Morgunblaðið - 17.05.2018, Side 2

Morgunblaðið - 17.05.2018, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018FRÉTTIR SVEIGJANLEGOGLIPUR INNHEIMTUÞJÓNUSTA Hafðu samband, við leysum málin með þér! Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is Mesta lækkun Mesta hækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) REITIR -0,56% 89,0 HAGA +7,85% 42,6 S&P 500 NASDAQ -0,38% 7.374,432 -0,44% 2.715,83 +0,12% 7.734,2 FTSE 100 NIKKEI 225 17.11.‘17 17.11.‘1716.5.‘18 16.5.‘18 1.900 752.500 2.103,85 2.325,74 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 78,27 -0,18% 22.717,23 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 55 62,72 PENINGAMÁL Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnti í gær ákvörðun sína um að halda stýrivöxtum óbreyttum. Meginvextir á sjö daga bundnum inn- lánum verða áfram 4,25% og hafa þeir verið óbreyttir frá því í október á síð- asta ári. Í greiningu Íslandsbanka er bent á að stefna bankans og peningastefnu- nefndar virðist lítið hafa breyst á undanförnum mánuðum og að horfur í hagkerfinu séu svipaðar og við síð- ustu spá bankans í febrúar. Bankinn gerir ráð fyrir 3,3% hag- vexti í ár en telur að hann muni finna nýtt jafnvægi í 3%. Verðbólga muni verða í kringum 2,5% verðbólgu- markmið Seðlabankans á næstu miss- erum, en verðbólgan var 2,5% á fyrsta fjórðungi ársins og 2,3% í apríl síðastliðnum. Ný verðbólguspá Seðla- bankans gerir hins vegar ráð fyrir 2,6% verðbólgu á næsta ári í stað 2,2% sem fyrri spá gerði ráð fyrir. Bankinn gerir ráð fyrir minnkandi viðskiptaafgangi, en telur þó að það verði afgangur af utanríkisvið- skiptum út spátímann. Svipaður tónn og áður Í umfjöllun greiningardeilda Arion banka og Íslandsbanka má merkja að þær telji að lítið hafi bori til tíðinda á vaxtaákvörðunarfundi Seðlabankans og tónninn hafi verið svipaður og í febrúar þrátt fyrir að nokkrar lykil- forsendur séu breyttar. Arion banki bendir á það, í Mark- aðspunktum sínum, að í hagvaxtarspá Seðlabankans sé endapunkturinn sá sami, en leiðin þangað öðruvísi. Út- flutningsvöxtur sé hægari en áður var talið, aðallega vegna ferðaþjónust- unnar, en á móti vegur veruleg inn- spýting í fjárfestingu hins opinbera. Þannig bendir greiningardeild Arion banka á það að samsetning hagvaxtar hafi tekið breytingum. Áhyggjur pen- ingastefnunefndar séu þó minni sök- um þess að það sé fjárfesting en ekki einkaneysla sem að ýti undir þjóðar- útgjöld. Seðlabankinn gerir ráð fyrir því að hlutfall íbúðafjárfestinga muni nema rúmlega 5% af landsframleiðslu í ár, sem er um einu prósentustigi hærra en langtímameðaltal þess. Framlag íbúðafjárfestingar til hagvaxtar hefur aukist verulega síðastliðin tvö ár og var í fyrra orðið svipað og á árunum fyrir fjármálakreppuna samkvæmt tölum úr Peningamálum, riti Seðla- bankans, sem út kom í gær. steingrimur@mbl.is Litlar breytingar í stefnu Seðlabankans Morgunblaðið/Hari Seðlabankinn spáir því að verð- bólga verði 2,6% á næsta ári FJARSKIPTI Fjarskiptafélagið Sýn hf. hagnaðist um 56 milljónir króna eftir skatta á fyrsta fjórðungi ársins, að því er fram kemur í afkomutilkynningu félagsins til Kauphallar Íslands. Í desember 2017 keypti félagið til- teknar eignir og rekstur 365 miðla hf. og gætir áhrifa af því á saman- burð fjárhæða á milli ára, eins og fram kemur í tilkynningunni. Hagn- aður ársfjórðungsins leiðréttur fyrir einskiptisliðum er eftir skatta 150 milljónir króna sem er 33% lækkun frá sama tímabili á fyrra ári. Tekjur félagsins á fjórðungnum námu rúmum 5,3 milljörðum króna, og hækkuðu um 69% á milli ára. Eigið fé í lok tímabilsins voru rúmir 10 milljarðar króna, og eig- infjárhlutfall var 39,7%. „Það er ánægjulegt að sjá fyrsta fjórðung sameinaðs fyrirtækis skila tekjuaukningu upp á 69% sem er umfram væntingar,“ segir Stefán Sigurðsson forstjóri félagsins í af- komutilkynningunni. Þá segir hann kostnað fjórðungsins háan, enda samlegðar ekki tekið að gæta í nein- um mæli. Sýn hagnast um 56 milljónir króna Morgunblaðið/Kristinn Stefán segir