Morgunblaðið - 17.04.2018, Qupperneq 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ
Hvern vilt þú
dekka í umferðinni?
MADE TO F E E L GOOD.
Ekki gera málamiðlanir þegar kemur að öryggi
- veldu Goodyear
Þú færð Goodyear vetrardekkin á öllum betri hjólbarðaverkstæðum
A
kstursíþróttasamband Ís-
lands (AKÍS) hefur gengið
frá samningum við Alþjóða
aksturssambandið (FIA)
þess efnis að ein umferð í alþjóðlegu
meistaramóti rafbíla FIA í ná-
kvæmnisakstri, oft kallað eRally
(FIA Electric and New Energy
Championship), verði haldið á Íslandi
í september á þessu ári. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu frá Aksturs-
íþróttasambandinu.
Skjótt skipast veður í lofti
„Það kom okkur skemmtilega á
óvart hve mikill áhugi reyndist vera á
því hjá FIA að Ísland héldi eina um-
ferð í meistaramóti rafbíla,“ segir
Tryggvi M. Þórðarson, formaður
AKÍS. „Þegar samkomulag var loks í
höfn var það okkur sannarlega mikil
gleði, enda notkun rafbíla, orkuskipti
í samgöngum og þær hliðarverkanir
sem það kann að leiða af sér ofarlega
á baugi á Íslandi um þessar mundir
og raunar í heiminum öllum.“
Frá því að fyrstu hugmyndir komu
fram og þar til staðfest samkomulag
lá fyrir liðu aðeins fimm mánuðir,
sem telst ótrúlega stuttur tími. Að-
eins eru 10 umferðir í mótaröðinni og
margir keppnishaldarar um hituna.
,,Þetta er spennandi verkefni og
áhugavert að koma Íslandi á kortið
sem land með hreina orku og að AK-
ÍS og aðildarfélögum okkar sé treyst
fyrir svona stórri keppni segir Þránd-
ur Arnþórsson, framkvæmdastjóri
AKÍS.
Öðruvísi aksturskeppni
Þessi rallkeppni er ekki eins og
þær sem Íslendingar hafa vanist.
eRally byggist á nákvæmnisakstri
fyrirfram ákveðna leið, ávallt innan
hámarkshraða á óbreyttum bifreið-
um. Á leiðinni eru mælistaðir þar sem
bíllinn þarf að vera staddur á ná-
kvæmlega réttri sekúndu annars
missa keppendur stig.
Það er í mörg horn að líta þegar
kemur að viðburði sem þessum og
hefur AKÍS gengið frá samningum
við viðburðafyrirtækið Sonus við-
burði um að koma að undirbún-
ingnum. ,,Ég var strax mjög spennt-
ur fyrir verkefninu þegar þeir
AKÍS-félagar höfðu samband og þeg-
ar þeir útskýrðu þetta betur fékk ég
gæsahúð af spenningi,“ segir Bessi
Theodórsson, eigandi Sonus við-
burða, ennfremur í tilkynningunni.
,,Það sem ég sá strax í þessu er að
hér hefur Ísland frábært tækifæri til
að halda stöðu sinni og jafnvel
styrkja hana þegar kemur að því að
vera leiðandi land í orkuskiptum í
samgöngum. Það segir sig sjálft að
keppni sem þessi á að vera hér á
landi, við með alla okkar hreinu,
ódýru og endurnýjanlegu orku. Ég
var í rauninni örlítið hissa á því að
þessi keppni hefði ekki verið haldin
hér áður. En núna er þetta að verða
að veruleika og það er mjög jákvætt.
Ég og mitt fyrirtæki mun koma að
utanumhaldi á þessum viðburði í
heild og það er sannarlega verðugt
verkefni. Ég held hreinlega að þetta
sé með stærri viðburðum sem við höf-
um komið að. AKÍS-menn munu sjá
um rallið sjálft enda hafa þeir ára-
langa reynslu af slíku keppnishaldi.
Sonus mun, eins og áður segir, sjá um
undirbúning að öðru leyti. Það gefur
augaleið að þessum fjölda keppenda,
fjölmiðlamanna, áhorfenda og að-
standenda þarf að sinna vel. Þetta
verður viðburður sem mun vekja at-
hygli á heimsvísu.“
Ráðstefna og bílasýning
Samhliða keppninni stendur til að
halda ráðstefnu um framtíðina í orku-
skiptum í samgöngum hérlendis,
hver eru hagræn áhrif þeirra um-
skipta á breiðum grunni, hver eru
umhverfisáhrifin bæði jákvæð og nei-
kvæð. „Svo er gaman að AKÍS og
FIA munu vinna náið með alþjóðlegu
orkuráðstefnunni CHARGE sem
verður haldin á Íslandi samhliða
keppninni. Það verður því sannkölluð
rafmagnsbílaveisla á Íslandi.“
Verið er að leggja drög að því að
hingað til lands komi á sama tíma
ökutæki sem sýnir hversu langt má
teygja tæknina þegar rafmagn er
annars vegar, en meira um það síðar.
