Morgunblaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
Á
keppnisdagatali ársins eru
fram undan 33 hjóla-
keppnir í mismunandi
flokkum auk þess sem
keppt verður í götu-
hjólreiðum á bæði landsmóti og ung-
lingamóti UMFÍ. Þá var í febrúar
haldin keppnin RIG Uphill á Skóla-
vörðustíg og í mars vetrarfjallabrun
HFA. Samtals eru því 37 mót á
árinu. Flest þeirra fara fram frá
mánaðamótum apríl/maí og fram að
mánaðamótum ágúst/september, eða
yfir fjögurra mánaða tímabil.
Keppt er í fjölda mismunandi
hjólagreina, allt frá götuhjólreiðum
yfir í fjallabrun og allt þar á milli.
Innan flestra hjólagreinanna er svo
keppt í þrenns konar keppnum; bik-
arkeppnum, Íslandsmeistaramóti og
almenningskeppnum. Í grunninn er
Íslandsmeistaramótið aðeins ein
keppni og sá sem stendur uppi sem
sigurvegari er Íslandsmeistari. Í bik-
arkeppnunum er um að ræða nokkr-
ar keppnir og verður sá bikarmeist-
ari sem stendur uppi með flest stig
að öllum mótunum loknum. Algengt
er að þrjár til fjórar bikarkeppnir
séu haldnar innan götuhjólreiða og
fjallahjólreiða. Að lokum eru al-
menningskeppnir sem virka sem
stök mót.
Það sem flækir þetta fyrirkomulag
nokkuð er að almenningskeppnir eru
oft haldnar samsíða annaðhvort Ís-
landsmeistaramótinu eða bik-
arkeppnunum. Sem dæmi er Morg-
unblaðshringurinn fyrsta bikarmót
ársins í fjallahjólreiðum. Í bik-
arkeppninni eru farnir fjórir hringir í
karlaflokki, en þrír í kvennaflokki. Í
almenningsmótinu sem ræst er 15
mínútum síðar fara karlar þrjá
hringi og konur tvo hringi, eða einum
hring færra en í bikarkeppn-
isflokknum. Svipað er uppi á ten-
ingnum í fyrsta götuhjólamóti ársins,
Reykjanesmótinu. Þar fara þeir sem
keppa í bikarkeppninni 106 kíló-
metra, en í almenningskeppninni er í
boði að fara bæði 63 og 32 kílómetra.
Þetta þýðir að í keppnum er í boði
vegalengd og getustig sem hentar
flestum.
RR - Götuhjól
Þekktasta fyrirkomulag hjólakeppna
er líklega hefðbundin götu-
hjólakeppni. Þar eru allir ræstir á
sama tíma (ef fleiri flokkar eru geta
keppendur verið ræstir á mismun-
andi tíma). Algengt er að fremsti
hópurinn með fjölda keppenda (pelo-
ton) haldist saman stóran hluta
keppninnar en í skemmtilegum
keppnum eru reglulega gerðar árásir
þar sem nokkrir keppendur reyna að
stinga af. Oft ráðast úrslit í þessum
keppnum af spretti í lokin. Götu-
hjólakeppnir eru bæði stakar keppn-
ir og fjöldagakeppnir (stage race).
Aðeins Tour of Reykjavík myndi
falla undir seinni skilgreininguna hér
á landi, en WOW cyclothonið nær
einnig yfir nokkra daga, en í einni
samfellu. Glacier 360-fjallahjólamót-
ið er annað dæmi um fjöldagakeppni,
en það er ekki götuhjólakeppni.
Reglur götuhjólakeppna banna alla
jafna að notuð séu tímaþrautarhjól.
CX - Cyclocross
Í cyclocross-keppnum er keppt á
hjólum sem svipar til götuhjóla í út-
liti. Það er þó hægt að setja mun
sverari dekk undir þau og gíra-
hlutföllin eru talsvert önnur en á
venjulegum götuhjólum. Það þýðir
að þau eru betur undir það búin að
takast á við grófara undirlag eins og
er í slíkum keppnum, allt frá malbiki
yfir í sand, gras og drullu. Þá geta
keppendur í cyclocross-keppnum
þurft að bera hjólið einhvern hluta
leiðarinnar sem er hvað mest torfar-
inn.
TT - Tímaþraut
Tímaþraut er keppni þar sem kepp-
andinn getur aðeins stuðst við sjálfan
sig og keppir beint við tímann. Hver
og einn keppandi byrjar sér (algengt
er að hafa þrjátíu sekúndur upp í
eina mínútu milli keppenda) og hjól-
ar ákveðna vegalengd. Það er svo
ekki fyrr en seinasti keppandinn hef-
ur lokið keppni sem úrslitin eru end-
anlega ljós. Ekki er leyfilegt að nýta
sér drag (draft) frá öðrum kepp-
endum og gildir því aðeins hreinn
kraftur hvers og eins. Keppt er á sér-
stökum tímaþrautarhjólum, en það
eru sömu hjól og notuð eru í þrí-
þraut. Keppendum sem það vilja er
þó oftast einnig heimilt að keppa á al-
mennum götuhjólum.
