Morgunblaðið - 31.05.2018, Side 11

Morgunblaðið - 31.05.2018, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018 11FRÉTTIR TIL LEIGU Skipholt 31 – 105 Reykjavík Skrifstofuhúsnæði 2. og 3. hæð hússins Stærð samtals 1.200 fm. Virðisaukaskattslaust. Ólafur Jóhannsson Rekstrarfræðingur Löggiltur leigumiðlari Löggiltur fasteignasali 534 1023 / 824 6703 olafur@jofur.is Allar nánari upplýsingar veitir: Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í síma 824-6703. Laust strax. Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is Til leigu verslunar- og skrifstofuhúsnæði að Grandagarði 13, 101 Reykjavík, alls um 196,8 fm. Laust í júní 2018. Í boði er langtíma leigusamningur. Húsnæðið býður upp á ýmsa möguleika fyrir verslunar eða veitingastarfsemi. Mikil uppbygging er fyrirhuguð á þessu sv ði á næstu árum. Á jarðhæð er verslunarrými með góðum verslunargluggum út að götu. Bakatil er aðkoma og bílastæði. Gengið er upp á 2. hæð um sameiginlegan sti agang þar sem eru sameiginlegar snyrtingar. Á hæðinni r eldhús, tvær skrifstofur og opið vinnurými. Neðri hæð er 80,3 fm., efri hæð 93,0 fm. og hlutdeild í sameign 23,5 fm. 534 1020 Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is Ólafur S: 824 6703 Magnús S: 861 0511 Sigurður J. S: 534 1026 Helgi Már S: 897 7086 Bergsveinn S: 863 5868 TIL LEIGU Grandagarður 13 – 101 Rvk Gerð: Verslunar- og skrifstofuhúsnæði Stærð: 196,8 m2 Allar nánari upplýsingar veitir: Bergsveinn Ólafsson Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari og rekstrarfræðingur 863 5868 | 534 1028 bergsveinn@jofur.is Af síðum Sú var tíð að svissnesku bankarnir gátu selt ríkasta fólki heims algjöra leynd. Sögur af demöntum sem smyglað var í tannkremstúbum bundu enda á það. Þegar fyrrverandi starfsmaður einka- bankaþjónustu UBS leysti frá skjóðunni árið 2008 hratt það af stað harkalegri herferð gegn skattaundanskotum. Það leiddi af sér mikla uppstokkun sem bitn- aði harkalega á einkabönkum sem þjón- usta fjársterka aðila. Nú tíu árum síðar er áfram þrengt að minni bönkunum á meðan þeir stóru eru farnir að ná vopnum sínum. Í dag er eignastýring það svið bankaþjónustu þar sem horfurnar þykja hvað bestar. Helsta ástæðan er sú að þeir ríku verða æ ríkari og fleiri. Credit Suisse áætlar að á næstu fimm árum, fram til 2022, muni fjáreignir þeirra efnuðu vaxa um 4% á ári á þróuðum mörkuðum, og nærri tvöfalt hraðar á nýmarkaðssvæðum. Í Asíu verður til nýr milljarðamæringur í dollurum talið í viku hverri. Mest má hagnast á því að sinna efnuðustu viðskiptavinunum. Pen- ingar streyma inn í svissnesku bankana, og þá sér í lagi UBS og Credit Suisse. Julius Baer, sem er hreinn einkabanki, hefur líka breitt hratt úr sér í Asíu. Bandarísk eignastýringarfyrirtæki láta líka að sér kveða. Með 5% hlut af eignastýringarmarkaðinum á heimsvísu er Bank of America stærstur, að UBS undanskildum. En bandarískir eignastýr- endur eru almennt ekki jafn arðbærir og þeir svissnesku, því banda- rískir viðskiptavinir eru jafnan tryggari ráðgjöfum sínum en fjár- málastofnunum sem þeir starfa hjá. Þar af leiðandi eiga ráðgjafarnir auðveldara með að krefjast hárra launa, sem nema allt að 60% af tekjum bankanna. Til samanburðar fer minna en helmingur tekna í laun hjá svissnesku bönkunum, samkvæmt rannsókn JPMorgan. Það gæti farið að þrengja að arðseminni á ný ef hægir á hlutabréfa- mörkuðum. Greinin hefur þegar lagað sig að hækkuðum kostnaði. Strangari aðgerðir gegn peningaþvætti hafa gert það dýrara að full- nægja kröfum stjórnvalda. Og það er orðið mun kostnaðarsamara að fjárfesta til að halda í við tæknibreytingar. Allt verður þetta til þess að reisa aðgangshindranir. Stærstu fjár- málastofnanirnar njóta góðs af stærðinni og því hve víða þær starfa. En það eru margir smærri bankar um hituna: 32 stærstu alþjóðlegu fjármálafyrirtækin deila með sér aðeins helmingi