tekjuaukningu Sýnar umfram væntingar á fjórðungnum. SAMKEPPNI Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í gær að Byko hefði framið alvarleg brot á samkeppnislögum og hækkaði álagða sekt í 400 milljónir króna, en áfrýjunarnefnd samkeppnismála hafði áður talið 65 milljóna króna sekt hæfilega, segir í tilkynningu frá Sam- keppniseftirlitinu. Í tilkynningunni segir að í maí 2015 hafi eftirlitið komist að þeirri niður- stöðu að Byko hafi brotið gegn sam- keppnislögum og EES-samningnum með umfangsmiklu ólögmætu sam- ráði við gömlu Húsasmiðjuna. Lagði eftirlitið 650 milljóna króna sekt á Norvik, móðurfélag Byko, sem kærði ákvörðunina til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í október 2015 komst nefndin að þeirri niðurstöðu að Byko hefði tekið þátt í ólögmætu verðsamráði. Hins vegar féllst nefnd- in ekki á að ákvæði EES-samningsins hefðu verið brotin. Einnig taldi nefndin að brot Byko hafi ekki verið jafn alvarleg og Samkeppniseftirlitið lagði til grundvallar. Taldi nefndin því hæfilegt að lækka sekt Byko úr 650 milljónir króna í 65 milljónir. Brot Byko gegn sam- keppnislögum staðfest Morgunblaðið/Ómar Málið hófst þegar Múrbúðin snéri sér til Samkeppniseftirlitsins. Hagnaður Haga dróst saman um 41% milli rekstrarára, en reikningar fé- lagsins spanna frá 1. mars til loka febrúar ár hvert. Verslunum fækkaði úr 52 niður í 46 á síðasta rekstrarári og dróst sala saman um 4,5% ef tekið er tillit til aflagðrar starfsemi. Lokað var meðal annars Hagkaupum í Holtagörðum, Zöru í Kringlunni, Debenhams í Smáralind og nokkrum tískuvöruverslunum félagsins. Mark- aðsaðilar eru þó sammála um að- félagið stefni í rétta átt í ljósi þess að rekstrarárið litaðist af endur- skipulagningu félagsins og verð- hjöðnun á matvörumarkaði. „Uppgjörið í gær var betra en við áttum von á og í rauninni líka betra en félagið sjálft gerði ráð fyrir ef litið er til afkomuáætlunar þess,“ segir Elvar Ingi Möller í greiningardeild Arion banka. Áætlun Haga fyrir næsta rekstr- arár er að EBITDA verði 5 milljarðar króna og segir Elvar að það sé hærra en flestir markaðsaðilar gerðu ráð fyrir. Hlutabréf í Högum hækkuðu í gær um 7,17% í rúmlega 507 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni eftir uppgjör félagsins. „Það má leiða líkur að því að afkomuáætlun félagsins hafi einnig spilað inn í þá hækkun sem varð á gengi bréfanna í dag [miðviku- dag],“ segir Elvar. Sala dróst saman Vörusala Haga nam 73,8 millj- örðum króna samanborið við 80,5 milljarða króna árið á undan. Fram- legð var 18,3 milljarðar króna, sam- anborið við 20,0 milljarða króna rekstrarárið áður. Framlegðarhlut- fallið var 24,8% og stóð í stað milli ára. EBITDA-hagnaður félagsins lækkaði úr 6.024 milljónum króna niður í 4.139 milljónir en gert er ráð fyrir að EBITDA hækki um tæp 20% á komandi ári ef áætlanir félagsins ganga eftir. Laun og launatengd gjöld hækkuðu um 255 milljónir króna milli ára og stóð launahlutfallið í 11% miðað við 9,7% árið áður. „Costco-áhrif“ óveruleg „Fyrstu viðbrögð eru þau að mér finnst Hagar vera að ná vopnum sín- um aftur með þessu uppgjöri,“ segir Jóhann Viðar Ívarsson hjá hluta- bréfagreiningu IFS, „þó að upp- gjörið líti ekki þannig út við fyrstu sýn.“ Jóhann segir það eflaust koma mörgum á óvart að „Costco-áhrifin“ virðast ætla að verða minni þegar til kastanna kemur heldur en menn bjuggust við. „Lækkunin á sölu með tilliti til aflagðar starfsemi er ein- ungis 4,4% milli ára sem má að mestu leyti skrifa á verðhjöðnun sem hefur átt sér stað á matvörumarkaði, fyrst og síðast vegna styrkingar krónu. Hagar halda álagningu sinni að fullu milli ára, sem verður að telj- ast góðs viti fyrir þá.“ Uppgjöri Haga vel tekið á markaðnum Steingrímur Eyjólfsson steingrimur@mbl.is Hlutabréf í Högum hækk- uðu um liðlega 7% í kjölfar ársuppgjörs þar sem hagnaður dróst verulega saman á milli ára. Morgunblaðið/Ómar Hagnaður Haga dróst saman milli ára en framlegðarhlutfall stendur í stað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.