Morgunblaðið - 31.05.2018, Qupperneq 4
FARARTÆKIÐ
Í einni af sögunum um Viggó
Viðutan bregður úfinhærði iðju-
leysinginn á leik og gerist keppnis-
hjólreiðamaður. Hann spanar fram
úr öllum, að því er virðist áreynslu-
laust, en svo kemur í ljós að hann
hafði stungið rafhlöðum inn í
grindina á reiðhjólinu og tengt við
mótor.
Cowboy-rafmagnsreiðhjólið
minnir á uppátæki Viggós, því bú-
ið er að fela rafhlöðuna innan í
sætisstönginni. Er samt auðvelt
fyrir notandann að fjarlægja raf-
hlöðuna og taka hana með sér þeg-
ar hjólinu er lagt. Ekki tekur
nema 2,5 klukkustundir að
hlaða rafhlöðuna og á
hleðslan að nægja til að
ferðast allt að 48 km
vegalengd án þess að
þurfa að reyna á einn ein-
asta vöðva í fótunum.
Fullkomnir skynjarar
greina hvernig hjólið er notað og
beina auknum krafti út í keðjuna
þegar á þarf að halda.
Eins og það sé ekki nóg þá er
Cowboy-hjólið með innbyggðum
fram- og afturljósum og diska-
bremsum, og með þar til gerðu
snjallsímaforriti má greina notkun
hjólsins í þaula og vakta hvar það
er staðsett. Er þá eftir að nefna að
hönnunin þykir hafa heppnast svo
vel að hjólið hlaut Red Dot-
hönnunarverðlaunin á dögunum.
Hjólið kostar 2.125 dali og fæst
hjá http://cowboy.bike. ai@mbl.is
Rafmagnshjól sem
læðist með veggjum
Í FERÐALAGIÐ
Eins og lesendur hefur eflaust
lengi grunað þá hafa blaðamenn Við-
skiptaMoggans tamið
sér ýmsa ósiði. Þeir
eiga t.d. erfitt með að
fúlsa við góðum
kokkteil og þykir
ágætt að púa vindil
endrum og eins.
Og verandi svona
miklir nautnaseggir
vita þeir að það getur
verið óttalegt basl að
ferðast út í heim með
uppáhaldsvindlana. Tóbakslaufið er
viðkvæmt, þolir ekki hnjask og þarf
að geyma við rétt raka- og hitastig.
Sumir vindlaunnendur grípa til
þess ráðs að fjárfesta í plastöskjum
sem eru sérhannaðar fyrir vindla á
ferðinni, þar sem hver vindill er um-
vafinn mjúkum svampi. Þær öskjur
hafa samt ákveðna galla, enda nokk-
uð fyrirferðarmiklar, ekkert sér-
staklega fallegar og ekki með pláss
fyrir aukahluti eins og kveikjara og
vindlaskera.
Vandinn er leystur með þessu
„vindlaveski“ frá Puro Prestige
(www.puroprestige.com). Veskið er
á stærð við fílófax og er með litlu
hólfi úr sedrusviði sem rúmar allt að
fjóra vindla í venjulegri stærð. Einn-
ig er vasi fyrir vindlaskera og kveikj-
ara og að auki gullhúðaður standur
þar sem hvíla má vindilinn á meðan
hann er reyktur. Vindlaveskið má
m.a. fá gert úr brúnu eða svörtu
leðri, eða í felulitum fyrir veiðimenn-
ina og kostar 375 dali. ai@mbl.is
Ekki skilja uppáhalds-
vindlana eftir heima
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018FRÉTTIR
Snögg
og góð
þjónusta
Stafrænt prentaðir
límmiðar á rúllum
Vantar þig lítið upplag?
Stafræn límmiðaprentun hentar vel fyrir minni upplög.
Pappír, hvítt plast, glært plast og fl. þú velur!
Sími 540 1818 | Skemmuvegi 4 | Kópavogi
midaprent@midaprent.is | midaprent.is
DHL hefur kynnt ýmsar nýj-
ungar til sögunnar á undan-
förnum árum og opnaði nýlega í
Firðinum í Hafnarfirði fjórða
SwipBox-pósthólfið; sjálfvirkt
kerfi þar sem viðskiptavinir geta
skilið eftir og sótt sendingar á
þeim tíma sem þeim hentar.
Sverrir Auðunsson fram-
kvæmdastjóri segir vaxandi vin-
sældir netverslunar hafa haft
töluverð áhrif á starfsemina.
Hverjar eru helstu
áskoranirnar í rekstrinum
þessi misserin?
