Morgunblaðið - 17.04.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.04.2018, Blaðsíða 22
Frumburður nýrrar kynslóðar Ford Focus kemur á götuna með haustinu og var hann kynntur fjöl- miðlum í nýliðinni viku. Hann verður í ýmsum útfærslum, þar á meðal sportlegri og einnig kemur Focus sem langbakur. Rafútgáfa er hins vegar ekki á döfinni af hinum nýja og breytta bíl. Og það sem meira er; fyrsti rafbíll bandaríska bílrisans, Ford Focus Electric, hefur runnið sitt skeið. Hefur Ford ákveðið að framlengja ekki líf hans og verður smíði hans smám saman hætt. Undir áhrifum frá Mustang Þeir sem því kjósa rafknúinn Focus verða að bíða þar til á næsta ári er létt tvinnútgáfa kem- ur á götuna. Þá er Ford með með- alstóran rafdrifinn jeppa á prjón- unum sem áætlað er að komi á götuna 2020 og dragi 480 km. Sá hefur þegar verið kynntur en þó bara með teikningum, ekki ljós- myndum af raunverulegum bíl. Gengur hann undir vinnuheitinu Mach 1 og verður til undir áhrif- um frá Ford Mustang. Afl rafhlöðu Focus Electric var aukin um 44% í fyrra í 33,5 kíló- vött, sem dugði þó aðeins til 225 km drægis. Þá háði það bílnum fram til 2017-módelsins að ekki var hlægt að hraðhlaða hann, sem skaðaði möguleika hans í sam- keppni við t.d. E-Golf og Nissan Leaf. agas@mbl.is Fókusinn tekinn úr sambandi Ford hefur ákveðið að hætta framleiðslu rafbílsins Focus Electric. Dagar Focus Electric taldir Óhætt er að segja að Toyota- jeppinn Land Cruiser hafi komið að góðum notkun vegna stórra fram- kvæmda sem smárra. Þá fyrst og fremst sem samgöngutæki en nú hefur Toyota ákveðið að bjóða upp á jeppann sem léttan atvinnubíl frá og með sumrinu. Sem slíkur verður Land Cruiser Utility, eins og hann nefnist, boðin sem atvinnubíll í báðum lengd- arstærðum. Vélin verður sú sama og í hefðbundnum Land Cruiser, eða 2,8 lítra dísilvél. Atvinnubíllinn verður með drif á öllum fjórum hjólum. Gírkassinn verður handvirkur og sex hraða. Dráttarkraftur hans verður þrjú tonn. Í stað sætisraða aftan við bíl- stjórasætið verður flatt og stamt vörugólf. Vírnet úr stáli aðskilur vöruhólfið og fremstu sætaröðina að. Vörurýmið verður 1.574 lítrar í styttri bílnum og 2.216 lítrar í lengri útgáfunni. Sá fyrrnefndi má flytja allt að 593 kílóa farm og hinn lengri 756 kíló. Sami þægindabúnaður verður í atvinnubílnum og í hefðbundnum Land Cruiser. agas@mbl.is Beinskiptur Utility gengur í verkin Aðgengi að vöruhólfi Land Cruiser atvinnubílsins er afbragðsgott. Land Cruiser verður atvinnubíll 22 | MORGUNBLAÐIÐ HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf 1.259.000 Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Verð frá m. vsk Eigin þyngd bíla hefur áhrif á af- kastagetu þeirra, eldsneytisnotkun og rásfestu þeirra. Þyngdin getur því verið til vansa. Vegna þessara þátta tóku rann- sóknarmenn franska bílaritsins Auto Plus sig til og þyngdarmældu 30 smærri dísilbíla með 120 hest- afla vél að hámarki. Bílaframleiðendur hafa varið svo milljörðum króna skiptir í að finna aðferðir og efni til að bílar komi léttari af vigtinni. Má þar nefna nýja undirvagna, hátæknileg smíðaefni og minni vélar. Því færri sem kílóin eru þeim mun sparneytnari eru bílarnir og þeim mun minna menga þeir. Af- kastagetan batnar og stöðugleikinn á vegunum verður skilvirkari. En „megrunarviðleitnin“ gæti leitt til vítahrings því eftir því sem kílóunum fækkar verður þörfin fyr- ir stærri vélar minni. Því myndu þær minnka, bremsukerfið yrði lít- ilfjörlegra