Morgunblaðið - 02.05.2018, Side 25

Morgunblaðið - 02.05.2018, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018 Félagsstarf eldri borgara Árskógar Handavinna með leiðb. kl. 9 - 16. Opin smíðastofa kl. 9 - 16. Stóladans með Þórey kl. 10. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13 - 16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40 - 12.45. Kaffisala kl. 15 - 15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s. 535-2700. Boðinn Miðvikudagur: Handavinnustofa opin frá 9 - 15. Harmonikkuspil og söngur kl. 13.30. Vatnsleikfimi kl. 14.30. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa 9 -16. Myndlist kl. 9 - 12. Morgunkaffi 10 - 10:30. Boccia kl. 10:40 - 11:20. Börn frá leikskólanum Stakkaborg koma í heimsókn kl. 13. Glerlist kl. 13 - 16. Spiladagur, frjáls spilamennska 12:30-15:50. Opið kaffihús 14:30 - 15:15. Dalbraut 18-20 Samverustund með sr.Davíða Þór kl.14. Verslunar- ferð í Bónus kl.14.45 Garðabær Vatnsleikfimi Sjál. Kl. 7:40/15:15. Kvennaleikfimi í Sjál kl. 9:30. Kvennaleikfimi í Ásg. Kl. 10:40. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16:15. Lokað í Jónshúsi vegna uppsetningu á Vorsýningu eldri borgara í Garðabæ. Gerðuberg Miðvikudagur Opin Handavinnustofan kl. 08:30-16. Útskurður m/leiðbeinanda kl. 09 - 12. Útskurður / Pappamódel m/leiðb. kl 13 - 16. Félagsvist kl. 13 - 16. Leikfimi Helgu Ben kl. 11:15-11:45. Allir velkomnir. Gjábakki kl. 9. Handavinna, kl. 9.10 Byrjenda-Boccia, kl. 9.30. Glerlist, kl. 13. Félagsvist, kl. 13. Postulínsmálun. Gullsmári Miðvikudagur. Myndlist kl 9. Ganga kl 10. Pótulínsmálun / Kvennabridge / Silfursmiði kl 13. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Boccia kl.10 – 11. Útskurður með leiðbeinanda, kl. 9 - 12, 500kr skiptið, allir velkomnir. Opin handavinna kl. 9 – 14. Hádegismatur kl. 11.30. Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, morgunkaffi og spjall til 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 10 hjá Carynu. Samverustund kl. 10.30 lestur og spjall. Hádegismatur kl. 11:30. Handavinnuhópur kl. 13, línudans kl. 13.30, eftirmiðdagskaffi kl. 14:30. Vorgleði verður föstudag 11. maí, grill og góður matur, uppl. á staðnum eða s. 535-2720, allir velkomnir. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.8.50, upplestrarhópur Soffíu kl. 9.45, ganga kl.10, línudans með Ingu kl.10. Zumba dans leikfimi með Auði kl. 13, tálgun í ferskan við með Valdóri kl.14.30, síðdegiskaffi kl.14:30, allir velkomnir óháð aldri upplýsingar í s. 411-2790. Korpúlfar Ganga kl. 10 í dag frá Borgum og inni í Egilshöll á sama tíma. Gaman saman í Borgum kl. 13 í dag allir velkomnir. Norðubrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, trésmiðja kl. 9 - 12, morgunleik- fimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10 - 12, upplestur kl. 11, félagsvist kl. 14, ganga m.starfsmanni kl. 14, bónusbíllinn kl. 14.40, heimildarmyndasýning kl.16. Seltjarnarnes Gler, glerbræðsla neðri hæð Félagsheimilis kl. 9. og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía salnum Skólabraut kl.10. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn Valhúsaskóla kl.13. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi sundlauginni kl 18.30. Á morgun fimmtudag 3. maí kl. 13.30 verður félagsvist í salnum á Skólabraut. Munið skráninguna í ferðina í Stykkishólm og Breiðafjarðareyjar 8. maí. s. 893-9800. Félagslíf Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl 20.00. Samkoma kl. 20 í Kristni- boðssalnum. Gestir sam komunnar Janet Sewell og Hans Kristian Skaar. Allir velkomnir. