Morgunblaðið - 02.05.2018, Page 31
Fræg Hótelerfinginn Paris Hilton er
opinská í nýrri heimildarmynd, Meme.
Hótelerfinginn Paris Hilton greinir
frá því í nýrri heimildarmynd um
samfélagsmiðlastjörnur að henni
hafi liðið eins og henni hafi verið
nauðgað eftir að myndbandi af
henni í samförum við fyrrverandi
unnusta, Rick Salomon, var lekið á
netið árið 2004.
„Það var eins og mér hefði verið
nauðgað,“ segir Hilton. „Mér fannst
sem ég hefði misst hluta af sálu
minni,“ segir hún og að hana hafi á
tímabili langað að deyja.
Heimildarmyndin sem Hilton
segir þetta í nefnist Meme og er eft-
ir leikstjórann Bert Marcus. Var
hluti af markmiði hans að sýna aðr-
ar hliðar á samfélagsmiðlastjörn-
unni víðfrægu sem er einn af erf-
ingjum Hilton-hótelakeðjunnar.
Myndin var frumsýnd á Tribeca-
kvikmyndahátíðinni í New York
sem haldin var í síðustu viku.
Líkir kynlífsmynd-
bandi við nauðgun
Íslenski dansflokkurinn frum-sýndi verkið Hin lánsömu eft-ir Anton Lachky síðastliðiðföstudagskvöld. Lachky hef-
ur getið sér gott orð sem danshöf-
undur en hann samdi áður verk með
dansflokknum, Fullkominn dagur til
drauma, og fékk fyrir það Grímu-
verðlaun árið 2012.
Hin lánsömu er blanda af súrreal-
ísku leikriti með miklum texta,
danssýningu, glamúr, skemmtun og
kabarett. Það hefst á kraftmikinn
og epískan hátt þar sem dans-
ararnir keppast hver um annan að
ná athygli áhorfandans, klæddir ga-
lakjólum og kjólfötum. Hannes Þór í
hlutverki Leiðtogans býður okkur
velkomin heim til sín og fjölskyldu
sinnar. Þau eru ríkasta fjölskylda
Íslands, þau eiga Ísland, og þau eru
alltaf hamingjusöm! Hann ávarpar
dansarana með þeirra eigin nöfnum
og hegðar sér eins og sjónvarps-
kynnir í beinni útsendingu, ýktur og
sjálfumglaður. Hann hefur völdin og
ákveður reglurnar, hann er brúðu-
meistarinn, költleiðtoginn.
Verkið spyr spurninga um sam-
félag og innri virkni þess, völd og
frelsi einstaklingsins, og hvort hægt
sé að finna hamingjuna í fyrir-
myndarheimi allsnægtanna. Áhorf-
andinn fær fljótt á tilfinninguna að
hann sé fastur í vondum draumi eða
standi á barmi endalokanna. Allt er
mjög óþægilegt, andrúmsloftið
blandað sjúkri meðvirkni og fjöl-
skyldan föst í ánauð Leiðtogans.
Það koma augnablik þar sem virðist
eins og Leiðtoginn sé að missa tök-
in, og heimurinn ætli að leysast upp,
en það gerist svo ekki. Áhorfandinn
bíður þannig eftir uppreisn eða upp-
gjöri sem kemur aldrei og verkið
endar á ófullnægjandi hátt.
Í einni senu lætur Leiðtoginn
systkini sín leika dansandi grísi
undir klassískri tónlist. Með þessari
grótesku uppstillingu skapar höf-
undurinn andrúmsloft ofbeldis og
óþæginda sem þó var á sýningunni
tekið með fögnuði hjá mörgum
áhorfendum. Leiðtoginn heldur síð-
an áfram og lætur karlkyns dansar-
ana í hlutverk hafmeyja með stút á
munni og stór brjóst, nei, stærri
brjóst! Hér eru karlmenn að gera
grín að kvenleika með það að mark-
miði að skemmta áhorfendum. Ef
þetta á að vera kaldhæðin satíra eða
ádeila þá er það ekki skýrt. Það þarf
að íhuga vel svona framsetningu,
svona grín hefði mátt deyja í gær.
Karldansararnir þrír fara allir
með veigamikil hlutverk. Hannes í
hlutverki Leiðtogans er þungamiðja
verksins, og hinir karldansararnir,
Andrean og Einar, fá einnig bita-
stætt efni til að moða úr. Þeir ögra
Leiðtoganum, annar með draum-
órum og frelsisþrá, en hinn með
erótíkinni. Allir þrír gera hlut-
verkum sínum góð skil, þeir hafa
gott vald á húmor og sýna mikla
færni í oft erfiðum kringumstæðum.
