10 umferðir í mótaröðinni og margir keppnishaldarar um hituna. ,,Þetta er spennandi verkefni og áhugavert að koma Íslandi á kortið sem land með hreina orku og að AK- ÍS og aðildarfélögum okkar sé treyst fyrir svona stórri keppni segir Þránd- ur Arnþórsson, framkvæmdastjóri AKÍS. Öðruvísi aksturskeppni Þessi rallkeppni er ekki eins og þær sem Íslendingar hafa vanist. eRally byggist á nákvæmnisakstri fyrirfram ákveðna leið, ávallt innan hámarkshraða á óbreyttum bifreið- um. Á leiðinni eru mælistaðir þar sem bíllinn þarf að vera staddur á ná- kvæmlega réttri sekúndu annars missa keppendur stig. Það er í mörg horn að líta þegar kemur að viðburði sem þessum og hefur AKÍS gengið frá samningum við viðburðafyrirtækið Sonus við- burði um að koma að undirbún- ingnum. ,,Ég var strax mjög spennt- ur fyrir verkefninu þegar þeir AKÍS-félagar höfðu samband og þeg- ar þeir útskýrðu þetta betur fékk ég gæsahúð af spenningi,“ segir Bessi Theodórsson, eigandi Sonus við- burða, ennfremur í tilkynningunni. ,,Það sem ég sá strax í þessu er að hér hefur Ísland frábært tækifæri til að halda stöðu sinni og jafnvel styrkja hana þegar kemur að því að vera leiðandi land í orkuskiptum í samgöngum. Það segir sig sjálft að keppni sem þessi á að vera hér á landi, við með alla okkar hreinu, ódýru og endurnýjanlegu orku. Ég var í rauninni örlítið hissa á því að þessi keppni hefði ekki verið haldin hér áður. En núna er þetta að verða að veruleika og það er mjög jákvætt. Ég og mitt fyrirtæki mun koma að utanumhaldi á þessum viðburði í heild og það er sannarlega verðugt verkefni. Ég held hreinlega að þetta sé með stærri viðburðum sem við höf- um komið að. AKÍS-menn munu sjá um rallið sjálft enda hafa þeir ára- langa reynslu af slíku keppnishaldi. Sonus mun, eins og áður segir, sjá um undirbúning að öðru leyti. Það gefur augaleið að þessum fjölda keppenda, fjölmiðlamanna, áhorfenda og að- standenda þarf að sinna vel. Þetta verður viðburður sem mun vekja at- hygli á heimsvísu.“ Ráðstefna og bílasýning Samhliða keppninni stendur til að halda ráðstefnu um framtíðina í orku- skiptum í samgöngum hérlendis, hver eru hagræn áhrif þeirra um- skipta á breiðum grunni, hver eru umhverfisáhrifin bæði jákvæð og nei- kvæð. „Svo er gaman að AKÍS og FIA munu vinna náið með alþjóðlegu orkuráðstefnunni CHARGE sem verður haldin á Íslandi samhliða keppninni. Það verður því sannkölluð rafmagnsbílaveisla á Íslandi.“ Verið er að leggja drög að því að hingað til lands komi á sama tíma ökutæki sem sýnir hversu langt má teygja tæknina þegar rafmagn er annars vegar, en meira um það síðar. Í tengslum við eRally á Íslandi verður haldin forkeppni til að finna íslenska afburðaökumenn sem gætu keppt fyrir Íslands hönd í öllum um- ferðum eRally um allan heim. Áhuga- samir ökumenn og -konur þurfa að ekki að hræðast ,,rafbílinn í þessari forkeppni. ,,Við erum að leita að mögulegum fulltrúum Íslands til að taka þátt í eRally og þá um allan heim. Allir geta sótt um að keppa í forkeppninni og þurfa ekki að vera endilega á rafbíl, þarna er um akst- urshæfileika að ræða. Undirbúningur hófst síðasta haust og hefur verið unnið hratt síðan og stóra verkefnið þessa dagana er að ræða við áhugasama samstarfsaðila. Margir hafa sýnt verkefninu áhuga og vilja fá að vera með. ,,Mögulega ættum við ekki að vera hissa á áhug- anum, verkefnið er spennandi og fjöldi aðila sem hafa tengingu við við- burð af þessu tagi hafa haft samband og óskað eftir að vera með,“ segir Bessi Theodórsson. „Viðburður eins og þessi dregur auðvitað að fjölda keppenda hvaðanæva úr heiminum, en einnig starfsmenn bílaumboða, fjölmiðlafólk ásamt stjórnendum í orkugeiranum og ýmsum öðrum sem tengjast þessu á einn eða annan hátt. Gestir munu koma til landsins til að fylgjast með keppninni og auðvitað funda og sitja ráðstefnur sem fyr- irhugaðar eru í tengslum við viðburð- inn.“ Þeim sem kunna að hafa áhuga á þátttöku er bent á að hafa samband með tölvupósti við Akstursíþrótta- samband Ísland í eftirfarandi póst- fang: erally@akis.is Ein umferð FIA eRally fer fram á Íslandi í september 2018 Þessi vel merkti og vígalegi Tesla rafbíll gæti vel orðið á meðal þeirra sem koma hingað til lands í haust. Alþjóðlegt meist- aramót rafbíla haldið á Íslandi Mercedes-Benz B-250e er ekki framleiddur lengur en á eflaust mörg ár eftir á keppnisbrautum sem rafbíll. Breskur bílhönnuður að nafni Afzal Kahn hefur boðið skrásetningar- númer bílsins síns til sölu. Eru núm- eraplötur þær hinar dýrustu í heimi. Kahn er konungur bílbreyting- anna í Bretlandi en árið 2008, eða í upphafi alþjóðlegu fjármálakrepp- unnar, keypti hann bílnúmerið F1 af sýslustjórninni í Essex fyrir 375.000 sterlingspund. Er það hin dægilegasta upphæð fyrir bílnúmer, en í íslenskum krón- um jafnast upphæðin á við 53 millj- ónir, á núverandi gengi. Takist Kahn að selja númerið á uppsettu verði eða þar í kring mætti segja að hann hafi heldur betur ávaxtað pund sitt. Er númerið nefnilega auglýst falt fyrir 12.250.270,83 pund en við það bættust svo sölu- skattur og virðisaukaskattur sem þýddi að borga þyrfti fyrir það um 15 milljónir punda, eða kringum 21 milljarð króna, fyrir það. „Ódýrari bílnúmer“ Kahn er greinilega húmoristi því hann auglýsir númerið á sölusíðu fyrir bílnúmer er nefnist Plate4Less eða „ódýrari bílnúmer“. Númeraplöturnar hafa prýtt lúx- usbíl hans af gerðinni Bugatti Vey- ron sem kostar ekki nema brot af uppsettu númersverði, eða 1,5 millj- ónir punda, 210 milljónir króna. Koma verður í ljós hvort slegist verði um númerið á þessu háa verði. Má geta þess, að fyrir fjórum árum afþakkaði hann tilboð í þau upp á sex milljónir punda, um 850 milljónir króna. F1-númerið er talið langdýrasta bílnúmerið sem nú er falt. Númerið „999 EGG“ mun til sölu á 5.000 pund og forstjóranúmerið „1 CEO“ er til sölu á 540.000 pund. agas@mbl.is 53 milljóna númeraplata hjá konungi bílabreytinganna F1-númeraplatan á Bugatti Veyron lúxusbíl Afzal Kahn. Heimsins dýrasta bílnúmer

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.