Í tengslum við eRally á Íslandi
verður haldin forkeppni til að finna
íslenska afburðaökumenn sem gætu
keppt fyrir Íslands hönd í öllum um-
ferðum eRally um allan heim. Áhuga-
samir ökumenn og -konur þurfa að
ekki að hræðast ,,rafbílinn í þessari
forkeppni. ,,Við erum að leita að
mögulegum fulltrúum Íslands til að
taka þátt í eRally og þá um allan
heim. Allir geta sótt um að keppa í
forkeppninni og þurfa ekki að vera
endilega á rafbíl, þarna er um akst-
urshæfileika að ræða.
Undirbúningur hófst síðasta haust
og hefur verið unnið hratt síðan og
stóra verkefnið þessa dagana er að
ræða við áhugasama samstarfsaðila.
Margir hafa sýnt verkefninu áhuga
og vilja fá að vera með. ,,Mögulega
ættum við ekki að vera hissa á áhug-
anum, verkefnið er spennandi og
fjöldi aðila sem hafa tengingu við við-
burð af þessu tagi hafa haft samband
og óskað eftir að vera með,“ segir
Bessi Theodórsson. „Viðburður eins
og þessi dregur auðvitað að fjölda
keppenda hvaðanæva úr heiminum,
en einnig starfsmenn bílaumboða,
fjölmiðlafólk ásamt stjórnendum í
orkugeiranum og ýmsum öðrum sem
tengjast þessu á einn eða annan hátt.
Gestir munu koma til landsins til að
fylgjast með keppninni og auðvitað
funda og sitja ráðstefnur sem fyr-
irhugaðar eru í tengslum við viðburð-
inn.“
Þeim sem kunna að hafa áhuga á
þátttöku er bent á að hafa samband
með tölvupósti við Akstursíþrótta-
samband Ísland í eftirfarandi póst-
fang: erally@akis.is
Ein umferð FIA eRally fer fram á Íslandi í september 2018
Þessi vel merkti og vígalegi Tesla rafbíll gæti vel orðið á meðal þeirra sem koma hingað til lands í haust.
Alþjóðlegt meist-
aramót rafbíla
haldið á Íslandi
Mercedes-Benz B-250e er ekki framleiddur lengur en á eflaust mörg ár
eftir á keppnisbrautum sem rafbíll.
Breskur bílhönnuður að nafni Afzal
Kahn hefur boðið skrásetningar-
númer bílsins síns til sölu. Eru núm-
eraplötur þær hinar dýrustu í
heimi.
Kahn er konungur bílbreyting-
anna í Bretlandi en árið 2008, eða í
upphafi alþjóðlegu fjármálakrepp-
unnar, keypti hann bílnúmerið F1
af sýslustjórninni í Essex fyrir
375.000 sterlingspund.
Er það hin dægilegasta upphæð
fyrir bílnúmer, en í íslenskum krón-
um jafnast upphæðin á við 53 millj-
ónir, á núverandi gengi. Takist
Kahn að selja númerið á uppsettu
verði eða þar í kring mætti segja að
hann hafi heldur betur ávaxtað
pund sitt. Er númerið nefnilega
auglýst falt fyrir 12.250.270,83
pund en við það bættust svo sölu-
skattur og virðisaukaskattur sem
þýddi að borga þyrfti fyrir það um
15 milljónir punda, eða kringum 21
milljarð króna, fyrir það.
„Ódýrari bílnúmer“
Kahn er greinilega húmoristi því
hann auglýsir númerið á sölusíðu
fyrir bílnúmer er nefnist
Plate4Less eða „ódýrari bílnúmer“.
Númeraplöturnar hafa prýtt lúx-
usbíl hans af gerðinni Bugatti Vey-
ron sem kostar ekki nema brot af
uppsettu númersverði, eða 1,5 millj-
ónir punda, 210 milljónir króna.
Koma verður í ljós hvort slegist
verði um númerið á þessu háa
verði. Má geta þess, að fyrir fjórum
árum afþakkaði hann tilboð í þau
upp á sex milljónir punda, um 850
milljónir króna.
F1-númerið er talið langdýrasta
bílnúmerið sem nú er falt. Númerið
„999 EGG“ mun til sölu á 5.000
pund og forstjóranúmerið „1 CEO“
er til sölu á 540.000 pund.
agas@mbl.is
53 milljóna númeraplata hjá konungi bílabreytinganna
F1-númeraplatan á Bugatti Veyron lúxusbíl Afzal Kahn.
Heimsins dýrasta bílnúmer