Morgunblaðið - 31.05.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 31.05.2018, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018FRÉTTIR SVEIGJANLEGOGLIPUR INNHEIMTUÞJÓNUSTA Hafðu samband, við leysum málin með þér! Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is Mesta lækkun Mesta hækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) ICEAIR -3,68% 12,05 HAGA +1,90% 45,5 S&P 500 NASDAQ +0,57% 7.466,996 -0,15% 2.723,63 -0,35% 7.689,57 FTSE 100 NIKKEI 225 1.12.‘17 1.12.‘1730.5.‘18 30.5.‘18 1.900 752.500 2.074,5 2.270,00 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 77,42 -1,93% 22.018,52 BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) 55 63,73 Rekstrarhagnaður Primera Travel Group nam 196 milljónum króna í fyrra að sögn Andra Más Ingólfs- sonar, forstjóra og eiganda félagsins. Velta þess nam 38 milljörðum króna. Fyrirtækið rekur ferðaskrifstofur á Norðurlöndum, m.a. Bravo Tours í Danmörku, Solresor í Svíþjóð, Solia í Noregi, Matkavekka í Finnlandi og Heimsferðir og Terranova hér á landi. Andri Már segir að árið 2017 marki tímamót í rekstri félagsins. „Nú er lokið þriggja ára endur- skipulagningar- og umbreytingaferli þar sem við höfum stokkað rekst- urinn algjörlega upp. Þetta hefur að mörgu leyti verið mjög erfitt en skilar sér nú í því að við horfum upp á tals- verðan vöxt á komandi árum.“ Í kjölfar þess að félagið keypti leið- andi ferðaskrifstofur á Norður- löndum og hafið samþættingu þeirra í fimm löndum, hefur verið unnið að því að samþætta reksturinn í nýjum tækni- og gagnagrunni. „Þetta var mjög flókið verk og raunar töpuðum við talsverðum tíma og peningum þegar við lögðum af stað með rangt kerfi. Við fundum svo mun betri lausn sem hefur tekið okk- ur talsverðan tíma að koma í gagnið. En nú þegar það er komið felur það í sér gríðarleg vaxtartækifæri þar sem við getum opnað fyrir sölu í mun fleiri löndum með lágmarksfjárfestingu.“ Bendir hann á að með hinu nýja kerfi geti fyrirtækið tengst gríð- arlegum fjölda söluaðila, bæði í flugi og gistingu, í rauntíma og það skapi sveigjanleika sem ekki var til staðar áður. „Á meðan tæknibyltingin felur í sér ógnanir við hefðbundnar ferða- skrifstofur þá leynast einnig í því tækifæri. Áður fyrr þurftu ferðaskrif- stofur að leigja flugvélar, beina þeim á tiltekna staði yfir ákveðið tímabil og reyna að fylla vélina. Núna getum við selt ferðir í fjölmörg flugfélög á hverjum tíma, ekki aðeins okkar vél- ar heldur einnig annarra fyrirtækja. Þarna liggja mikil tækifæri.“ Gríðarleg hagræðing Þá segir Andri Már að samþætting rekstrarins og tækniþróunin hafi leitt af sér gríðarlegan sparnað. „Við höfum lokað 56 söluskrif- stofum og umsvif sem kölluðu á 500 starfsmenn áður er hægt að leysa af hendi með 250 manns í dag. Þannig sjáum við að rekstrarkostnaður hefur lækkað um 1,5 milljarða króna milli áranna 2016 og 2018.“ Segir hann að uppfærð rekstrarspá fyrir yfirstand- andi ár feli í sér hagnað upp á 967 milljónir króna. Skoða skráningarmöguleika Andri Már segir að nú sé fyrir- tækið komið á þann stað að til greina komi að skrá það á markað. „Eftir að hafa unnið mikið inn á við síðustu þrjú árin stefnum við núna á talsverðan vöxt. Líklega 8% í ár og 15% á árinu 2019. Í mínum huga kem- ur vel til greina að skrá félagið á markað til þess að byggja enn frekar undir vöxtinn. Í dag er eigið fé félagsins um 5,8 milljarðar króna, eiginfjárhlutfallið 33% og heildar- eignir um 18 milljarðar. Það er sterk staða að byggja á.“ Segir Andri Már að þar komi bæði til skoðunar svokölluð hlutaskráning á markað hér heima og erlendis eða alfarið hér heima. „Þetta förum við að skoða núna. Ég held að félag af þessum toga væri spennandi kostur fyrir fjárfesta enda ekkert fyrirtæki á þessu sviði sem er skráð hér heima í dag.“ Auk Primera Travel Group á Andri Már einnig Pri- mera Air. Hann segir að þar á bæ sé einnig mikill vöxtur. „Veltan á Primera Air nam um 20 milljörðum í fyrra. Við sjáum fram á að veltan verði um 30 milljarðar á þessu ári.