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Atvinnublað alla laugardaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og á mbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? Smá - og raðauglýsingar Landssamband kvenna í fræðslustörfum. Þuríður var for- seti Landssambandsins og við í nýju deildunum nutum hand- leiðslu hennar þegar við vorum að fóta okkur í starfsemi og til- gangi félagsins. Menntunarþrá Þuríðar var einkennandi fyrir hana. Eftir kennarapróf 1948 frá Kennara- skóla Íslands fór hún að kenna við ýmsa skóla, en sótti á þeim tíma nám í Cambridge og í Kennaraháskóla Kaupmanna- hafnar. Þegar hún svo fékk Full- bright-styrk 1967 fór hún til Bandaríkjanna og lauk þar BSc- prófi, mastersprófi og síðan doktorsnámi í menntasálarfræði 1971 við Illinois-háskóla í Urban. Lokastórvirki hennar var svo að vinna að útgáfu Borgfirskra æviskráa. Það var mikil vinna. Sjö síðustu bindi verksins komu út undir hennar ritstjórn. Þuríður var dagfarsprúð kona og lumaði á græskulausri kímni. Það var gott að hlæja með henni. Miklu ævistarfi er lokið. Margir munu minnast hennar með þakklæti og gleði. Ættingjum hennar sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Pálína Jónsdóttir. Þuríður Kristjánsdóttir var örlagavaldur í mínu lífi þegar hún réð mig til starfa við Kenn- araháskóla Íslands fyrir rúmum fjörutíu árum. Ég var þá nýkom- in heim úr sálfræðinámi í Frakklandi, en Þuríður var pró- fessor í uppeldis- og námssál- arfræði við nýstofnaðan Kenn- araháskóla Íslands, fyrst til að gegna þeirri stöðu. Þetta var upphafið að einstaklega ánægju- legu samstarfi og djúpri vináttu við Þuríði mína sem ævinlega studdi sinn unga kollega með ráðum og dáð og reyndist mér sannkölluð heilladís á starfsferl- inum. Þuríður lauk kennaraprófi og hóf kennsluferil rúmlega tvítug. Hún átti síðar eftir fara í fram- haldsnám í Kaupmannahöfn, Cambridge, London og loks ljúka doktorsprófi frá Illinois háskóla 1971. Leiðbeinandi hennar þar lýsti henni sem ein- um besta nemanda sem hann hefði haft og doktorsritgerðinni sem „simply outstanding“. Hér heima sinnti hún fjölþættum hlutverkum í flestu því sem laut að skólaþróun og þróun kenn- aramenntunar á afar viðburða- ríku tímabili í íslenskri skóla- sögu, eins og lesa má um í ritinu Steinar í vörðu sem út kom í til- efni af sjötugsafmæli hennar. Þuríður hafði allt það til brunns að bera sem prýða má einn kennara: hnífskarpa hugs- un, einlægan velvilja í garð nem- enda og hæfileikann til að gæða lífi það námsefni sem fyrir lá hverju sinni. Þær ríku kröfur sem hún gerði til sjálfrar sín hlutu að skila sér til nemenda einnig. Henni var ómögulegt að gera hlutina öðruvísi en vel, allt sem hún lét frá sér fara varð lít- ið listaverk: rithöndin eins og skrautskrift og frágangur allur óaðfinnanlegur. Sem náði einnig til framgöngu hennar í dagsins önn, hún var ævinlega glöð og reif og svo umtalsfróm að hefði getað komið niður á skemmti- gildi samræðunnar, ef hún hefði ekki bætt það upp með örlátu spaugi á eigin kostnað. Henni þótti til dæmis ekki lítið fyndið þegar formaður kennarafélags- ins afhenti henni sextugri af- mælisgjöf frá okkur samstarfs- fólkinu og óskaði henni til hamingju með