Morgunblaðið - 02.05.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.05.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2018 Ég sleit krossbönd og fór í fimm liðþófaaðgerðir. Samt hljóp ég hálft maraþon í sumar verkjalaust. Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Þessi sería heitir í rauninni „Hringtorg ekkert“ og er ljós- myndir af hringtorgum án bygg- inga og bíla og það er ekkert um að vera,“ segir Svavar Pétur Eysteins- son, betur þekktur sem Prins Póló, og sýnir blaðamanni fallegar svart- hvítar ljósmyndir sem hann er nýbúinn að sækja úr prentun. Við erum staddir í Gallery Porti á Laugavegi á miðvikudegi, degi fyrir opnun myndlistarsýningar Svavars sem ber sama titil og nýútkomin breiðskífa hans, Þriðja kryddið. Hún kom út á föstudaginn var og er Svavar í tónleikaferð um landið til að fagna útgáfunni. Snýst um flæði Ljósmyndirnar eru af hring- torgum við Reykjanesbrautina sem Svavar segir tíu talsins, jafnmörg myndunum í syrpunni. Enga bíla eða byggingar er að sjá, kyrrðin alltumlykjandi. „Þær eru mis- skemmtilegar en þessi er með þeim skemmtilegri,“ segir Svavar og dregur ljósmynd upp úr umslagi. „Það er þessi strúktúr í þessu, þessar mjúku línur og þetta flæði. Hringtorg hefur náttúrlega ekkert annað en flæði og snýst um að halda flæðinu,“ útskýrir Svavar. Ljósmyndirnar af torgunum eru af allt öðrum toga en önnur verk Svavars á sýningunni, málverk sem á stendur „Er of seint að fá sér kaffi núna?“ sem er titill á einu laga plötunnar nýju. Undir setningunni er hin góðkunna kóróna prinsins og málverkin nokkur og í breytilegum litum. Svavar segist upphaflega hafa ætlað að ljósmynda sjoppur sem hann hafi verið tíður gestur í á sín- um yngri árum, hann hafi ætlað að ljósmynda minningar. „En ég bara týndist í hugmyndinni, vissi ekki hvernig ég ætlaði að forma hana þannig að þegar ég var að keyra Reykjanesbrautina um daginn og hugsa um þessi hringtorg hugsaði ég með mér að nú myndi ég láta af þessu verða, mynda hringtorgin og ramma þau inn í þetta konsept,“ segir Svavar og talið berst að plöt- unni, Þriðja kryddinu. „Konseptið með þessari plötu er að við erum alltaf að velja hagkvæmustu og auðveldustu leiðina að einhverju takmarki og hérna erum við með nokkrar leiðir, það eru nokkrar leiðir í boði út úr hringtorgi,“ segir Svavar og bendir á ljósmyndirnar. Eltist ekki við myntu og salvíu –Það má þá líka skilja þetta sem hug listamannsins? „Já, það má svolítið gera það. Það eru nokkrar leiðir út úr þessu og þú velur í rauninni bara þína léttustu leið. Þú ferð ekki lengstu leiðina, reynir að taka stystu leiðina og þá ertu kominn að þriðja krydd- inu. Þú vilt frekar nota þriðja kryddið en að vera að eltast við myntu og salvíu, ferskar krydd- jurtir,“ svarar Svavar. Það sé bölv- að vesen að vera að rækta þær eða kaupa dýrum dómum. Þriðja kryddið sé einfaldara. „Og það er alltaf ákveðin leið að settu marki,“ bætir Svavar við, snýr sér aftur að ljósmyndunum og bendir á að veg- irnir hverfi í sumum tilfellum, líkt og þeir gufi upp. „Mér hefur alltaf þótt þetta heillandi mannvirki, hringtorgin,“ segir hann hugfang- inn. Hversdagsleg verkefni „Þegar ég hlustaði á plötuna full- kláraða og var að velta henni fyrir mér fattaði ég um hvað hún snerist, um hversdagsleg verkefni sem fólk er að kljást við frá degi til dags og mörg hver mjög hversdagsleg. Hún fjallar um að fara einfalda leið að einhverju settu marki og þá fannst mér þriðja kryddið vera samnefnari yfir það, ef við tölum um það sem lífsstíl eða hugmyndafræði,“ segir Svavar um titil plötunnar og hvers vegna hann hafi orðið fyrir valinu. Og þessa einföldu leið hefur Svavar farið áður. Hann nefnir fyrstu breiðskífu sína, Jukk, að við gerð hennar hafi hann líka notað þriðja kryddið. „Ég samdi hana á örfáum dögum með opinni stillingu sem gerði þetta einfaldara því gít- arinn spilaði sig hálfpartinn sjálfur. Ég tók allt upp á eina eða tvær trommur, notaði eins einfalda nálg- un og ég mögulega gat og kannski er það það sem ég hef alltaf verið að reyna í tónlistarsköpuninni, að reyna að fara alltaf einföldustu leið, ekki flækja málin. Ef ég er kominn með fleiri en fjórar rásir er betra að henda en bæta við. Ef lagið virk- ar ekki á fjórum rásum er betra að nota það ekki. Og ég geri þetta ítrekað, ef ég er kominn með of margar rásir ákveð ég frekar að henda en byggja ofan á,“ útskýrir Svavar og heldur áfram með mat- arsamlíkinguna. „Ef þú ert að blanda öllum kryddunum í súpuna ertu kannski bara að eyðileggja hana meira og meira og þá er kannski betra að nota bara þriðja kryddið, fara einfalda leið.