Morgunblaðið - 17.05.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 17.05.2018, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018 11FRÉTTIR TIL LEIGU Lyngháls 10 – 110 Reykjavík Iðnaðar- og lagerhúsnæði Stærð: 318 fm Leiguverð: Tilboð 534 1020 Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is Ólafur S: 824 6703 Magnús S: 861 0511 Sigurður J. S: 534 1026 Helgi Már S: 897 7086 Bergsveinn S: 863 5868 Ólafur Jóhannsson Rekstrarfræðingur, löggiltur fasteignasali og löggiltur leigumiðlari 534 1023 / 824 6703 olafur@jofur.is Til leigu 318 fm lagerhúsnæði við Lyngháls 10 í Reykjavík. Góð aðkoma fyrir ofan húsið. Laust frá 1. júní. Ekki vsk húsnæði. Húsnæðið er mest einn salur í dag. Innkeyrsludyr með inngöngudyr. Tvö salerni og ræstikompa. Útgengi er út á sér svalir í húsnæðinu. Auðvelt að koma fyrir skrifstofum í húsnæðinu. Lyfta er í sameign. Gólf er lakkað. Lofthæð er um 3,5 m. Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði Pantaðu verðmat eða skoðun - 534 1020 // sala@jofur.is Af síðum Það mætti segja að Facebook hafi valið undarlegan tíma til að ákveða að notfæra sér enn meira af persónuupplýsingum notenda sinna. En kannski er samfélags- vefurinn að reyna að kveikja aftur neist- ann í ört kulnandi ástarsambandi við not- endur. Fyrr í mánuðinum tilkynnti Mark Zuckerberg að fyrirtækið vildi hjálpa um 200 milljón einhleypum notendum sam- félagsvefsins að færa vináttuna á næsta stig með nýrri stefnumótaþjónustu. Þegar þetta fréttist lækkaði hluta- bréfaverð Match, sem er best þekkt fyrir Tinder-snjallforritið, um fimmtung. Á tæplega þremur árum hafa hlutabréf Match nærri fjórfaldast í verði. Í ljósi þess að stefnumótavörumerki félagsins á netinu hafa ráð- andi stöðu á markaðinum, þá gæti félagið mögulega staðið uppi í hárinu á heimsins stærsta netfyrirtæki. Match Group spratt upp úr IAC, félagi Barry Diller, árið 2015. Í eignasafni Match má m.a. finna Match.com og OkCupid. En afar gott gengi félagsins að undanförnu skýrist aðallega af snjallforritinu Tinder, sem IAC þróaði innanhúss árið 2012 og leyfir not- endum að gefa til kynna hverjum þeir laðast að með því að renna fingr- inum til vinstri eða hægri á skjánum. Tinder, sem var ókeypis í fyrstu, er í dag með meira en 50 milljón not- endur. Árið 2015 var bætt við nýjum þjónustuflokki með fleiri notk- unarmöguleikum og áskriftargjaldi. Í dag eru um þrjár milljónir manna sem borga fyrir áskrift að Tinder af þeim sjö milljónum sem eru í áskrift að stefnumótavörum Match. Tekjurnar tvöfölduðust og gott betur árið 2017 og námu 400 milljónum dala. Markaðsgreinendur hjá Piper Jaffray áætla að árið 2020 geti þessi tala verið komin upp í 1,4 milljarða dala. Það virðist ekki vera of dýrt fyrir fyritækið að laða til sín nýja viðskiptavini, sem sést m.a. á 35% framlegð af rekstrinum. Það er ekki skrítið að svona rekstrartölur hafi vakið áhuga Facebook. Þar verður stefnumótaforritið aðskilið frá samfélagsvefnum, en auðvelt fyrir Facebook-notendur að kjósa að nýta sér stefnumótaþjónustuna. Hvort notendur munu treysta Facebook eða yfirhöfuð hafa trú á að þar sé góður vettvangur til að finna ástina, er eitthvað sem á eftir að koma í ljós. En Facebook þarf bara lítið brot af tveimur milljörðum notenda sinna í þessa nýju þjónustu til að fyrirtækið hafi erindi sem erfiði. Auk Tinder má finna ýmsa aðra lofandi sprota sem nálgast stefnu- mótamarkaðinn hver með sínum hætti, svo sem Bumble og Coffee Meets Bagel. Sú mikla lækkun sem varð á gengi hlutabréfa í Match virðist hafa verið fullharkaleg. Markaðsráðandi staða félagsins mun ekki gufa upp í einni svipan. En fjárfestar láta tilfinningarnar ekki flækjast fyrir sér þegar þeir slíta sambandinu við hlutabréf vaxtarfyrirtækja. LEX AFP Facebook og Tinder: Rennt til hliðar Elon Musk tilkynnti á mánudaginn að hann stæði nú í breytingum á yfirstjórn Tesla. Þannig skýrði hann brotthvarf fjölda yfirmanna að undanförnu, sem kveikt hefur í gagnrýnisröddum sem segja yfir- stjórn félagsins í upplausn. Í stuttum tölvupósti til starfsfólks segir forstjórinn að hann „standi nú í umfangsmikilli endurskipulagn- ingu“ í því skyni að undirbúa fyrir- tækið fyrir framtíðina. „Hluti af endurskipulagningunni er að fletja út skipuritið