Morgunblaðið - 02.05.2018, Side 11

Morgunblaðið - 02.05.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018 Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottu útliti. Fatnaður fyrir fagfólk Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 20% afslátturaf öllum CHANELvörum Chanel kynning í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ miðvikudag, fimmtudag og föstudag Gréta Boða kynnir spennandi nýjungar fyrir sumarið Verið velkomin Um 80 samningamenn sitja næstu þrjá daga saman á námstefnu í samningagerð sem ríkissáttasemjari skipuleggur. Þar verða samninga- menn verkalýðsfélaga og vinnuveit- enda, bæði á almenna og opinbera vinnumarkaðnum, nýliðar í kjara- samningum og reynsluboltar. „Við vonumst til þess að þetta verði til að gera undirbúning kjarasamnings- gerðar betri. Fólk komi vel verkfærum búið til næstu samn- inga,“ segir Bryndís Hlöð- versdóttir ríkissáttasemjari. Námstefnan var undirbúin í sam- vinnu við heildarsamtök á vinnu- markaði. Þar verður komið víða við. Meðal annars er farið yfir lagaum- hverfið, efnahagslegt samhengi, hvernig hugmyndafræðin um teym- isvinnu getur nýst til að efla samn- inganefndir, samskipti við samn- ingaborðið, grunnatriði samninga- tækni og hvernig best er að setja fram kröfugerð. Þá verður ein mál- stofa um reynslu Norðmanna af undanfarasamningum. Bryndís tekur fram að ekki verði fjallað um kröfugerð eða verkalýðs- pólitík, það séu mál sem samninga- nefndir ákveði hver fyrir sig. 250 manns skráð sig Ástæðan fyrir því að svo fjöl- breyttur hópur situr saman á nám- stefnu er að Alþjóðavinnumálastofn- unin hvatti til hennar. Bryndís segir að það sé ákveðið fag að vera í samninganefnd. Sömu grunnatriðin eigi við um alla sem eru í því hlut- verki. Áformað var að halda eina nám- stefnu í þessari viku og aðra í haust. Námstefnurnar eru haldnar á Bif- röst í Borgarfirði. Um 80 manns skráðu sig á fundinn núna og um 170 manns hafa skráð sig í haust og verða því haldin þrjú námskeið alls. Bryndís er ánægð með þátttökuna. Samningar flestra verkalýðs- félaga verða lausir um eða eftir ára- mót. Bryndís viðurkennir að tíma- setning námstefnanna taki að einhverju leyti mið af því. Fræðslan geti verið upphaf að undirbúningi fyrir kjarasamningagerð. helgi- @mbl.is Reynt fólk og ný- liðar á námstefnu  Læra tækni við kjarasamningsgerð Bryndís Hlöðversdóttir tekur þátt Vestur-Íslendingurin Jo- Ann Johnson, prófessor frá Calgary í Kanada, og segir frá skimun fyrir meðgöngueitrun, leiðum til að skima fyrir sjúkdómnum og meðferð fyrir konur í áhættu. Einnig fjallar hún um nýjar aðferðir við greiningar á óeðlilegri litningagerð fósturs, þar sem hægt er að styðjast við blóð- prufur frá móður, en sú aðferð ryður sér nú til rúms. Rannsóknin stendur ekki til boða á Íslandi, að minnsta kosti ekki enn sem komið er. Þá Fjöldi fæðingarlækna, með fóstur- greiningu og meðgöngusjúkdóma sem sérgrein, tekur þátt í norrænni ráðstefnu sem verður í vikunni á Hótel Natura. „Þessi grein læknis- fræðinnar er í mikilli framþróun,“ segir Hildur Harðardóttir, fæð- ingar- og kvensjúkdómalæknir, sem er meðal frummælenda. Annar málshefjandi er Bo Jakobs- son frá Svíþjóð sem talar um lýð- heilsu í tengslum við fósturgrein- ingu og meðgöngusjúkdóma. Þá verður fjallað um vaxtarskerðingu