“ Svavar segir einfaldleikann líka mikilvægan þegar komi að tón- leikum. Ef lögin séu einföld geti hann „sónað út“ og verið meðvit- undarlaus í því sem hann er að gera. Langaði óskaplega í kaffi En hvort kemur á undan, lag eða texti? „Það er mjög mismunandi,“ segir Svavar og nefnir sem dæmi lagið „Er of seint að fá sér kaffi núna?“. „Þessi lína kom þannig að ég sat heima seint um kvöld, það var að koma nótt og ég sprett á fætur, er að spá og spekúlera og labba að kaffivélinni og ætla að hella upp á. Þá kemur upp þessi spurning: Er of seint að fá sér kaffi núna? Þetta var um eða eftir mið- nætti og mig langaði rosalega í kaffi en átti að fara að sofa. Ég skrifaði þessa setningu hjá mér og samdi svo lag um þetta en það var enginn texti í því nema þessi setn- ing, aftur og aftur. Ég samdi fyrst setningu og svo lag og svo mörgum mánuðum seinna varð sagan til og þá þurfti ég að setja mig í ákveðnar stellingar. Um hvað er þetta eig- inlega? Ég varð að semja einhverja sögu og gerði það. Þetta er ein leið en svo er líka leiðin þar sem ég sem lag og skrifa svo textann ofan á það,“ útskýrir Svavar. „Ég er langfljótastur að semja lagið og ef ég væri að gera instrú- mental músík myndi ég örugglega afkasta tífalt meira því textagerðin tekur mestan toll og tíma. Stundum er ég lengi að láta texta passa við lag sem ég er búinn að semja, finna réttu stemninguna. Svo eru önnur lög þannig að það kemur bara lag og texti og lagið er tilbúið fyrir há- degi. Það eru oft skemmtilegustu lögin mín, þegar ég sest niður, dett í einhvern gír og þau bara bullast út.“ Prinsinn má eitt en annað ekki Svavar hefur áður haldið mynd- listarsýningar, sem hann segir hafa flogið heldur lágt. Hann er graf- ískur hönnuður að mennt og hefur unnið töluvert í hönnun og í sjón- ræna miðla; vídeó, grafík og ljós- myndir og þá mikið fyrir sjálfan sig en líka aðra. Og hönnunaráhrifin má greina í málverkum Svavars á sýningunni, sem minna á vegg- spjöld og skilti. „Ég hef verið með mikla þráhyggju fyrir því að mála skilti undanfarið,“ segir hann. En hefur hann þá þörf fyrir að snúa sér reglulega að öðru listformi en tónlist og textaskrifum? „Já, algjörlega, vegna þess að tónlistin fullnægir ákveðinni sköp- unarþörf en þetta er allt annað. Þú býrð þér til annað egó og leyfir þér að hugsa aðeins öðruvísi. Þegar þú gerir tónlist undir alter-egói eins og Prins Póló ertu svolítið fastur, fest- ist í honum. Þetta verður karakter og hann má eitt og má ekki annað, sumt segir hann en annað ekki og þetta verður eitthvert handrit. Þá verður maður að gera eitthvað ann- að til að geta opnað á eitthvað alveg nýtt. Og það er ég kannski að gera hér með því að vinna með liti en ekki hljóð,“ svarar Svavar. –Þú ert ekki Svavar lengur þegar kórónan er komin á höfuðið? „Nei, og til þess er kórónan, til að ég geti farið í karakter og leyft mér að vera prins. Svo get ég farið heim og fengið mér soðna ýsu.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kaffi? Svavar Pétur Eysteinsson, Prins Póló, og þrjú málverk eftir hann óupphengd í síðustu viku. Einfaldasta leiðin að settu marki  Prins Póló gefur út breiðskífuna Þriðja kryddið og heldur myndlistarsýningu með sama titli  Getur verið betra að nota þriðja kryddið en að blanda öllum kryddunum í súpuna, segir prinsinn Ljósmynd/Svavar Pétur Eysteinsson Flæði Ein af ljósmyndum Svavars af hringtorgum Reykjanesbrautar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.