Morgunblaðið - 21.04.2018, Side 6

Morgunblaðið - 21.04.2018, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018 María Ögn Guðmundsdóttir er ein fremsta hjólreiðakona landsins og nægirekki einungis að æfa og keppa í íþróttinni, heldur tengist vinnan hennarhjólreiðum. Hún er með fyrirtækið Hjólaþjálfun ásamt Hafsteini manni sín- um, en þar er meðal annars boðið upp á ýmiskonar hjólanámskeið og þjálfun. Það styttist í að Hjólaðu í vinnuna hefjist og af því tilefni báðum við Maríu um að lista helstu atriði sem þarf að hafa í huga áður en lagt er af stað í næsta túr.  Pumpa í dekkin – Það fyrsta sem þarf að hafa í huga er að loftþrýstingurinn sé réttur. Venjulega stendur á dekkjunum hversu mikill þrýstingurinn má vera, en sumir vilja hafa hann örlítið lægri. „Það er mikill ánægjumissir að hafa ekki rétt pumpað í dekkin,“ segir María, en ef of lítið er í dekkjunum verður viðnámið mun meira og erfiðara að hjóla.  Athuga með bremsurnar – Algjört öryggisatriði að þær séu bæði tengdar og að púðar eða diskar séu rétt stilltir og taki ekki í án þess að gripið sé í bremsuna.  Ljós að aftan – „Annað öryggisatriði er að vera með rautt afturljós sem sést vel við öll birtustig. „Það munar feikilega miklu hversu miklu fyrr hjólreiðamaður sést með slíkt ljós,“ segir María.  Hjálmurinn – „Ég er algjörlega á þessari línu, hjálmurinn er hluti af búnaðinum og maður hefur séð of mikið í gegnum árin til að mæla með einhverju öðru þrátt fyrir skiptar skoðanir.“  Athuga með hraðlosunarpinna (quick release) – Það hefur nokkrum sinnum ver- ið greint frá því þegar slíkir pinnar hafa verið losaðir, en það virðist vera bundið við börn að hrekkja önnur börn. Aldrei er þó of varlega farið og ítrekar María að athuga þetta atriði vandlega.  Til lengri tíma mælir María einnig með því að fólk hugi að því að vera í þrengri fatnaði þannig að vindmótstaðan verði minni og að stilla hnakkinn rétt. Fyrir þá sem finna til eymsla, meðal annars í hnjám, baki eða hálsi eða eru með dofna fing- ur, mælir María með því að þeir láti fara yfir stillingu hjóla sinna frá a-ö. Þá fari fag- menn meðal annars yfir fjarlægð í stýri, hæð hnakks og halla á stýri. Slíkt komi oft- ast í veg fyrir óþarfa sársauka eða meiðsli.  Að lokum: Þrátt fyrir að gömlu jálkarnir geti vel þjónað sínum tilgangi, sér- staklega þegar kemur að því að fara í og úr vinnu, segir María að þróunin í hönnun hjóla hafi verið það mikil undanfarin ár að uppfærsla yfir á betra hjól geti auðveld- lega leitt til umtalsvert meiri gleði fyrir hjólreiðamanninn. Heilræði Maríu fyrir hjólatúrinn F jallahjólafólk á höfuðborg- arsvæðinu er betur sett en íbúar flestra stærri borga í Evrópu, enda er stutt hér í fjölda aðgengilegra og góðra fjallahjólaleiða og -svæða. Hvort sem er um að ræða Hólms- heiði, Heiðmörk, Öskjuhlíð eða El- liðaárdal er einfalt fyrir alla þá sem vilja hjóla bara af stað að heiman í stað þess að þurfa að keyra langar leiðir á bíl fyrst. Þetta gerir mögu- leikana fyrir fjallahjólamennsku mikla enda veitir fjallahjólið mikið frelsi, að sögn Bjarna Más Gylfason- ar, formanns Hjólreiðafélags Reykjavíkur (HFR). „Það aðvelda við fjallahjólreiðar er að þú þarft í raun bara hjól og hjálm,“ segir Bjarni, en þannig kom- ist fólk af stað og byrji að leika sér. Þegar líður á og leiðir verða tækni- legri og hraðinn meiri er þó nauð- synlegt að huga betur að örygg- isbúnaði eins og brynju og lokuðum hjálmi. Styttist í fyrstu keppnina Nú styttist í fyrstu keppni fjalla- hjólakeppni vorsins, en það er Morgunblaðshringurinn 26. apríl. Bjarni er einn af skipuleggjendum keppninnar sem fer fram í næsta nágrenni við skrifstofur Morg- unblaðsins í Hádegismóum. „Menn eru spenntir að komast út að keppa og ekki skemmir að þetta er eitt stærsta og öflugasta fjallahjólamót- ið,“ segir Bjarni. Yfirleitt sé mikil spenna hjá hjólreiðafólki að komast loks í keppni eftir langan vetur og því sé þátttaka með besta móti. „Við erum eins og beljurnar á vorin, menn koma alveg dýrvitlausir í svona keppnir.