Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 8
Magnús Orri segist í samtali við Viðskipta- Moggann vera sífellt að hugsa um að koma hlutum á hreyfingu, að skapa eitthvað nýtt. „Ég hef gert örugglega hátt í 10 mismunandi viðskiptaáætlanir í gegnum tíðina, sumt hefur gengið upp en annað ekki,“ segir Magnús og brosir um leið og hann kveikir á tölvunni til að sýna blaðamanni kynningu á metnaðarfyllsta verkefninu til þessa, Fjallaböðunum í Þjórs- árdal, sem fyrirhugað er að hefja byggingu á vorið 2019. Rauðukambar, félagið sem heldur utan um Fjallaböðin, eru með aðstöðu á skrifstofuhæð Bláa lónsins í turninum á Smáratorgi. Magnús er sjálfur fyrrverandi markaðsstjóri húðvara hjá Bláa Lóninu og þekkir því vel til ferðaiðn- aðarins. Auk þess skrifaði hann bók árið 2012 þar sem hann viðraði sýn sína fyrir Ísland í nútíð og framtíð. Eitt af leiðarstefjunum þar er uppbygging umhverfisvænnar ferðaþjón- ustu, sem Magnús segir að sé leiðin fram á við fyrir Ísland. Hann vill að sú sýn birtist með skýrum hætti í Fjallaböðunum. Þjórsárdalurinn setið eftir Þjórsárdalurinn hefur að sögn Magnúsar Orra setið eftir í ferðamannabylgjunni sem staðið hefur yfir hér á landi frá hruni, þrátt fyrir að í dalnum sé að finna ýmsa áhugaverða sögustaði og fagrar náttúruperlur. Flestir sem koma í dalinn ferðast þar á eigin vegum að sögn Magnúsar, enda er aðgengi að mörgu leyti ábótavant, vegir slæmir og ekki hefur verið byggð góð aðstaða fyrir ferðafólk við náttúruperlur eins og Gjána og Háafoss. „Við viljum koma að því í samstarfi við heimamenn að bæta aðstöðu ferðafólks til að njóta Þjórs- árdalsins. Bæði með uppbyggingu Fjallabað- anna og gistingar og svo ekki síður með upp- byggingu annarrar aðstöðu víða um dalinn. Fjallaböðin verða umhverfisvænt hótel og baðlón þar sem fólki á að líða vel eftir útivist í dalnum og á hálendinu. Sumir vilja koma við í böðunum sem hluti af dagsferð, aðrir vilja gista. Hjá okkur á fólk að geta notið sín í lopa- peysunni, eftir að hafa verið úti að leika sér á fjallaskíðum eða hestbaki. Við erum ekki að horfa til þess að þú þurfir að tipla um í hvítum slopp eða á háum hælum,“ segir Magnús kankvís. Staðurinn á að verða, að sögn Magnúsar, eins konar miðstöð fyrir þá sem leggja leið sína um dalinn, í hvaða erindagjörðum sem þeir kunna að vera. Um er að ræða fjögurra milljarða króna framkvæmd, sem fjármögnuð er að fullu af frumkvöðlunum Magnúsi, bróð- ur hans Ellerti og Ragnheiði B. Sigurð- ardóttur og Íslenskum heilsulindum, sem eru í eigu Bláa Lónsins, Eldeyjar og Icelandic To- urism Fund. „Þetta teymi er mjög sterkt. Það var til dæmis gaman fyrir okkur frum- kvöðlana að hitta forsvarsmenn þessara aðila, því frá fyrstu tíð fundum við hvað þau voru áhugasöm um þessa nálgun okkar. Þá er Ragnheiður uppalin á Ásólfsstöðum í Þjórs- árdal og það er mikill akkur fyrir verkefnið að hafa hana um borð. Hennar þekking er ómet- anleg,“ segir Magnús. Hann segir að markmiðið sé að upplifun hvers og eins verði sem allra best. „Við viljum skilja bílastæði vel frá baðlóninu og gisting- unni. Því munum við byggja þjónustumiðstöð sem þjónar sem gestamóttaka niðri við veg um átta kílómetrum frá og ferja fólk á raf- magnsbílum eftir fjallvegi til og frá Fjallaböð- unum. Þannig munu gestir setjast upp í raf- magnsbifreið og „klöngrast“ eftir misgóðum malarvegi upp að Fjallaböðunum. Það yrði allt hluti af upplifuninni. „Ef það er snjór þá verð- ur bara smá vesen að fara í bað,“ segir Magn- ús brosandi og heldur áfram: „Með þessu vilj- um við ná því besta fram, gefa fólki kost á að upplifa baðferð í einstakri náttúru og minnka áreitið frá bílum og