sjötugsafmælið! Honum var raunar vorkunn: af- köst hennar voru slík að ald- urinn passaði engan veginn. Það varð því skarð fyrir skildi þegar Þuríður kaus að láta af störfum um leið og hún hætti sem aðstoðarrektor, þá aðeins 58 ára. Hún hafði verið allt í öllu og í fljótu bragði blasti ekki við hvernig KHÍ gæti án hennar verið, enda þurfti marga starfs- menn til að taka við öllum þeim verkum sem hún hafði á sinni könnu: aðstoðarrektor, námsráð- gjafi, kennslustjóri, skjalavörð- ur, fjármálastjóri auk kennsl- unnar. Við tóku önnur verkefni sem heimtu hana alla, þá fyrst Saga Borgarfjarðar en Þuríður var borin og barnfæddur Borgfirð- ingur og má nærri geta hvort einstök ræktarsemi hennar hef- ur ekki náð til upprunans einnig. Hún yfirgaf okkur í KHÍ sem betur fer ekki alveg, en kenndi áfram tölfræði og aðferðafræði í nokkur ár, alla tíð einstaklega vel liðin og óumdeild jafnt meðal nemenda og starfsfólks. Þuríður lifði langan dag og í fyrra kom fjölmenni saman til að heiðra hana níræða. Elli kerling hafði þá tekið sinn toll eins og gengur, en brosið hlýja og ljúfa sem mætti okkur var eftir sem áður samt við sig. Aðstæður valda því að við Pétur getum ekki fylgt henni síðasta spölinn, en samferðalag- inu er fjarri því lokið, svo ríkan sess á hún í huga okkar, sem kennari Péturs á unglingsárum, samstarfskona mín við KHÍ og alla tíð kær vinur okkar beggja. Hrafnhildur Ragnarsdóttir. Hæverska, alúð og kærleiki eru einkunnarorð efst í huga þegar minnst er skólasystur okkar úr Kennaraskóla Íslands. Manngæska og virðing fyrir öll- um og geislandi hlýja voru lýs- andi eiginleikar Þuríðar allt frá okkar fyrstu kynnum. Í Kennaraskólanum var hún hinn ókrýndi foringi. Hún „dúx- aði“ á lokaprófinu 1948 í bekkn- um okkar. Námið hjá henni virt- ist fyrirhafnarlaust og hafði hún alltaf tíma til að miðla og hjálpa. Eitt dæmi skal nefnt. Hún hafði náð mikilli leikni í hraðritun. Þessa hæfni nýtti hún sér, þegar fyrirlestrar voru fluttir. Hún hripaði þá niður efnið og ljósrit- aði það og við hin nutum góðs af því. Persónuleiki hennar og kennsluhæfni kom svo glögglega í ljós og var hennar aðalsmerki. Námsefnið var henni augljóst og hún gerði flókna hluti skiljan- lega og öll viðskipti hennar ein- kenndust af einlægri hlýju. Þessi einkenni hennar og frá- bær námshæfni á öllum sviðum opnaði henni leið til hæstu stiga menntunar. Kennsluferill hennar hófst í Stykkishólmi. Þar naut ég góðs af samstarfi við hana og kynntist enn betur hæfileikum hennar i kennslunni. Þar var henni falin mikil ábyrgð við fyrsta ár gagn- fræðanámsins og landsprófsins. En þetta var upphaf af hinni miklu ábyrgð á menntun ís- lenskrar æsku, sem lögð var á herðar hennar. Þá skulu örfá orð endurtekin er flutt voru í 85 ára afmæli hennar: Með alúð og vinsemd, en viðmóti hressu var þér svo eiginlegt Þuríður mín. Í Kennaraskólanum kynntumst við þessu, þar kom oft til hjálpar forganga þín. Ef að ég kjarna í kennslunni nefni, þarf kærleiksríkt viðmót að eiga sér stað. Víðtækust þekking á viðfangsefni og vandasöm framlögn að einkenna það. Nærgætni umvafði nemendur þína , nálægð og festa var háttsemi þín. Ummæli margra þar ótvírætt sýna hve aðgát í nærveru sálar er brýn. Unga stúlkan frá Steinum í Borgarfirði hefur á farsælu lífs- hlaupi sínu rutt steinum úr vegi hjá miklum fjölda námfúsra nemenda. Jafnframt hefur hún reist sér óbrotgjarnan minnis- varða á vettvangi