“ Morgunblaðshringurinn er hluti af bikarmótaröð HRÍ. Þá gildir sam- anlagður stigafjöldi yfir allt árið úr þeim fjórum fjallahjólakeppnum sem eru hluti af bikarröðinni. Bjarni seg- ir þessar keppnir oft aðeins tækni- legri en stóru almenningskeppnirnar eins og Bláa lónsþrautina. „Í bik- arkeppnum er harðari keppni, erf- iðara undirlag og það gerir meiri kröfur til þeirra sem keppa í þeim. Það er ekkert auðvelt að fara fjóra hringi á fullu gasi í brautinni,“ segir Bjarni. Tekið skal fram að einnig er almenningsflokkur í bikarkeppn- unum og fara keppendur þá einum hring minna en í aðalkeppninni og ætti því að höfða til breiðs hóps. Ásamt hefðbundnum fjallahjóla- keppnum er einnig keppt í fjalla- bruni og Enduro-keppnum hér á landi. Fjallabrunið er eins og nafnið gefur til kynna hreint og beint brun niður á við og er þá nauðsynlegt fyrir keppendur að vera í brynjum. Í Enduro-keppnum er meirihlutinn niður á við og keppt í fjölda styttri sérleiða. Bjarni segir Enduro og svokallað all-mountain vera eina mest vaxandi greinina innan hjólreiða hér á landi í dag og að keppnisfyrirkomulagið virðist henta vel hér á landi. Þá sé Ísland einnig frábært til ferðalaga á slíkum hjólum. Áherslan ætti að vera á ungmennastarfið Hjólreiðasenan hefur farið vaxandi hér á landi undanfarið en Bjarni segir að keppnishjólreiðar hafi ekki fylgt alveg eftir þeirri þróun og fjöldinn hafi aðeins aukist lítið eitt síðustu árin. Helsta vandamálið hafi verið skortur á nýliðum sem komi úr ungliðastarfi sem sé enn nokkuð takmarkað hér á landi. „Nýliðun þarf að koma að neðan en ekki þeg- ar fólk leggur fótbolta- eða hand- boltaskóna á hilluna,“ segir hann og bendir á að hér á landi séu margir af sterkustu keppendunum á fer- tugs- og fimmtugsaldri. Bjarni tekur reyndar fram að keppendur geti lengi verið í fremstu röð í hjólreiðum, en fjöldi yngri iðk- enda þyrfti að vera meiri. Af þess- um sökum leggur Hjólreiðafélag Reykjavíkur vaxandi áherslu á þjálf- un barna og unglinga. Bendir Bjarni á að oft séu fjallahjólreiðar góður staður til að byrja á fyrir ungt fólk fyrir aðrar hjólagreinar eins og götuhjól. „Margir þeirra bestu í heiminum í dag í götuhjólreiðum eru með bakgrunn í fjallahjólreiðum þar sem þeir öðluðust mikla tækni sem nýtist vel,“ segir hann. „Þessa tækni er miklu erfiðara að tileinka sér á miðjum aldri.“ En hvernig byrjar fólk að æfa fjallahjólreiðar, hvort sem það eru börn og unglingar, eða þeir sem eldri eru? Bjarni segir að á höf- uðborgarsvæðinu séu um 5-6 íþrótta- eða hjólreiðafélög sem bjóði upp á skipulagða starfsemi. Reyndar sé mismunandi hversu mikil áhersla sé lögð á fjallahjól og götuhjól, en flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á einhverjum af þessum stöðum. Á æfingum hjá félögunum fái fólk grunnþjálfun í öllu því sem þarf að hafa í huga fyrir fjallahjól- reiðar og ekki síður reynslu sem sé dýrmæt. Svo eru líka almennings- íþróttadeildir hjá sumum hefð- bundnum íþróttafélögunum sem eru að bjóða upp almenningshjólreiðar, en það getur hentað byrjendum vel. Bjarni segir að til að byrja með sé ekki stóra málið hvort fólk velji fulldempað hjól eða hjól sem aðeins sé með dempurum að framan. Það fari hins vegar eftir því hvað fólk er að gera, hvort notkunin krefjist mik- illar fjöðrunar eða ekki. Aftur á móti segist hann alltaf taka gott hálf- dempað hjól fram yfir það sem sé lélegt fulldempað. Dempunin ein og sér skipti því ekki öllu máli. „Mjög gott fulldempað hjól er frekar dýrt og ekkert endilega það sem hentar byrjendum,“ tekur hann fram. Það sem skipti höfuðmáli sé að koma sér af stað og byrja að hjóla og leika sér. Fjallahjólreiðar í bakgarðinum Keppnisfólk í öllum greinum hjólreiða hefur lengi hafið feril sinn í fjallahjólreiðum þar sem það öðlast ákveðna grunntækni sem nýtist vel almennt. For- maður Hjólreiðafélags Reykjavíkur segir sérstaka áherslu lagða á ungmennastarfið og að fá nýliðunin komi úr yngri aldursflokkum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Úti í móa Í Morgunblaðshringnum er hjólað í nágrenni Rauðavatns og skrifstofu Morgunblaðsins í Hádegismóum. Morgunblaðið/Eggert Tilbúnir Bjarni ásamt fjölda keppenda á upphafslínunni í Morgunblaðshringnum. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík | Sími 577 1090 | sala@vikurvagnar.is | vikurvagnar.is YFIR 30 ÁRA REYNSLA Í AÐ ÞJÓNUSTA VIÐSKIPAVINI - MIKIL ÞEKKINGOG VÖNDUÐ VINNUBRÖGÐ - Farangursbox á allar gerðir bíla. Stærðir 360 - 550 lítra Vönduð evrópsk framleiðsla. Toppbogar á margar gerðir bíla. Hjólastandar á bíla og í bílskúrinn. Hver standur er fyrir 2-3 hjól. Vönduð evrópsk framleiðsla. STYRKUR – ÞJÓNUSTA – ÁREIÐANLEIKI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.