Morgunblaðið - 31.05.2018, Page 9

Morgunblaðið - 31.05.2018, Page 9
Eimskipafélagið í tölum 81,4 milljarðar – rekstrartekjur 2017 2,1 milljarður – hagnaður 2017 28,3 milljarðar – eigið fé í lok mars 2018 49,3%– eiginfjárhlutfall í lokmars 2018 23. OKTÓBER 2014 Kauphöllin setur bréf Eimskips á athug- unarlista. 21. MAÍ 2018 Félagið sendir frá sér áréttingu um stöðu rannsóknar Samkeppnis- eftirlitsins, að kröfu Fjármálaeftirlits- ins, og greinir frá því að forstjóri og framkvæmdastjóri al- þjóðasviðs hafi stöðu sakbornings. 26. MAÍ 2016 Eimskip birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs og hækkar af- komuspá fyrir árið. Hlutabréf félags- ins hækkuðu um 12,89% á næstu tveimur dögum í viðskiptum. ÓBER 2014 aksóknari samtali við nblaðið að ngar séu um brot í tengsl- agnalekann. Verð á hlutabréfum í Eimskipafélaginu sl. 12 mánuði 350 300 250 200 150 júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí 2017 2018 30. MAÍ 2018 Dagslokagengi Eimskipafélagsins er 188. Félagið aldrei lægra skráð í Kaup- höll frá skráningu í árslok 2012. 26. MAÍ 2018 Félagið sendir frá sér tilkynningu um að það hafi fengið send gögn um meginsak- arefni þeirrar rann- sóknar sem hófst árið 2013. Lögmenn fari nú yfi r málið. Enginn starfsmaður hafi verið ákærður. 11. MAÍ 2018 Forstjóri og ramkvæmdastjóri þjóðasviðs kallaðir l skýrslutöku og fá kjölfarið stöðu sak- ornings í samráðs- málinu. 17. MAÍ 2018 Félagið gefur út afkomutilkynningu. Í framhjáhlaupi er nefnt að forstjórinn hafi stöðu sakborn- ings. blaðamanni Morgunblaðsins svar við fyrirspurn og þar kom fram að vísbendingar væru um refsi- vert brot þegar kærunni var lekið til Kastljóss. Í frétt Agnesar Bragadóttur, blaðamanns á Morg- unblaðinu, í lok janúar 2015 kom einnig fram að heimildir Morgunblaðsins hermdu að starfs- maður Samkeppniseftirlitsins hefði réttarstöðu grunaðs manns í lekarannsókninni og að m.a. væri verið að rannsaka ákveðin tölvugögn hjá Samkeppniseftirlitinu. Í tengslum við sömu umfjöllun var Páll Gunn- ar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins innt- ur eftir því hvort sá starfsmaður stofnunarinnar sem hefði réttarstöðu grunaðs manns hefði verið sendur í leyfi svaraði hann: „Enginn þeirra sem starfa hjá Samkeppniseftirlitinu núna er með réttarstöðu grunaðs manns.“ Hið loðna orðalag svarsins reyndist komið til af þeirri einföldu ástæðu að hinn grunaði hætti störfum í kjölfar þess að málið kom upp. Ekki hefur fengist stað- fest hvort hann hafi verið rekinn eða hvort hann hafi ákveðið að hætta að eigin frumkvæði. Í frétt í Morgunblaðinu fyrr í þessum mánuði kom fram að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefði hætt rannsókn málsins í byrjun þessa árs. Hins vegar hefði ríkissaksóknari fellt þá ákvörð- un lögreglunnar úr gildi og lagt það fyrir lögregl- una að ljúka henni. „Rannsókn málsins er því hafin á nýjan leik en ég hef í sjálfu sér ekki skýr- ingu á því af hverju rannsóknin dróst á langinn. Þetta lýtur alltaf að umfangi máls og mannafla,“ sagði Hulda Elsa Björgvinsdóttir, sviðsstjóri ákærusviðs LRH af þessu tilefni. Tilkynningar berast seint Eimskipafélagið hefur á ný komist í kastljós fjölmiðla og enn er það í tengslum við þá at- burðarás sem hófst með húsleit Samkeppniseft- irlitsins í september 2013. Nú tengist umfjöllunin hins vegar upplýsingagjöf fyrirtækisins til mark- aðarins vegna rannsóknarinnar. Þannig ráku margir upp stór augu laust fyrir klukkan 10 að kvöldi annars í hvítasunnu. Þar barst í gegnum tilkynningarkerfi Kauphallar Íslands tilkynning frá Eimskipafélaginu undir yfirskriftinni „Ítrek- un á fréttatilkynningu frá 17. maí sl.