Morgunblaðið - 17.04.2018, Side 20

Morgunblaðið - 17.04.2018, Side 20
20 | MORGUNBLAÐIÐ Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Alhliða þjónusta fyrir vökvadælur og vökvamótora Sala - varahlutir - viðgerðir Alls komu á götuna um 800.000 hreinir rafbílar í veröld víðri í fyrra og er það veruleg aukning frá árinu 2016. Frá þessu skýrir vefritið ev- volumes.com en það segir, að samtals hafi 1,2 milljónir hlað- anlegra rafbíla verið nýskráðar 2017. Er það aukning um 57%, en undir þessari skilgreiningu, hlað- anlegir bílar, mun auk tengilt- vinnbíla vera hreinir rafbílar. Tveir þriðju hlutar þessara bíla munu vera hreinir rafbílar, eða um 800.000 talsins. Er það aukn- ing upp á 70% frá árinu 2016, að sögn vefritsins. Það ár voru ekki nýskráðir nema 472.000 rafbílar um veröld víða. Það er fyrst og fremst í Asíu, með Kína og Japan í fararbroddi, sem rafbílavæðingin er að komast á flug. Í Kína voru nýskráð 602.000 slíkra bíla 2017, sem er 72% aukning frá árinu áður. Hlutfallslega varð aukningin enn meiri í Japan, eða hvorki meira né minna en 149%. Á bak við þá tölu standa 56.000 bílar. Og það var svo kínverskur raf- bíll sem seldist langbest allra raf- bílamódela. Heitir sá Baic EC 180. Er hann svo gott sem óþekktur utan heimalandsins, Kína. Af honum seldist 72.191 eintak í fyrra. Í öðru sæti varð Tesla Model S sem fór í 55.449 eintökum en hann var söluhæsti bíllinn 2016. Aukning í seldum rafbílum Í þriðja sæti varð svo Nissan Leaf sem nýskráður var í 52.778 eintökum, í fjórða sæti Toyota Prius tengiltvinnbíllinn (50.511), í fimmta sæti annar kínverskur rafbíll, Zhi Dou D2 EV (47.493), og sjötti varð Tesla Model X (44.655). Í sjöunda sæti varð enn einn Kínverjinn, tengiltvinn- bíllinn BYD Song (30.510), í átt- unda Renault Zoe (28.994) og ní- unda BMW i3 sem nýskráður var í 27.077 eintökum á heimsvísu. Botnsætið á lista yfir 10 mest seldu rafbíla heims varð svo Chevrolet Bolt sem seldist í 25.835 eintökum. Alls voru seldir 307.000 hlað- anlegir rafbílar í Evrópu árið 2017 sem er 38% aukning frá 2016. Í Bandaríkjunum nam sala bíla í þessum flokki um 200.000 eintökum sem er 27% aukning frá 2016. agas@mbl.is Rafmagnaður nýliði mættur á sviðið Óþekktur rafbíll, Baic EC 180, mest seldi rafbíllinn í veröldinni árið 2017. Algjörlega óþekktur rafbíll tók toppsætið H yundai Motor hlaut Red Dot Design hönn- unarverðlaun fyrir fram- úrskarandi hönnun á borgarsportjeppanum Kona og raf- knúna vetnisbílnum Nexo. Kona er nú þegar í boði hjá Hyundai í Garða- bæ og von er á Nexo síðar á þessu ári. Þetta er fimmta árið í röð sem dómnefnd 59 landa veitir Hyundai Motor verðlaun fyrir fallega, vandaða og hagnýta hönnun og tæknibúnað nýjustu fólksbíla sinna. Alls hafa Hy- undai hlotnast tíu verðlaunagripir frá Red Dot Design undanfarin ár. Þeir fengust fyrir m.a. i10, i20, i30, allar gerðir IONIQ, Sonata og Genesis. Kona er nýr bensínbíll og skemmtileg viðbót í jepplingalínu Hyundai sem er einnig hægt að velja í rafbílaútfærslu. Nú er hægt að velja