mennta og menningar á Íslandi. Við bekkjarsystkinin, Guð- mundur Magnússon, Jón Hjör- leifur Jónsson og Þórunn Lár- usdóttir, minnumst hennar með mikilli virðingu og þökk. Hjörtur Þórarinsson. Á æskuheimili mínu í Skafta- hlíð voru nokkrir kærkomnir fastagestir og einn af þeim var hún Íða okkar. Við bjuggum í sama húsi en hvort í sínum stigaganginum. Innangengt var á milli og leit Íða oft við hjá okk- ur eftir vinnu og var jafnan au- fúsugestur. Hún var ekki tengd okkur fjölskylduböndum en þær mamma voru báðar úr Borgar- firðinum og þar var lagður grunnurinn að vináttu þeirra. Í þau rúmlega sextíu ár sem leiðir okkar hafa legið saman hefur aldrei borið skugga á samskiptin og þau rofnuðu ekki þótt for- eldrar mínir létust báðir langt fyrir aldur fram. Ég var um það bil fjögurra ára þegar kynni okkar hófust og Íða rétt orðin þrítug. Hún var afskaplega góð við okkur systk- inin, sýndi öllu okkar brasi mik- inn áhuga og ekki síst skóla- göngu okkar eftir að hún byrjaði. Hún hafði töluverð áhrif á lífshlaup mitt og alltaf til hins betra. Hún gekk þess ekki dulin hversu mikið mig langaði til þess að fara í sveit á sumrin og þegar hún vissi að það vantaði sumarstelpu á gott heimili í Stafholtstungunum gekk hún í málið og þar var ég í góðu yfir- læti næstu fjögur sumur. Á þessum árum kenndi Íða í Hagaskóla en ákvað að afla sér frekari menntunar í Bandaríkj- unum og hélt utan haustið 1966. Eitt af síðustu verkum hennar áður en hún fór var að útvega mér skólavist í Hagaskóla, sem var ekki minn hverfisskóli en þar þótti betra landspróf en í flestum öðrum skólum. Í nýja skólanum varð ég þess fljótt áskynja hversu góður kennari hún hafði verið og hve nemend- ur söknuðu hennar mikið. Þann- ig var það líka alla tíð að nem- endur hennar, sama á hvaða skólastigi hún kenndi, kunnu af- skaplega vel að meta hana bæði sem kennara og manneskju. Ég er ekki frá því að áhugi Íðu á menntunar- og skólamál- um og velgengni í starfi hafi haft áhrif á starfsval mitt. Það var enginn kennari í fjölskyldu minni en í samræðum við Íðu fann ég hvað kennslan og sam- skiptin við ungt fólk á mótunar- árum þess hafði verið henni mik- ils virði. Kannski þess vegna gat ég hugsað mér að feta sömu slóð og kennsla varð ævistarf mitt. Sem fullorðnar konur áttum við mörg samtöl um skólamál, bár- um saman bækur okkar og alltaf var hægt að leita í viskubrunn hennar. Samvera okkar snerist þó ekki eingöngu um vinnutengd mál því að hún sýndi fjölskyldu minni ávallt mikinn áhuga, fylgdist með krökkunum mínum, tók þátt í merkisatburðum í lífi þeirra og var kærkominn gestur í jólaboðum okkar systkinanna. Eftir að Íða hætti að vinna og hafði meiri tíma fórum við stundum á sýningar og á kaffi- hús á eftir og höfðum báðar mikla ánægju af. Eftirminnileg- asta sýningarferðin okkar var í Safnahús Borgarfjarðar sumarið 2015, en þá stóð þar yfir sýn- ingin „Gleym þeim ei“. Þar var sögð saga 15 borgfirskra kvenna sem höfðu verið á lífi árið 1915 þegar konur fengu kosningarétt. Ein þessara kvenna var Rann- veig á Steinum, móðir Íðu, svo að tilefni ferðarinnar var ærið. Að leiðarlokum kveð ég mína kæru vinkonu með þakklæti fyr- ir ævilanga vináttu, leiðsögn, hvatningu, gefandi samræður og ótal skemmtilegar samveru- stundir. Ingibjörg Axelsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Þuríði J. Kristjáns- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.