Kvenhlutverkin eru mun veiga-
minni, í raun svo veigalítil að maður
spyr sig hvort femínísk umræða hafi
ekki náð eyrum höfundarins. Það er
helst að Þyri Huld hafi eitthvað til
að vinna úr í hlutverki litlu systur-
innar, sem þó því miður snýst aðal-
lega um að hún skuli vera passíf,
krúttleg og setja sig þess á milli í
sirkusstellingar. Hinir kvendansar-
arnir eru enn frekar í bakgrunni, ef
undan eru skildir nokkrir örstuttir
sólódansar, og á sérstaklega Tanja
Marín þar eftirminnilega innkomu.
Þetta kemur á óvart og maður spyr
sig hvers vegna í ósköpunum kven-
dönsurum flokksins eru ekki gefin
sterkari hlutverk í stórsýningu eins
og þessari. Hlutverk Leiðtogans
hefði til dæmis alveg eins getað ver-
ið í höndum konu, og skal þá engri
rýrð varpað á frammistöðu Hann-
esar, sem sannarlega var glæsileg.
Höfundurinn hefur greinilega
smekk fyrir skrumskælingu. Á ein-
um stað í verkinu vitnar hann með
beinum hætti í Svanavatnið, sem er
viðmiðunarpunktur í danssögunni.
Senan er hlaðin kaldhæðni og er
mögulega skot á staðalímyndir
dansheimsins, en maður spyr sig
hvort það hafi verið ætlunin eður ei?
Á öðrum stað tilkynnir Leiðtoginn
okkur að nú ætli þau að dansa eins
og við sjáum dansað í myndböndum
á YouTube, við áhorfendur hljótum
að kannast við það. Maður spyr sig
hvort þurfi tengingu við Svanavatn-
ið eða YouTube til að við skiljum
eða misskiljum? Þarf að láta dans-
ara gera ýktar eftirlíkingar af dýr-
um til að við veltumst um af hlátri?
Er einhver ótti við að áhorfendur
kunni ekki að meta dans og þurfi því
ýkta leikræna tilburði og dægur-
tengingar til að ná til þeirra?
Lýsingin í sýningunni er fag-
mannleg, hún þjónar verkinu, og
það er unnið fallega með reyk.
Hljóðmyndin samanstendur af
klassískri tónlist í bland við teknó-
tónlist og þunga dróna, og hún styð-
ur þannig undir heildarupplifunina.
Búningarnir eru flottir og raunsæir,
skýr hugmynd sem passar vel inn í
óljósan glamúrheim. Leikstíllinn er
ýktur, og ná dansararnir að gera
leik góð skil og halda athygli áhorf-
enda, ásamt því að sýna stórkost-
lega danshæfileika. Kóreógrafían
einkennist af stuttum og hröðum
frösum þar sem dansararnir
stökkva af stað úr kyrrstöðu í kraft-
mikinn dans. Danshöfundurinn ger-
ir miklar kröfur með sínum ein-
kennandi hröðu danstempóum.
Dansararnir takast á við verkið af
mikilli einbeitni og krafti, gefa
hvergi eftir, en þó er tempóið svo
hratt á köflum að áhorfandinn sér
að þau eiga í fullu fangi með að
halda í við hraðann. Kannski hefði
mátt slaka þarna aðeins á og leyfa
dönsurunum að njóta sín betur.
Það hefur komið fram að danshöf-
undurinn hefur unnið efnið og hand-
ritið á mjög skömmum tíma, og
hann er sjálfur sinn eigin drama-
túrg. Það er ekkert að því að vinna
hratt og alfarið út frá eigin sýn, en í
þessu tilfelli hefði lengri undirbún-
ingur og meiri íhugun verið til bóta.
Við hefðum þá séð heildstæðari
verk og betri útfærslur á einstökum
atriðum. Það er líka mjög einhæft
hvernig sviðsrýmið er nýtt. Leiðtog-
inn er oftast fremst á sviðinu, dans-
ararnir fyrir aftan, og sviðið virkar
oft hálftómt. Svo eru klisjukenndar
uppsetningar þar sem hópurinn ger-
ir eitthvað samhæft og einn dansari
brýst fram í sóló. Það er ekkert
ferðalag á sviðinu sem segir eitt-
hvað, og það vantar að huga að smá-
atriðum.