“ Primera kannar möguleika á skráningu Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Primera Travel Group stefnir á mikinn vöxt á komandi árum og til greina kemur að skrá félagið á markað. Það velti 38 millj- örðum króna í fyrra. Andri Már Ingólfsson er bæði eigandi og forstjóri Primera Travel Group. HÚSNÆÐISMARKAÐUR Leigufélagið Heimavellir hagn- aðist um 99 milljónir króna á fyrsta fjórðungi þessa árs, samkvæmt til- kynningu félagsins til Kauphallar. Þar segir einnig að rekstrarhagn- aður fyrir matsbreytingu og af- skriftir hafi numið 533,5 milljónum króna. Þá voru rekstrartekjur tíma- bilsins rúmlega 906 milljónir. Heildareignir Heimavalla námu rúmum 56 milljörðum króna í lok mars, en þar af voru fjárfesting- areignir rúmir 53 milljarðar og fjár- festingareignir í byggingu rúmlega 2,5 milljarðar króna. Eigið fé félagsins var 17,7 millj- arðar í lok ársfjórðungsins. Heild- arskuldir námu 38,8 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfallið er 31,3%. „Uppgjör fyrsta ársfjórðungs er í takt við væntingar og rekstur félagsins er á réttri leið. Við erum að reka öflugt leigufélag með það að markmiði að stuðla að uppbyggingu almenns leigumarkaðar á Íslandi eins og þekkist víða á Norðurlöndum og víðar í Evrópu,“ segir Guð- brandur Sigurðsson framkvæmda- stjóri í tilkynningunni. tobj@mbl.is Heimavellir hagnast um 99 milljónir króna Hlutabréf Heimavalla voru skráð í Kauphöll Íslands á dögunum. SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegsfyrirtækið HB Grandi hagnaðist um 3,3 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2018, jafnvirði ríflega 400 milljóna króna. Á sama tímabili í fyrra var hagnaðurinn til samanburðar 3,7 milljónir evra. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu félagsins til Kauphallar Íslands. Tekjur félags- ins á tímabilinu námu 50,2 millj- ónum evra en á sama tímabili árið á undan voru tekjurnar 42 millj- ónir evra. Eiginfjárhlutfall lækkar Heildareignir félagsins námu 509 milljónum evra í lok mars. Þar af voru fastafjármunir 425 millj- ónir evra og veltufjármunir 84 milljónir evra. Eigið fé nam 260 milljónum evra, og eiginfjárhlutfall í lok mars var 51,1%, en var 51,6% um áramótin. Heildarskuldir félagsins voru í marslok tæplega 250 millj- ónir evra. tobj@mbl.is Hagnaður HB Granda 400 milljónir króna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tekjur HB Granda jukust um meira en átta milljónir evra á tímabilinu. SKIPAFLUTNINGAR Skipafélagið Cargow, sem að meirihluta er í eigu Íslendinga, hef- ur gengið frá fjármögnunarsamningi á fjórða flutningaskipi sínu sem nú er í smíðum í Taizhou í Kína. Skipið sem um ræðir er, líkt og hin fyrri þrjú, tæplega 140 metrar á lengd, tæplega 22 metrar á breidd og hefur burðargetu upp á 12 þúsund tonn. Það mun bera einkennisnafnið Sigyn W og verður afhent Cargow í júlí næstkomandi. Samningur um fjármögnunina var undirritaður í Tókýó nú í vikunni að viðstöddum sendiherra Íslands í Japan og utanríkisráðherra Íslands. Bjarni Ármannsson, stjórnar- formaður félagsins, segir að skipin hafi öll verið fjármögnuð í Japan. „Það er hagstætt að fjármagna skip í Japan. Hér er mikil þekking á skipafjármögnun, vextir eru hér lág- ir og alþjóðlega samkeppnishæfir. Það er hvað mikilvægast fyrir okkur að geta fest fjármögnunarkostnaðinn til langrar framtíðar.“ Vísar Bjarni þar til þess að vextirnir á fjármögnun skipanna eru festir til 15 ára, án end- urfjármögnunaráhættu og gjald- miðlaáhættu þar sem fjármögnunin er í sömu mynt og tekjurnar. Fyrri tvö skipin sem Cargow hef- ur látið smíða hafa nú þegar verið afhent og eru komin inn í leiðakerfi fyrirtækisins sem lýtur að flutn- ingum fyrir Alcoa á Íslandi og í Noregi, til og frá Rotterdam. Þriðja skipið er statt á Suður-Kínahafi á leið til Evrópu og mun innan skamms bætast inn í leiðakerfið. Sigyn W mun svo bætast inn í kerfið í september næstkomandi. Bjarni segir það táknrænt að fulltrúar íslenskrar utanríkisþjón- ustu hafi verið viðstaddir undirritun fjármögnunarsamningsins. „Það er alveg ljóst að sú þjónusta sem þar er veitt skiptir viðskipta- lífið miklu máli og ástæða til að geta þess að þarna er unnið gott starf. Við erum þakklát fyrir þá sér- fræðiþekkingu sem þarna er og það jákvæða viðhorf sem þar ríkir gagn- vart stuðningi við viðskipti milli landa.“ Fjórða skipið fjármagnað Samningur um fjármögnun skips Cargow var undirritaður í Japan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.