Morgunblaðið - 21.04.2018, Qupperneq 4
Ný stjórn í mars var ný stjórn HRÍ kosin. F.v. María Sæmundsdóttir, Emil Þór Guðmundsson, Róbert Lee Tómasson, Maurice Zschirp (formaður), Jón Gunnar Krist-
insson, Ingvar Þór Stefánsson og Auður Ósk Emilsdóttir. Á myndina vantar Þórdísi Einarsdóttur.
Eins og komið hefur fram í þessu blaði eru hjólreiðar
mjög breiður vettvangur og þeir sem þær stunda ná
allt frá því að vera keppnismenn yfir í fólk sem fer á
hjóli í og úr vinnu. Fjöldi félaga og sambanda er til í
kringum hjólreiðar og hér verður reynt að ná aðeins
utan um þau.
Landssamband hjólreiðamanna (LHM)
Regnhlífarsamtök hjólreiðamanna sem beita sér fyr-
ir hagsmunum alls hjólreiðafólks. Voru upphaflega
einnig samtök yfir keppnishjólreiðar, en síðar var
sérsamband stofnað undir ÍSÍ sem í dag er HRÍ. LHM
eru í raun almenn hagsmunasamtök hjólreiðamanna
og senda reglulega inn athugasemdir við deiliskipu-
lag, lagafrumvörp og annað sem tengist hjólreiðum.
Hjólreiðasamband Íslands (HRÍ)
Sérsamband innan ÍSÍ fyrir keppnishjólreiðar og
starfaði áður sem hjólreiðanefnd ÍSI. Heldur utan
um staðlaðar reglur fyrir hjólreiðamót, keppnisskrá
hjólreiðamanna yfir árið, bikarkeppni og Íslandsmót.
Sambandið sjálft heldur þó ekki mótin, heldur sjá
hjólreiðafélög um það. HRÍ er meðal annars aðili að
UCI, Alþjóða hjólreiðasambandinu, sem hefur yf-
irumsjón með öllum helstu hjólamótum og mótaröð-
um í heiminum. Í grunninn má segja að ef málefnin
tengjast keppnishjólreiðum er hægt að leita til HRÍ,
en ef málið tengist einhverju öðru hjólreiðatengdu
þá er hægt að leita til LHM.
Íslenski fjallahjólaklúbburinn (ÍFHK)
Eitt af fyrstu hjólreiðafélögunum og á tíma stærsta
félagið. Í dag er félagið samgöngu- og ferðafélag
þrátt fyrir gamalgróið nafn. Standa fyrir ferðum út á
land og gefa út tímaritið Hjólhestinn. Með flotta fé-
lagsaðstöðu á Brekkustíg 2 í Reykjavík.
Samtök og félög hjólreiðamanna
F
yrir ekki svo mörgum árum
var algengt að 10-30 tækju
þátt í hjólreiðamótum. Í dag
er aftur á móti ekki óalgengt
að nokkur hundruð manns
taki þátt í almennum mótum og í stóru
almenningsmótunum er fjöldinn um
og yfir eitt þúsund. Maurice Zschirp,
formaður HRÍ segir fjölgunina hafa
verið gríðarlega á stuttum tíma og að
undanfarin ár hafi mikill tími farið í að
reyna að halda utan um innviðina til að
mæta þessari fjölgun. Maurice segir
að reglur HRÍ hafi fyrir stuttu aðeins
verið 3 blaðsíður en séu í dag 36. Þar
hafi félagið einfaldlega þurft að fylgja
alþjóðlegum reglum, en það hefur
meðal annars orðið aðildarfélag í Al-
þjóðahjólreiðasambandinu og Félagi
norrænna hjólreiðasambanda. Á stutt-
um tíma hefur aðildarfélögum í HRÍ
einnig fjölgað mikið og er Sigl-
ingaklúbburinn Drangey í Skagafirði
nýjasta aðildarfélagið. Maurice segir
að skortur á ungu fólki hafi áður plag-
að greinina, en í dag sé áhugi barna
sem eigi foreldra í íþróttinni að aukast
og þau séu að detta inn í unglinga-
flokka. Þá séu hjólreiðafélög farin að
leggja aukna áherslu á ungt fólk og
æfi nú inni og úti allt árið, sem og
styrktaræfingar. HRÍ er ekki aðeins
yfirumsjónaraðili fyrir hjólakeppnir
hér á landi, heldur sér sambandið
einnig um hjólreiðalandslið Íslands. Í
fyrra var hópur sendur í æfingabúðir í
Sviss og Maurice segir að það verði
aftur gert í ár fyrir keppendur í cyc-
locross. Þá eigi eftir að ákveða aðrar
æfingar fyrir landsliðshópinn, sem tel-
ur á bilinu 20-30 manns að hans sögn. Í
dag eru götuhjólreiðar stærsti hluti
landsliðsins, en Maurice segir að stór
hópur af ungu fólki sé að koma upp í
gegnum starfið í fjallahjólreiðum sem
geti fjölgað verulega í þeim hópi. Í dag
eru 18 aðildarfélög skráð í HRÍ og eru
skráðir iðkendur 1.020 talsins.
Ljósmynd/Glacier 360
Morgunblaðið/Hari
Reglur Nauðsynlegt var að yfirfara allar reglur tengdar hjólreiðakeppnum með
stórauknum áhuga og inngöngu HRI í Alþjóða hjólreiðasambandið.
Reglubókin fór úr 3 bls. í 36 bls.
Umhverfis Langjökul Í Glacier 360 fjallahjóla-
keppninni er keppt yfir þrjá daga þar sem hjólað
er í kringum Langjökul. Hjólreiðakappar fá að
njóta stórfengilegs landslags.
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
Brettafélag Hafnarfjarðar
www.brettafelag.is
Fimman hjólafélag
Crossfit Reykjavík
Hjólreiðafélag Akureyrar
www.hfa.is
Hjólreiðafélag Reykjavíkur
www.hfr.is
Hjólreiðafélagið Bjartur
www.bjartur.org
Hjólreiðafélagið Hjólamenn
www.hjolamenn.is
Hjólreiðafélagið Tindur
www.tindur.cc
Íþróttafélagið Höfrungur
Þingeyri
Knattspyrnufélagið Víkingur
www.vikingur.is
Siglingarklúbburinn Drangey
Skagafirði
Sundfélag Hafnarfjarðar (3SH)
www.3sh.is
Sundfélagið Ægir (Ægir 3)
www.aegir3.is
Ungmennafélagið Bjarmi
www.facebook.com/bjarmi.is
Ungmennafélagið Breiðablik
www.breidablik.is
Ungmennafélag Grindavíkur
www.umfg.is
Ungmennafélag Njarðvíkur
www.umfn.is
Vélhjólaklúbburinn í Fjarðabyggð
Þríhjól
Önnur samfélög hjólreiða-
manna eða tengd félög
Reiðhjólabændur hópur
á Facebook
Keppnisspjall hjólreiðafólks
hópur á Facebook
Samtök um bíllausan lífsstíl
www.billaus.is
Samtök um bíllausan lífsstíl
www.facebook.com/billaus.lifsstill
Enduro Iceland
www.enduroiceland.com
Enduro Iceland á Facebook
www.facebook.com
/enduroiceland
Hjóladót til sölu hópur á Facebook
Hjólreiðafélög
og samfélög
hjólreiðafólks