sem greinist á fósturskeiði og þar eru bæði sænskir og breskir fyrir- lesarar. Einnig verður fjallað um framþróun í erfðalækningum og sið- fræði fósturgreininga. Að sögn Hildar Harðardóttur taka um 140 manns þátt í ráðstefn- unni; erlendir læknar að stórum hluta en einnig ljósmæður sem starfa við fósturgreiningu á Land- spítalanum auk lækna sem hafa áhuga á að kynna sér efnið. Fjalla um fósturgreiningu  Fjöldi sérfræðilækna væntanlegur á norræna ráðstefnu Ingvar J. Rögn- valdsson hefur verið settur ríkis- skattstjóri frá og með 1. maí. Ingv- ar hefur verið vararíkisskatt- stjóri frá 1. ágúst 2000. Ingvar á að baki nær fjögurra áratuga starf inn- an skattkerfisins. Hann lauk lög- fræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1977 og stundaði framhaldsnám við Kaupmannahafnarháskóla á árunum 1977 til 1979. Hann varð starfsmaður Skattstofu Reykjavíkur 1979 og fór síðar til embættis ríkisskattstjóra. Skúli Eggert Þórðarson, fráfar- andi ríkisskattstjóri, hefur verið kjörinn ríkisendurskoðandi af Al- þingi og lét hann af störfum sem rík- isskattstjóri um mánaðamótin, eftir ríflega 11 ár í starfi. Alls á hann að baki 37 ára starfsferil innan skatt- kerfisins. Í dag, miðvikudag kl. 10, mun Steingrímur J. Sigfússon, forseti Al- þingis, setja nýjan ríkisendurskoð- anda í embætti. Sveinn Arason, frá- farandi ríkisendurskoðandi, lét af störfum 30. apríl sl. sisi@mbl.is Ingvar sett- ur ríkis- skattstjóri Ingvar J. Rögnvaldsson Sanna Magdalena Mörtudóttir, námsmaður og málsvari fátækra barna, leiðir lista Sósíalistaflokks Ís- lands í borgarstjórnarkosningunum í ár. Í tilkynningu segir að framboðs- listinn samanstandi af baráttufólki fyrir hagsmunum láglaunafólks, leigjenda, öryrkja, lífeyrisþega, fá- tækra og annarra hópa sem haldið hefur verið frá völdum. Helsta erindi framboðsins er krafa um að hin verr settu komist til valda, að borgin byggi húsnæði þar til húsnæð- iskreppan sé leyst og borgi starfs- fólki borgarinnar mannsæmandi laun. Listinn er fullskipaður 46 ein- staklingum en tuttugu efstu eru eft- irfarandi: 1. Sanna Magdalena Mörtudóttir 2. Daníel Örn Arnarsson, bílstjóri og stjórnarmaður í Eflingu stéttarfélagi 3. Magdalena Kwiatkowska, af- greiðslukona og stjórnarmaður í Efl- ingu stéttarfélagi 4. Hlynur Már Vilhjálmsson, í starfs- endurhæfingu og stofnandi Fóstur- heimilisbarna 5. Ásta Þórdís Guðjónsdóttir, sam- hæfingarstjóri Pepp á Íslandi, sam- taka fólks í fátækt 6. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar stéttarfélags 7. Reinhold Richter, aðaltrúnaðar- maður í ISAL 8. Anna Maria Wojtynska, há- skólanemi og lausamanneskja 9. Laufey Líndal Ólafsdóttir náms- maður 10. Natalie Gunnarsdóttir diskótekari 11. Styrmir Guðlaugsson öryrki 12. Kristbjörg Eva Andersen Ramos námsmaður 13. Erna Hlín Einarsdóttir þjónustu- fulltrúi 14. Hólmsteinn A. Brekkan, blikkari og framkvæmdastjóri Samtaka leigj- enda 15. Elsa Björk Harðardóttir öryrki 16. Jón Kristinn Cortez, tónlistar- kennari og eftirlaunamaður 17. Ella Esther Routley dagmamma 18. Pálína Sjöfn Þórarinsdóttir verkakona 19. Þórður Alli Aðalbjörnsson, í starfsendurhæfingu 20. Ósk Dagsdóttir kennari Sósíalistaflokkurinn kynnir framboðslista  Sanna Magdalena leiðir í Reykjavík 2018

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.