“. Þar var vísað til afkomutilkynningar félagsins frá fyrr- nefndum degi. Er þar farið í stuttu máli yfir feril þeirrar rannsóknar sem hófst 2013. Þá segir: „Þann 11. maí sl., fóru forstjóri og fram- kvæmdastjóri alþjóðasviðs félagsins til skýrslu- töku hjá Embætti héraðssaksóknara og fengu báðir stöðu sakbornings þann sama dag.“ Í svari við fyrirspurn ViðskiptaMoggans staðfestir Eim- skipafélagið að krafa um birtingu ítrekunarinnar hafi komið frá Fjármálaeftirlitinu mánudaginn 21. maí, þ.e. annan í hvítasunnu. Hvergi hafði það verið tekið upp á opinberum vettvangi, í kjölfar afkomutilkynningarinnar hinn 17. maí, að forstjóri og framkvæmdastjóri Eimskipafélagsins hefðu stöðu sakbornings í samráðsmálinu, eða heldur að þeir hefðu verið boðaðir til skýrslutöku sex dögum áður en af- komutilkynningin barst markaðnum. Virtust upplýsingar um það hafa farið fram hjá öllum. Þegar rýnt er í afkomutilkynninguna frá miðjum maí, sést að í samantekt er hvergi getið um skýrslutökuna eða hina breyttu stöðu for- svarsmanna fyrirtækisins. Þegar farið er í við- hengi með samantektinni, en hún hefur að geyma hina eiginlegu afkomutilkynningu, má finna í kafla á bls. 6 sem ber yfirskriftina „Rann- sókn Samkeppniseftirlitsins“ almennt orðaðan texta um breytta stöðu málsins. Þar segir m.a.: „Starfsmenn hjá Eimskip hafa verið boðaðir til skýrslutöku af embætti héraðssaksóknara og meðal þeirra yfirstjórnendur þ.m.t. forstjóri fé- lagsins, sem hefur stöðu sakbornings.“ Í text- anum er hins vegar hvergi getið um að skýrslu- tökur hafi farið fram yfir forstjóranum og framkvæmdastjóra alþjóðasviðs hinn 11. maí, né heldur að þeir hafi báðir hlotið stöðu sakbornings í kjölfar þess. Í kjölfar ítrekunarinnar birti Morgunblaðið á forsíðu sinni 22. maí frétt þar sem fjallað var um upplýsingarnar sem nú voru komnar fram. Í fréttinni kom einnig fram að tveir lykilstjórn- endur hjá Samskipum hefðu stöðu sakbornings vegna sama máls. Markaðurinn virðist hafa tekið illa í ítrekunina og lækkuðu bréf félagsins um 4,67%. Degi síðar nam lækkunin 0,77%, tveimur dögum síðar 1,82% en í lok þeirrar viku réttu bréfin eilítið úr kútnum eða um rúmt 1%. Sú hækkun gekk hins vegar öll til baka í upphafi þessarar viku. Ekki liggur fyrir á þessum tímapunkti hvort Eimskipafélagið hafi brugðist skyldum sínum sem skráð félag þegar kom að upplýsingagjöf um skýrslutökuna og þá staðreynd að lykil- stjórnendur þess hafa nú stöðu sakbornings í máli sem varðar meint brot gegn samkeppn- islögum. Ómögulegt hefur reynst að fá lögmenn og fræðimenn til þess að tjá sig um málið undir nafni. Hins vegar hefur verið bent á að í lögum um verðbréfaviðskipti teljist innherjaupplýs- ingar vera þær upplýsingar sem „ekki hafa verið gerðar opinberar og varða beint eða óbeint út- gefendur fjármálagerninga, fjármálagerningana sjálfa eða önnur atriði og eru líklegar til að hafa marktæk áhrif á markaðsverð fjármála- gerninganna ef opinberar væru.