umferð. Þetta eru líka skýr skilaboð um áherslur okkar í umhverf- ismálum,“ segir Magnús Orri, en hann hefur unnið að verkefninu allt síðan frumkvöðlarnir hófu samstarf fyrir þremur árum. Heita vatnið er aðalatriðið Magnús lýsir náttúrunni á svæðinu sem stór- merkilegri. Háifoss, Hjálparfoss og Gjáin séu allt fallegir áfangastaðir, og gervigígar í daln- um séu einstakir á heimsvísu. Aðstandendur Fjallabaðanna vilji bæta aðgengi að þessum perlum, t.d. með merkingu gönguleiða, upplýs- ingaskiltum, göngubrúm yfir Fossá og fleiru. „Við erum að framkvæma á viðkvæmu svæði og erum fullkomlega meðvituð um ábyrgð okkar hvað snertir einstaka náttúru dalsins. Þá er ótalin menning svæðisins, en Stöng og Þjóð- veldisbærinn í Þjórsárdal eru að mörgu leyti gleymdar perlur en bærinn er tilgátuhús byggt á höfuðbýlinu Stöng sem talið er að hafi farið í eyði í Heklugosi árið 1104.“ Magnús segir að heita vatnið sem vellur upp úr jörðinni sé forsenda þess að ráðist sé í fram- kvæmdina. Það hefur í áratugi runnið í sund- Fjögurra milljarða krón Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Fjallaböðin, nýr baðstaður og 40 herbergja hótel, í eigu dótturfélags Bláa Lónsins, Íslenskra heilsu- linda, og þriggja frumkvöðla, munu byrja að rísa á næsta ári í Þjórsárdal. Magnús Orri Schram, forsvarsmaður og einn frumkvöðl- anna í verkefninu, segir að lögð verði áherslu á upplifun í Fjallaböð- unum, og verkefnið í heild verði eitt hið umhverfisvænasta sem sést hefur hér á landi. 8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018FRÉTTASKÝRING Mikil jákvæðni ríkir gagnvart Fjallaböð- unum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, að sögn oddvitans, Björgvins Skafta Bjarna- sonar. „Það eru allir spenntir fyrir þessu, nú þegar ljóst er að þetta er að verða að veru- leika,“ segir Björgvin í samtali við Við- skiptaMoggann. „Þetta er óhemju flott og öflugt ferðamannasvæði, en það hefur ekki verið notað til að þjónusta ferðamenn, sem hafa því gengið þarna sjálfala. Það hefur svolítið farið í taugarnar á okkur, því það skemmir landið.“ Björgvin segir að Fjallaböðin muni skipta miklu máli fyrir atvinnulífið í hreppnum. Hann segist aðeins hafa áhyggjur af tveim- ur málum. Annars vegar að vel verði staðið að umhverfismálunum og eins að staðurinn verði ekki einhver lúxusstaður, eins og hann orðar það. „Forsætisráðuneytið [sem fer með þjóðlendurnar] hefur talað fyrir því að þetta verði ekki þannig staður, og það eru allir á sömu blaðsíðu með það.“ Ferðamennirnir hafa gengið sjálfala „Við í Basalt viljum að byggingin verði hluti af þessa stórbrotna umhverfi. Með því að fella bygginguna inn í landið lágmörkum við sjónræn áhrif hennar. Jarðvegsrannsóknir hafa einnig sýnt fram á að ákjósanlegt sé að fella bygginguna í fjallið vegna dýptar niður á föst jarðlög á svæðinu. Efnið sem tekið er úr hlíðinni er notað á ný til að fergja þakið og húsformið er brotið upp svo að herbergin og aðrir hlutar byggingarinnar standa stök út úr jörðinni. Að vissu leyti mætti segja að við séum um leið að kinka kolli til íslenskrar byggingararfleifðar,“ segir Marcos Zotes arkitekt hjá Basalt arkitektum. Hann bætir við að veðurfar og sólaráttir ráði einnig miklu um formun byggingarinnar. „Lega hennar í fjallinu er frá vestri til austurs en þannig náum við að hámarka birtu í húsið frá suðri. Beggja vegna byggingarinnar eru sterkir vindstrengir úr norðri sem koma nið- ur með hlíðunum. Með því að fella bygg- inguna í landið lágmörkum við vindálag og viðhald vegna veðurfars.“ Verkefnið kinkar kolli til íslenskrar byggingararfleifðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.