um nokkrar búnaðarútfærslur Kona hjá Hyundai í Garðabæ auk þess sem gert er ráð fyrir að kynna rafknúna útgáfu bílsins fyrir árslok. Þess má geta að Kona hlaut fyrr á árinu hin virtu hönnunarverðlaun IF Design. Flaggskip tækniþróunar Nexo er önnur kynslóð rafknúins vetnisbíls frá Hyundai. Forveri Nexo er jepplingurinn iX35, en Nexo þykir marka kaflaskil á sínu sviði og end- urspegla þá miklu tækniþróun sem á sér stað hjá fyrirtækinu í átt til um- hverfismildari ökutækja. Má segja að Nexo sé flaggskipið á tækniþróun- arsviðinu sem vísi veginn til fram- tíðar. Nexo er fjórhjóladrifinn sportjeppi sem m.a. er búinn mjög þróaðri og öruggri sjálfstýringu eins og sann- aðist þegar hann ók fyrr á árinu án afskipta ökumanns um 200 km leið til Pyeongchang í Suður-Kóreu, m.a. um jarðgöng og hringtorg án þess að nokkur vandamál kæmu upp á. Stór dómnefnd Red Dot Í dómnefnd Red Dot Design Awards sitja hönnunarsérfræðingar, háskólaprófessorar og blaðamenn frá fjölda landa sem hafa það hlutverk að meta margvíslega hönnun og gæði þúsunda framleiðsluvara í ýmsum flokkum og atvinnugreinum. Red Dot Award er umfangsmesta alþjóðlega samkeppnin í vöruhönnun sem starf- rækt er í heiminum í dag. agas@mbl.is Hyundai sankar að sér verðlaununum Kona er nýr bensínbíll í jepplingalínu Hyundai, einnig fáanlegur sem rafbíll. Kona og Nexo verð- launuð hjá Red Dot Ford hefur átt einstakri velgengi að fagna varðandi F-150 pallbílinn og það í áratugi. Fyrirtækið ætlar ekkert að fara að hvíla þessa bíla, slík gullnáma eru þeir fyrir Ford. Og þeir hafa undanfarið 41 ár í röð verið söluhæsta bílamódelið í Bandaríkjunum. Þannig státa æðstu stjórnendur Ford af því að þéna meira á F-150 pallbílnum heldur en heildartekjur Facebook hafi verið á nýliðnu ári. Keyptu bandarískir og kanadískir neytendur pallbílinn fyrir alls 41,25 milljarða dollara 2017. Í blaðinu Detroit Free Press seg- ir að gróðinn af F-bílnum hafi verið meiri en árstekjur ekki bara Face- book, heldur og Coca-Cola, Nike, American Airlines, Best Buy- raftækjakeðjunnar, Merck- lyfjarisans, Allstate-bílatrygginga- Sigurganga Ford F-150 heldur áfram Ford F-150 pallbíllinn hefur verið söluhæsta einstaka fólksbílamódelið í Bandaríkjunum í heil 41 ár í röð. Geri aðrir betur en það! Pallbíll þénaði meira en Facebook félagsins, Rite Aid-lyfjabúðanna, Macy’s-verslanakeðjunnar og McDonald’s. Og sölutekjurnar af F-150 voru einnig hærri en verg landsfram- leiðsla landa sem Jórdaníu, Bólivíu og Íslands, eins og blaðið skrifar. Að meðaltali eru tveir F-150 pall- bílar seldir á hverri mínútu sólar- hringsins. Ford seldi samtals 896.764 eintök af F-raðar pall- bílnum 2017 og er það 9% aukning frá árinu áður. Að sögn talsmanns Ford, Mike Levine, myndi óslitin lína myndast frá Seattle og skáhallt yfir Bandaríkin til Miami ef bíl- unum sem seldust í fyrra væri rað- að hverjum á eftir öðrum á stystu leið milli borganna tveggja. „Sem þjóð elskum við pallbíla,“ segir Le- vine. agas@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.