Morgunblaðið - 21.04.2018, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018 MORGUNBLAÐIÐ 15
NOTUM VIRKAN FERÐAMÁTA
Hjólum - Göngum - Hlaupum - Tökum strætó
Opið fyrir skráningar Skráning og upplýsingar áhjoladivinnuna.is
Notumvirkan
ferða áta
Hjólum - Göngum
Hlaupum - Tökum strætó
2.-22. maí
Þ
að er oftast kalt að hjóla á
Íslandi. Líka í sól á sumr-
in. Klæðið ykkur vel.
Þröngur vind- og regn-
jakki gerir kraftaverk og
handa- og fótahitarar eru nauðsyn-
legir eiginlega alltaf.
Ekki vera á skítugu hjóli.
Skiptu um keðju þegar hún er
orðin slitin.
Nýttu þér bike-fit eða aðra sam-
bærilega þjónustu til að stilla hjólið
eftir líkamslögun þinni. Alltaf þess
virði.
Ef þú ert ekki vel að þér í við-
gerðum á hjóli skaltu láta fagmann
fara yfir það einu sinni til tvisvar á
ári.
Reyndu að læra almennar hjóla-
viðgerðir og hvernig eigi að við-
halda hjólinu. Algjör grunnur að
geta skipt um slöngu.
Þú getur sparað allt að 25-30%
orku með því að vera í kjölsogi ann-
arra (drafti). Nýttu þér það, en
gefðu líka af þér með því að vera
fremst í einhvern tíma þegar kem-
ur að þér.
Gefðu hjólafélögum merki um
hættur, hvert þú ætlar að beygja
eða ef þú ætlar að stoppa (Google:
cycling hand signals).
Haltu línu í keppnum, hvort sem
þú ert ein/n eða í hóp.
Hjólaðu með skilríki
Spurðu um leyfi áður en þú nýtir
kjölsog ókunnugra.
Heilsaðu öðru hjólreiðafólki og
bjóddu góðan dag eða þakkaðu fyr-
ir þegar þú tekur fram úr gang-
andi.
Tileinkaðu þér einkennisorð
Eistnaflugs hátíðarinnar. Bannað
að vera fáviti.
Sem fyrsta keppni í götu-
hjólreiðum er stutta útgáfan af
Reykjaneskeppninni gott upphaf.
Cube Prologue er líka skemmtileg
til að sjá hvar maður stendur, en
keppnin er tímataka niður Krýsu-
víkurveg.
Til að fylgjast með því sem er að
gerast í hjólreiðum (aðallega götu-
hjólreiðum) á heimsvísu er góður
upphafsreitur að fylgjast með The
GCN show (Global cycling net-
work) á Youtube. Vikulegir þættir
sem taka fyrir það helsta sem er í
gangi. Á sömu rás er mikill fjöldi
gagnlegra myndskeiða sem sýna
allt frá því hvernig eigi að þrífa hjól
yfir í viðgerðir og hvernig best sé
að bera sig að þegar hjólað er upp
stórar brekkur.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Óskrifaðar reglur og ráðleggingar
Hjólað í umferðinniGott er að venja
sig á að gefa öðrum vegfarendum
merki, t.d. stefnumerki þegar beygt er.
Að hugað sé betur að hönnun
og frágangi á samgöngu-
mannvirkjum þar sem hjólandi
fólk fer um. Eins flottur og nýi
hjólastígurinn á Gróttu er virðist
ekki hafa verið hugsað til enda
hvernig tenging hans við göngu-
stíg eða götu við Gróttu er. Sama
á við um gangstéttarbrúnir víða
sem eru mjög háar þar sem hjól
þurfa að fara upp.
Hjólreiðafólk, sérstaklega þeir
sem velja að vera á götum og veg-
um, ætti alltaf að vera með rautt
ljós að aftan og ljós að framan
þegar fer að dimma.
Setja upp skilti á fjölförnustu
hjólaleiðum utan höfuðborgar-
innar þar sem ökumenn eru var-
aðir við því að töluverð hjólaum-
ferð geti verið. Þetta á t.d. við um
Mosfellsheiði, Hvalfjörð og Krýsu-
víkurveg. Víða erlendis hafa einn-
ig verið sett upp skilti sem minna
ökumenn á að hafa allavega 1,5
metra fjarlægð frá hjólreiðamanni
þegar tekið er fram úr.
Vera á góðum dekkjum. Grip
reiðhjóladekkja skiptir sköpum,
sérstaklega þegar hraðinn fer að
verða meiri. Góð dekk eiga að ná
góðu gripi bæði á þurrum og
blautum vegi. Það ætti enginn að
setja sig í hættu við að vera á
dekkjum sem eru orðin slitin eða
þar sem jafnvel sést í vír.
Taka tillit hver til annars. Vega-
og samgöngukerfið er fyrir ýmiss
konar samgöngur, hvort sem það
eru gangandi, hjólandi, bílar eða
hestar. Alveg eins og hjólandi
þurfa að taka tillit til þeirra sem
eru gangandi á göngustígum
þurfa bílar að taka tillit til hjól-
andi á götum og vegum.
Fimm atriði til
að auka öryggi