Við höfum verið að glíma við
ákveðin en ólík húsnæðisvanda-
mál á báðum starfsstöðvunum
okkar sem við erum að leysa. Þar
að auki hefur vöxtur undanfar-
inna tveggja ára í netverslun ver-
ið gríðarleg áskorun og hafa
henni fylgt vaxtarverkir. Það hef-
ur kallað á mikla fjarfestingu í
innviðum, kerfum og starfsfólki
til að tryggja að þjónustugæðin
okkar samræmist kröfum og
væntingum viðskiptavina á hverj-
um tíma. Samkeppni um starfs-
fólk á Keflavíkurflugvallar-
svæðinu hefur einnig verið
áskorun.
Hver var síðasta ráðstefnan
sem þú sóttir?
Það var mér mikill heiður að fá
að taka þátt í viðburðinum Fram-
úrskarandi fyrirtæki í Hörpu, og
það í fyrsta skipti í sögu DHL á
Íslandi. Þar flutti Jóhannes frá
Fabrikkunni skemmtilegt erindi
og boðskapur hans endurspeglaði
einmitt það viðhorf mitt að við
værum ekki í Hörpunni ef ekki
væri fyrir okkar frábæra starfs-
fólk.
Hvaða bók hefur haft mest
áhrif á hvernig þú starfar?
Bókin Shackleton’s Way er sú
bók sem hefur veitt mér mestan
innblástur. Leiðtogahæfnina sem
einkenndi Shackleton er auðveld-
lega hægt að yfirfæra á nútíma-
kröfur stjórnenda. Og að tileinka
sér það góða frá öllum mínum
fyrirmyndum hefur reynst mér
vel.
Hver myndi leika þig í kvik-
mynd um líf þitt og afrek?
Þar sem ég fæddist í Keflavík,
held með Njarðvík, bý í Grinda-
vík og vinn í Reykjavík myndi
Jason Biggs leika mig í ævin-
týramyndinni Leitin að fullkomnu
Víkinni. Einhvers konar sam-
bland af Goonies og Indiana Jon-
es með húmorinn frá American
Pie.
Hvernig heldurðu
þekkingu þinni við?
Ég reyni að lesa efni á netinu
og nýti 50 km aksturinn á milli
heimilis og vinnu til að hlusta á
m.a. viðskiptatengda netvarps-
þætti. Auk þess lærir maður
einna mest á því að kenna öðrum
þannig að ég reyni að miðla þekk-
ingu minni áfram og dreg svo
lærdóm af reynslusögum annarra.
Hvaða kosti og galla sérðu
við rekstrarumhverfið?
Flutningaþjónustan hefur feng-
ið að njóta góðs af sprengingunni
sem hefur orðið í netverslun og
sést það vel á aukningunni á inn-
flutningi vara til landsins. Út-
flutningurinn frá Íslandi hefur
ávallt átt erfitt með að halda í við
innflutninginn en við höfum verið
að brúa bilið og höfum aðstoðað
t.d. íslenskar netverslanir við að
koma sér af stað út í heim. Í
gegnum flutningskerfið okkar
náum við að tengja Ísland til yfir
220 landa og eru ákveðin tæki-
færi fólgin í því fyrir okkar við-
skiptavini.
Hvaða lögum myndirðu
breyta ef þú værir einráður
í einn dag?
Tel að það sé fjöldi laga sem
ætti að breyta. Myndi leyfa
beygju til hægri á rauðu ljósi,
veita meiri fjárstuðning til Toll-
stjórans til að uppfæra þjón-
ustuna nær nútímanum og
tryggja að refsidómar væru í
samræmi við afleiðingar afbrota.
En umfram allt er brýn þörf á
lagasetningu sem tryggir lands-
mönnum hraða læknisþjónustu og
á því sviði hefur Ísland klárlega
dregist aftur úr hinum Norð-
urlandaþjóðunum.
SVIPMYND Sverrir Auðunsson, framkvæmdastjóri DHL á Íslandi
Hefur Shackleton
sem fyrirmynd
Morgunblaðið/Arnþór
Sverrir hefur tamið sér að nota 50 km aksturinn á milli heimilis og vinnu til að hlusta á fræðandi efni.
NÁM: Stúdent frá Bayside High School í Virginia Beach
1994. Framhaldsnám tekið í Virginia Wesleyan, Old Dom-
inion og útskrifaðist ég sem viðskiptafræðingur með áherslu
á fjármál frá Auburn University, Montgomery árið 1999.
STÖRF: Hef unnið hjá DHL frá aldamótunum, þar af átta ár
sem rekstrarstjóri og sjö ár sem fjármálastjóri.
ÁHUGAMÁL: Nýt þess að verja tímanum með fjölskyldu og
vinum. Fylgist vel með íþróttum en búinn að leggja skóna á
hilluna í fótboltanum eftir krossbandsslitin. Reyni að komast
sem oftast í golf á sumrin og hef verið í stjórn Golfklúbbs
Grindavíkur í sex ár.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég er kvæntur Sesselju Bogadóttur
náms- og starfsráðgjafa og á fimm börn á aldrinum 4-17
ára.
HIN HLIÐIN