til þess að auka samskipti, samræma starfsemi þar sem það á við og draga úr vinnu sem hefur ekki úrslitaþýðingu til þess að við náum markmiðum okk- ar,“ stóð í póstinum. Kapphlaupið með Model 3 Skilaboð Elon Musk koma í kjöl- far þess að Doug Field, yfirmaður verkfræðisviðs, lagði niður störf á afar viðkvæmum tíma fyrir fyrir- tækið, þegar það keppist við að ná framleiðslumarkmiðum sínum fyrir lok júní. Félagið reynir nú að auka framleiðslu á Model 3 bílum upp í 5 þúsund á viku, en það er um 150% aukning frá lokum mars. Tesla segir að Doug Field „taki sér nú leyfi til þess að endurhlaða batteríin og verja tíma með fjöl- skyldu sinni“. Field er fyrrverandi yfirmaður framleiðslu Macintosh- vélbúnaðar hjá Apple. Þó svo að Tesla hafi fullyrt að Field hefði „ekki sagt skilið við“ fyrirtækið, voru ekki gefnar neinar vísbendingar um hve- nær hann myndi snúa aftur né hvort hann myndi halda sama starfi í kjöl- far endurskipulagningar á yfir- stjórninni. Jafnvel áður en Field hvarf á braut hafði Musk tekið vandamál vegna Model 3 á sínar herðar og reynt að leiða fyrirtækið í gegnum það sem hann kallaði „framleiðslu- helvíti“. Hann tók við ábyrgð á fram- leiðslunni af Field fyrr á þessu ári. Hins vegar hefur reynsluleysi Musks sjálfs í fjöldaframleiðslu á bílum aukið enn á vandann við að koma framleiðslu Model 3 á skrið. Hann neyddist til þess að viður- kenna fyrr á árinu að Tesla hefði gengið of langt í sjálfvirknivæðingu í framleiðsluferlinu, sem gert hefur það flóknara að leysa flöskuhálsa. Þurfti að stíga skref til baka og auka handvirkni í framleiðslunni á ný. Brotthvarf lykilstarfsmanna Doug Field var einn af fimm æðstu stjórnendum fyrirtækisins í ársbyrjun. Annar, Jon McNeill, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu, yfirgaf fyrirtækið í febrúar. Aðrir sem nýlega hafa látið af störfum eru meðal annars Matthew Schwall, sem stýrði tæknilegum samskiptum fyrirtækisins við öryggiseftirlits- stofnanir, en hann fór yfir til keppi- nautarins Waymo fyrr í þessum mánuði, mitt í viðamiklum rann- sóknum stjórnvalda á óhöppum sem tengjast farartækjum Tesla. Fyrir tveimur vikum greindi Musk greiningaraðilum frá því að hann hygðist „fara í einskonar endurskipulagningu á skipulagi fyrirtækisins“, án þess að fara út í nánari útfærslu eða að minnast á uppstokkun á yfirstjórn. Vísbendingar um umrót í yfir- stjórninni samtímis því sem Tesla reynir að ná tökum á framleiðslu- vandamálum sínum hafa hleypt krafti í fjölmarga gagnrýnendur fyrirtækisins á Wall Street á liðnum vikum. Fjárfestar höfðu skortselt hlutabréf í Tesla fyrir andvirði um 12 milljarða dala í lok apríl. Bréfin eru þau sem mest eru skortseld á markaði. Af þeim sökum hafa ýfingar milli Musks og fjárfesta aukist enn frek- ar, og hefur það sett stjórnendur fé- lagsins í þá stöðu að virka í sífellt meiri vörn. „Látum þá iðrast“ Doug Field reyndi sjálfur að nota sívaxandi skortstöðu fjárfesta til þess að blása starfsmönnum Tesla eldmóð í brjóst þegar ná þurfti há- leitum framleiðslumarkmiðum. „Ég tek þetta sem perónulega móðgun og það skuluð þið gera líka,“ sagði hann. „Látum þá iðrast þess að hafa tekið stöðu gegn okkur. Þið eigið eft- ir að sýna fram á að hatursmenn- irnir hafa rangt fyrir sér.“ Musk hefur sjálfur gefið í í árás- um sínum á skortsala og aðra gagn- rýnendur á Wall Street. Á símafundi með greiningaraðilum fyrr í þessum mánuði svaraði hann ekki tveimur fyrirspyrjendum og kvartaði yfir „bjánaspurningum“. Síðar reyndi hann að útskýra undarlega hegðun sína í tísti, þar sem hann hélt því fram að greiningaraðilarnir hefðu haft uppi „skortsölu-fullyrðingar“ um hlutabréf fyrirtækis hans. Lofaði hann „skort-bruna aldarinnar“ þeg- ar Tesla myndi loks ná mark- miðum sínum með Model 3. Musk endurskipuleggur yfirstjórn Tesla Richard Waters í San Francisco Ítrekaðar tafir á fram- leiðslu á Model 3 bíl Tesla og brotthvarf lykilstjórn- enda hafa aukið á tor- tryggni gagnvart félaginu og er skortsala hvergi meiri en í hlutabréfum í Tesla um þessar mundir. AFP Tafir í framleiðslu hafa aukið enn á tortryggni fjármálamarkaðarins gagnvart Elon Musk og nemur skortsala hlutabréfa í Tesla nú um 12 milljörðum dala.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.