Á köflum er Hin lánsömu fyndin,
glæsileg og skemmtileg sýning, en
það er færni dansaranna sem gerir
hana þess virði að sjá. Sú hugsun
situr í manni að lokinni sýningu
hvernig hægt sé í dag að bjóða upp
á verk á stóru sviði með miklum um-
búnaði og fyrirhöfn, sem gerir lítið
úr hlutverki kvenna og hinir kúguðu
meðlimir fjölskyldunnar fá aldrei
tækifæri á uppreisn. Ef verkið á að
vera kaldhæðið eða ádeila á skipt-
ingu valdsins, hvort sem er í dans-
heiminum eða almennt, þá er það
ekki skýrt. Skilaboðin eru á tvist og
bast og grunnurinn sem byggt er á
er óljós. Hins vegar gefur efni
verksins tilefni til margra heilabrota
og umræðna, sem er gott, en maður
spyr sig: Hver er boðskapurinn og
hver er tilgangurinn?
Ljósmynd/Jónatan Grétarsson
Dansararnir „Á köflum er Hin lánsömu fyndin, glæsileg og skemmtileg sýning, en það er færni dansaranna sem
gerir hana þess virði að sjá,“ segir rýnir. Skilaboðin í verkinu séu á tvist og bast og grunnurinn óljós.
Óljós heimur
valda og karla
Borgarleikhús, stóra sviðið
Hin lánsömu bbnnn
Íslenski dansflokkurinn.
Hugmynd og handrit: Anton Lachky.
Danshöfundur: Anton Lachky. Ljósa-
hönnuður: Björn Bergsteinn Guðmunds-
son. Búningahönnuður: Júlíanna Lára
Steingrímsdóttir. Hljóðmynd: Baldvin
Magnússon. Dansarar: Einar Aas Nikke-
rud, Elín Signý Weywadt Ragnarsdóttir,
Hannes Þór Egilsson, Hjördís Lilja Örn-
ólfsdóttir, Inga Maren Rúnarsdóttir,
Sigurður Andrean Sigurgeirsson, Tanja
Marín Friðjónsdóttir og Þyri Huld Árna-
dóttir.
Frumsýning föstudag 27. apríl 2018.
NÍNA
HJÁLMARSDÓTTIR
DANS
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s
Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s
Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s
Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Mið 6/6 kl. 20:00 49. s
Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Fim 7/6 kl. 20:00 50. s
Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s
Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s
Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas.
Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Fim 31/5 kl. 20:00 41. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Mið 2/5 kl. 20:00 24. s Sun 6/5 kl. 20:00 28. s Fös 18/5 kl. 20:00 32. s
Fim 3/5 kl. 20:00 25. s Fim 10/5 kl. 20:00 29. s Lau 19/5 kl. 20:00 33. s
Fös 4/5 kl. 20:00 26. s Fös 11/5 kl. 20:00 30. s
Lau 5/5 kl. 20:00 27. s Fim 17/5 kl. 20:00 31. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 2/5 kl. 20:30 11. s Mið 9/5 kl. 20:30 15. s Fim 17/5 kl. 20:30 23. s
Fim 3/5 kl. 20:30 aukas. Fim 10/5 kl. 20:30 aukas. Fös 18/5 kl. 20:30 24. s
Fös 4/5 kl. 20:30 12. s Fös 11/5 kl. 20:30 16. s Lau 19/5 kl. 20:30 aukas.
Lau 5/5 kl. 20:30 13. s Sun 13/5 kl. 20:30 22. s
Sun 6/5 kl. 20:30 14. s Mið 16/5 kl. 20:30 aukas.
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Hin lánsömu (Stóra sviðið)
Fim 10/5 kl. 20:00 3. s Sun 13/5 kl. 20:00 4. s Mið 16/5 kl. 20:00 5. s
Kraftmikil og kómísk saga 8 systkina sem lifa velmegunarlífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn
Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn
Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 7.sýn
Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn Lau 12/5 kl. 19:30 6.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Stríð (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn
Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l
Faðirinn (Kassinn)
Sun 6/5 kl. 19:30 49.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Aðfaranótt (Kassinn)
Fös 11/5 kl. 19:30 Frums Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 12/5 kl. 19:30 2.sýn Lau 19/5 kl. 19:30 6.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 10.sýn
Mið 16/5 kl. 19:30 3.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn
Fim 17/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn
Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 2/5 kl. 20:00 Mið 9/5 kl. 20:00 Mið 16/5 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Á flakki um landið)
Þri 15/5 kl. 11:00
Vestm.eyjar
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn)
Mið 2/5 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30
Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018