og dekkin stærðinni minni. Nýrri bílar koma ágætlega frá vigtuninni, svo sem Seat Leon og Peugeot 308 sem eru undir 1.300 kílóum að þyngd í vissum út- færslum. Eldri bílar reka flestir lestina, t.d. er Ford Focus í 21. sæti, Alfa Giulietta í 28. og Volvo V40 í þrítugasta og neðsta sæti. Langbest koma frá vigtuninni lággjaldabílar og afar viðráðan- legir bílar, sem eru byggðir upp af einföldum undirvagni, skarta fá- brotnari búnaði, eru minna skreytt- ir og minna einangraðir. Allt með þeirri niðurstöðu að Dacia Logan- bílar eru í tveimur efstu sætum og Citroën E-Elysee í því þriðja en þessir þrír vógu allir undir 1200 kílóum. Útkoma Skoda Rapid, í fjórða sæti, er einnig lofsverður. agas@mbl.is Því færri kíló, þeim mun betra Lítill flókinn aukabúnaður er af skornum skammti í Dacia Logan, sem léttir hann. Það kemur honum á toppinn á þessum lista smærri díselbíla. Dacia Logan léttasti smærri dísilbíllinn Þyngd dísilbíla Eigin þyngd 30 smærri dísilbíla Tegund (hestöfl) kg Dacia Logan 1,5 dCi (75) 1.146 Dacia Logan 1,5 dCi (90) 1.158 Citroen C-Elysee 1,6 BlueHdi (100) 1.163 Skoda Rapid Spaceback 1,6 TDI (116) 1.279 Seat Leon 1,6 TDI DSG (115) 1.289 Peugeot 308 1,6 BlueHdi (100) 1.291 Toyota Auris 1,4 D-4D (90) 1.297 Volkswagen Golf 1,6 TDI (115) 1.314 Renault Megane 1,5 dCi (110) 1.318 Citroen C4 1,6 BlueHDi (100) 1.340 Renault Megane 1,5 dCi (110) 1.344 Fiat Tipo 1,6 Multijet 4 p (120) 1.345 Opel Astra 1,6 CDTI (110) 1.347 Nissan Pulsar 1,5 dCi (110) 1.348 Kia Ceed 1,4 CRDi (90) 1.352 Kia Ceed 1,6 CRDi (110) 1.353 Peugeot 308 1,6 BHDi EAT6 (120) 1.357 Honda Civic 1,6 i-DTEC (120) 1.363 Mazda 3 1,5 SkyActiv-D (105) 1.364 Citroen C4 1,6 BlueHDi (120) 1.369 Ford Focus 1,5 TDCi (120) 1.379 BMW 116d (116) 1.383 Hyundai i30 1,6 CRDi (110) 1.393 Toyota Auris 1,6 D-4D (112) 1.410 Mini Clubman One D (116) 1.421 DS 4 1,6 BlueHdi (120) 1.428 Mercedes Classe A 180d (109) 1.437 Alfa Romeo Giuletta 1,6 JTDm (120) 1.444 Mercedes Classe A 160d (90) 1.452 Volvo V40 D2 (120) 1.500 Volvo kynnti til leiks í síðustu viku fyrsta vörubílinn sem er hreinn rafbíll, svonefndan FL Electric sem er 16 tonn. Hann er fyrst og fremst hugs- aður til kyrrlátra flutninga í þétt- býli. Hið sama er að segja um sérlega útgáfu af honum sem sorpbíl. Á sama tíma og borgir tak- marka akstur dísilknúinna bíla verða engar hömlur á akstri rafknúinna flutningabíla. FL Electric getur því athafnað sig hvar sem er í borgum og bæjum og hvenær sem er. Með 300 kílómetra drægi Rafrásin getur lagt ökumanni til 248 hestafla hámarksafl en 175 hestöfl til viðvarandi aksturs. Skiptingin verður tveggja hraða og hægt verður að fá skradd- arasniðna rafhlöðupakka, allt eft- ir því hvernig ætlunin er að brúka FL Electric. Hefur hann pláss fyrir milli tveggja og sex litíumjóna rafpakka eða frá 100 til 300 kWst. Með sex rafhlöðum verður drægi bílsins 300 kíló- metrar. Áfylling rafhleðslu tekur eina til tvær stundir með hrað- hleðslu, eða allt að 10 stundir við venjulega heimatengingu. Volvo hefur mikla reynslu af smíði rafdrifinna aflrása í stórum bílum. Til að mynda hefur hóp- ferðabíladeild Volvo framleitt og selt rúmlega 4.000 rafdrifna hóp- ferðabíla og strætisvagna frá árinu 2010. agas@mbl.is Hinn hljóðláti og mengunarfríi Volvo FL Electric flutningabíllinn getur athafnað sig að vild í borgarumhverfi. Volvo kynnir fyrsta raftrukkinn Fyrir kyrrláta og mengunarfría flutninga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.