Morgunblaðið - 31.05.2018, Side 7

Morgunblaðið - 31.05.2018, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018 7SJÁVARÚTVEGUR • Staðfest deiliskipulag sem gerir ráð fyrir 86 íbúðum frá 35 – 250 m2 á fjórum til átta hæðum. • 5181 m2 lóð. • Í stað núverandi bygginga á lóðunum er heimilt að reisa íbúðabyggingu/fjölbýlishús í einni U-laga byggingu með bifreiðageymslu og verslun/þjónustu á jarðhæð ásamt geymslum í kjallara. Óskað er eftir tilboðum í verkefnið. NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR: AM Praxis lögmannsstofa Reynir Karlsson, löggiltur fasteignasali Sigtúni 42, 105 Reykjavík Símar 533 3333 og 824 7227 Netfang: reynir@ampraxis.is Fasteignaverkefni til sölu Borgartún 34-36 Útreikningar Deloitte sýna að árið 2016 greiddi íslenskur sjávar- útvegur um það bil 47 milljarða króna fyrir vörur og þjónustu frá iðnfyrirtækjum sem þjónusta grein- ina. „Þetta eru einkum fyrirtæki sem eru að smíða og hanna fisk- vinnsluvélar og aðrar tæknilausnir, og einnig félög sem að skaffa um- búðir, veiðarfæri og því um líkt,“ út- skýrir Lovísa Anna Finnbjörns- dóttir, meðeigandi hjá Deloitte og sviðsstjóri fjármálaráðgjafar. Greining Deloitte var gerð í sam- vinnu við Samtök fyrirtækja í sjáv- arútvegi og segir Lovísa að ekki fari milli mála að sá iðnaður sem orðið hefur til í kringum sjávarútveginn sé risastór atvinnugrein. „Við skil- greindum þennan hóp innlendra iðn- og tæknifyrirtækja og skoðuðum rekstrartölur þeirra og kom þá í ljós að árið 2016 nam heildarvelta þess- ara félaga um 75 milljörðum króna á innanlandsmarkaði. Við getum reiknað með að erlend starfsemi þeirra sé jafnstór ef ekki stærri enda eru mörg þessara fyrirtækja að selja þekkingu sína og tækjabún- að á erlendum mörkuðum.“ Deloitte tók einnig saman hversu mörg störf viðskipti sjávarútvegsins eru að skapa, sem og hverjar skatt- tekjur hins opinbera eru. „Við fáum það út að íslenskur sjávarútvegur stóð undir liðlega 1.500 störfum hjá þessum iðnfyrirtækjum á árinu 2016 og að viðskiptin hafi skilað 4,7 millj- örðum króna til hins opinbera sama ár,“ upplýsir Lovísa. Til að setja tölurnar í samhengi bendir Lovísa á að framlag þessara viðskipta til landsframleiðslu Ís- lands sé um 0,8%. „Þá hafa þessar tölur verið á uppleið, og í nýlegri út- tekt sjávarklasans kemur fram að velta tæknifyrirtækja sem tengjast sjávarútvegi hefur aukist um 10-12% á milli ára.“ Rennir stoðum undir útflutning Lovísa segir að þegar rætt er við stjórnendur fyrirtækjanna sem þjónusta sjávarútveginn megi oft greina að það hafi verið tækifærin á heimaslóðum sem renndu stoðunum undir reksturinn og gerðu þessum félögum fært að herja í framhaldinu á erlenda markaði. „Bæði hefur sjávarútvegurinn verið duglegur að fjárfesta í nýjum tækjum og tækni en það munar líka um það hvað sam- starfið við sjávarútvegsfyrirtækin hefur verið náið og hægt að þróa nýjar og betri vélar nánast inni á gólfi hjá fiskvinnslunum. Síðan höf- um við dæmi um fyrirtæki eins og Marel, sem öðluðust mikla þekkingu með smíði og hönnun fiskvinnsluvéla sem þau síðan nýttu til að þróa bún- að fyrir aðrar atvinnugreinar.“ Er nú svo komið að þessi stoð- grein útgerða og fiskvinnslu gæti verið búin að taka fram úr sjávar- útveginum mælt í tekjum. „Útflutn- ingsverðmæti íslensks sjávarfangs er í kringum 200 milljarðar króna,“ segir Lovísa. „Ef við tökum veltu iðnfyrirtækjanna innanlands, 75 milljarða, og gefum okkur að þau séu álíka umsvifamikil erlendis, þá gerir það 150 milljarða samanlagt. Haldi vöxturinn áfram á sömu braut er ljóst hvert stefnir.“ Sjávarútvegurinn stendur þó ekki í stað á meðan: „Aukin tæknivæðing er á sama tíma að skila meiri sjálf- virkni, hagræðingu og gæðum. Það er engin spurning að þeim peningum sem greinin hefur varið í nýjan bún- að hefur verið vel varið og stuðlar að aukinni verðmætasköpun.“ Greiddu 47 millj- arða fyrir vörur og þjónustu Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Kaup sjávarútvegsins á vélum, tækni, umbúðum og veiðarfærum sköpuðu að líkindum 1.500 störf og skiluðu 4,7 milljörðum króna í ríkissjóð. Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir Morgunblaðið/Golli Mynd úr safni tekin í fiskvinnslunni á Suðureyri við Súgandafjörð. Sjávarútvegurinn kaupir vélar, veiðarfæri og aðra íslenska framleiðslu fyrir marga tugi milljarða árlega og hefur notið góðs af með meiri sjálfvirkni og bættri nýtingu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.