“ Í ljósi þess að Fjármálaeftirlitið fór fram á að ítrekun yrði send út má telja ólíklegt að stofnunin telji að upplýs- ingaskyldu hafi verið gætt. Engin svör fást um það frá FME en viðmælendur ViðskiptaMogg- ans telja að það hljóti m.a. að koma til skoðunar hvort félagið hafi setið of lengi á upplýsingunum með því að hafa ekki greint frá þeim, þótt með loðnum hætti væri gert, fyrr en 6 dögum eftir að hin breytta staða stjórnendanna var orðin ljós. Eimskipafélagið staðfestir í svari til Við- skiptaMoggans að FME hafi átt í frekari sam- skiptum við félagið vegna birtingarinnar en vísar að öðru leyti á stofnunina sem hafi málið með höndum. ViðskiptaMogginn leitaði einnig viðbragða Eimskipafélagsins við þessu og hvort félagið teldi að upplýsingarnar um ræðir hafi verið lík- legar til þess að hafa marktæk áhrif á verðlagn- ingu bréfa félagsins. Í skriflegu svari frá félaginu segir: „Það hefur legið fyrir allt frá árinu 2014 að þessi rannsókn sé í gangi og óljóst hver nið- urstaða hennar verður. Félagið hefur upplýst um stöðu málsins í sérstökum kafla í síðastliðnum 15 ársfjórðungsuppgjörum með sama hætti frá því að ljóst var að málið hefði verið kært til Héraðs- saksóknara.“ Sekt að fjárhæð 50 milljónir króna staðfest Hinn 18. apríl síðastliðinn hafnaði Héraðs- dómur Reykjavíkur þeirri kröfu Eimskipafélags- ins að felld yrði úr gildi sú ákvörðun FME að leggja á félagið 50 milljóna króna stjórnvaldssekt sem stofnunin lagði á félagið þar sem hún taldi að það hefði ekki sinnt skyldu um birtingu inn- herjaupplýsinga úr rekstri þess svo fljótt sem auðið var. Eimskipafélagið getur enn áfrýjað nið- urstöðu Héraðsdóms til Landsréttar. Málið teng- ist því þegar félagið birti uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðungs ársins 2016. Þar kom fram að EBITDA hefði numið 9,6 milljónum evra og auk- ist um 66,5% í samanburði við fyrsta ársfjórðung fyrra árs. Þá hefði hagnaður aukist um 21,1% miðað við viðmiðunartímabilið árið áður. Ljóst er að þessar upplýsingar lágu fyrir í drögum að uppgjörinu sex dögum áður en það var birt op- inberlega. Telur FME, og héraðsdómur einnig, að félaginu hafi borið að senda frá sér afkomu- viðvörun þegar upplýsingarnar lágu fyrst fyrir. Í kjölfar uppgjörsins hækkuðu bréf félagsins um 12,89% á tveimur dögum. Bendir það til þess að upplýsingarnar í uppgjörinu hafi haft verðmynd- andi áhrif á markaðnum. Morgunblaðið/Ómar ” Hvergi hafði það verið tek- ið upp á opinberum vett- vangi, í kjölfar afkomu- tilkynningarinnar hinn 17. maí, að forstjóri og fram- kvæmdastjóri Eimskipa- félagsins hefðu stöðu sak- bornings í samráðsmálinu, eða heldur að þeir hefðu verið boðaðir til skýrslu- töku sex dögum áður en afkomutilkynningin barst markaðnum. Virtust upp- lýsingar um það hafa farið fram hjá öllum. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018 9FRÉTTASKÝRING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.