XC - Fjallahjól
Fjallahjólamótum svipar nokkuð til
cyclocross-keppna, en þar er þó kom-
in fjöðrun, annaðhvort að framan eða
bæði að framan og aftan. Bæði er
hjólað upp og niður og farnir nokkrir
hringir í braut. Heildartíminn úr
þessum hringjum gildir. Keppendur
geta átt von á drullu, grasi, malbiki
og sandi, en ekkert er af stökkum
eða falli (drop).
EN - Enduro
Enduro-keppnir byggja á stuttum
sérleiðum og ráðast úrslit keppn-
innar á samanlögðum tíma úr þess-
um sérleiðum. Öfugt við fjallahjóla-
mótin er ekki hjólað í hringlaga
braut, heldur byrja sérleiðirnar á
einum stað og enda á öðrum. Hver
keppandi er ræstur sér, en margir
geta þó verið að hjóla á sama tíma í
brautinni. Þá er regla um að 80% af
vegalengdinni skuli vera niður í móti
og eiga keppendur að geta farið
brautina án brautarskoðunar. Það
þýðir að föllum og stökkum er stillt í
hóf. Hver sérleið getur verið frá 30
sekúndum upp í nokkrar mínútur.
Hjólin í enduro dempa aðeins meira
en þau í fjallahjólakeppnum. Kepp-
andinn þarf sjálfur að ferja hjólið sitt
á milli sérleiða og oft er tekið sam-
hjól með öðrum keppendum. Tíminn
á milli sérleiða telur ekki í heild-
arkeppninni. Þrátt fyrir að heild-
arkeppnistími sé oft á bilinu 20 til 30
mínútur er heildartímalengd allrar
keppninnar stundum á milli fjórar og
fimm klukkustundir.
DH - Fjallabrun
Í fjallabruni eru keppendur á hjólum
sem dempa hvað mest og alltaf með
dempara bæði að framan og aftan.
Búast má við nokkuð djörfum stökk-
um og föllum og nauðsynlegt er að
skoða brautina fyrir mót. Farnar eru
nokkrar ferðir, sem hver og ein er
nokkuð stutt og samanlagður tími
þeirra ræður úrslitum. Hjólin sem
notuð eru í fjallabruni eru nokkuð
þyngri en í enduro þar sem demp-
ararnir eru stærri.
Keppnisdagatal hjólreiðafólks 2018
Allt frá stórum almenn-
ingshjólakeppnum eins
og Bláa lónsþrautinni,
Tour of Reykjavík og
WOW cyclothon yfir í Ís-
landsmeistaramót og
fjöldaga keppnir á fjöll-
um eins og Glacier 360.
Hjólreiðaáhugafólk ætti
að finna eitthvað við sitt
hæfi í sumar.
Morgunblaðshringurinn
Enduro Island – vorfagnaður
Reykjanesmót Nettó og 3N
TT tímataka Breiðabliks
Krónan fjallahjólamót
TT tímataka Grindavík
Tour of Reykjavík
Bláa lónsþrautin
TT Cube Prologue I
Rangárþing Ultra fjallahjólamót
Fjallahjólabrun í Vífilstaðahlíð
TT Krýsuvík-Kleifarvatn
Suðurstrandarvegurinn
Wow cyclothon
Heiðmerkuráskorun unglinga
Gullhringurinn
Íslandsmót BMX
Landsmót UMFÍ
26. apríl
5. maí
6.maí
9.maí
12.maí
29.maí
1.-2. júní
9. júní
13. júní
15. júní
16. júní
20. júní
24. júní
27.-30. júní
2. júlí
7. júlí
8. júlí
14. júlí
Vesturgatan á Hlaupahátíð
Enduro Ísland – sumarfagnaður
TT Cube Prologue II
Fjallabrun
Fjallahjólreiðar
Stóra hjólahelgin á AK
Unglingamót UMFÍ
Fjallabrun HFA
Glacier 360
Tour de Ormurinn
Heiðmerkuráskorun
Cube Prologue III
Fellahringurinn – fjallahjól
RB Classic
Kia hringurinn Hólmsheiði
Enduro Island haustfagnaður
Íslandsmót í Cyclocross
14. júlí
15. júlí
18. júlí
21. júlí
22. júlí
27.-29. júlí
2. ágúst
4. ágúst
10.-12. ágúst
11. ágúst
15. ágúst
15. ágúst
23. ágúst
25. ágúst
30. ágúst
1. sept.
27. okt.
RR
RR
RR
RR
RR
XC
XC
XC
XC
XC
DH
EN
BMX
TT
TT
TT
TT
Keppnisdagatal hjólreiðamanna 2018
TegundDags. Keppni Mót Dags. Keppni Mót
RR XC DH EN CX BMXTTGötuhjólreiðar Fjallahjólreiðar Tímaþraut Fjallabrun Enduro Cyclocross BMXFreestyle Íslandsmót Bikar Almenningskeppni
CX
TT
TT
Tegund
XC
XC
XC
XC
XC
XC
EN
EN
DH
DH
RR
RR
RR
RR
RR
Nánari upplýsingar um hjólaviðburði ársins má finna á hjolathjalfun.is þar sem nýjustu upplýsingar um viðburði birtast og á vef Hjólreiðasambands Íslands, á hri.is
Morgunblaðið/Eggert
Á rásmarkinu Margir bíða
spenntir eftir að hjólasumarið
byrji af fullum krafti.