markaðarins. Þeir minnstu munu líklega eiga erfitt uppdráttar, sem ætti að ýta undir samþjöppun. Í vaxandi mæli er þetta markaður þar sem sigurveg- ararnir fá allt. Nú er það stærðarhagkvæmnin en ekki leyndin sem skilur á milli feigs og ófeigs. LEX AFP Eignastýring: Góð ráð dýr Framtaksfjárfestingasjóðurinn sem á Pret A Manger hefur samþykkt að selja bresku samlokuveitingakeðjuna fyrir 1,5 milljarða punda. Kaupand- inn er JAB Holdings, þýska fjöl- skyldu-fjárfestingarfélagið sem hef- ur verið að þrengja að Nestlé með kaupum á fyrirtækjum sem tengjast kaffimarkaðnum. Inni í 1,5 milljarða punda kaup- verðinu er yfirtaka á skuldum, að sögn þriggja heimildarmanna sem þekkja til viðskiptanna. Pret A Man- ger staðfesti söluna snemma á þriðjudag og var fyrst greint frá henni í Financial Times. Arðsöm fjárfesting Breski framtakssjóðurinn Bridge- point, eigandi Pret, mun hagnast vel á sölunni því sjóðurinn greiddi 364 milljónir punda fyrir keðjuna fyrir áratug. Bridgepoint hafði skoðað mögu- leikann á að skrá Pret í kauphöll en komst að þeirri niðurstöðu að betra verð fengist með því að selja félagið. Verðmiðinn jafngildir fimmtán- földum tekjum Pret fyrir afskriftir og fjármagnsliði að sögn heimildar- manna. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Pret reki 530 sölustaði um allan heim og sé með 879 milljónir punda í tekjur árlega. JPMorgan veitti Birdgepoint ráðgjöf við söluna. Kaupir í drykkjarfyrirtækjum Kaupin á Pret bætast við langa röð af kaffi- og drykkjatengdum fyrir- tækjakaupum JAB, sem er með höf- uðstöðvar sínar í Lúxemborg og heldur utan um auðævi þýsku Reimann-fjölskyldunnar. Í janúar tilkynnti félagið að samist hefði um yfirtöku á Dr. Pepper Snapple, fimmta stærsta gos- drykkjaframleiðanda heims, fyrir 18,7 milljónir dala í reiðufé og að reksturinn myndi renna saman við kaffiframleiðandann Keurig Green Mountain sem JAB átti fyrir. Kaffi er á meðal þess neysluvarn- ings sem þenst hvað hraðast út um þessar mundir, einkum í Bandaríkj- unum, stærsta kaffimarkaði heims. Góður vöxur Pret A Manger Samtímis því sem hann greindi frá sölunni sagði Clive Schlee, forstjóri Pret, að á árinu 2017 hefði fyrirtækið áorkað því að auka hjá sér söluna án ytri vaxtar (e. like-for-like sales) ní- unda árið í röð. Allir 12.000 starfs- menn Pret munu fá 1.000 punda greiðslu þegar gengið hefur verið frá sölunni. Olivier Goudet, meðeigandi og for- stjóri JAB, segir að fyrirtæki hans muni halda áfram að njóta góðs af kunnáttu þrautreyndra stjórnenda Pret og fjárfesta í nýjum vörum í takt við síbreytilegar óskir neytenda. Liðlega þriggja áratuga saga Fyrsti samlokustaður Pret opnaði í London árið 1986. Síðan þá hefur fyrirtækið breitt úr sér um allan heim og er víða orðið hluti af morg- un- og hádegisverðarvenjum vinn- andi fólks. Árið 2016 námu sölutekjur Pret 776 milljónum punda og hækkuðu um 15% á milli ára, að því er kemur fram í síðasta birta ársreikningi félagsins frá því í apríl 2017. Þar seg- ir að EBITDA hafi aukist um 11% og numið 93,2 milljónum punda. Á þeim tíma voru sölustaðirnir 444 talsins. Bandaríkin eru stærsti markaður keðjunnar utan Evrópu og eru þar starfræktar 92 staðir. Áhöld eru um möguleika keðjunnar til að stækka frekar þar. Pret hefur gengið erfiðlega að ráða í lausar stöður í Bretlandi eftir að kjósendur þar ákváðu að ganga úr ESB. Til dæmis er aðeins einn af hverjum fimmtíu umsækjendum um störf í London frá Bretlandi, og vek- ur það spurningar um hvernig sam- lokubúðirnar verða mannaðar eftir Brexit. Aðeins Nestlé stærra í kaffi JAB er stjórnað af þremur ein- staklingum sem hafa mikla reynslu úr neytendavörugeiranum. Félagið hefur aukið hlut sinn í kaffitengdum félögum og er nú með næststærstu markaðshlutdeildina á eftir sviss- neska félaginu Nestlé. Á undanförnum árum hefur JAB aðallega einbeitt sér að kaffigeir- anum. Félagið hefur m.a. keypt Keu- rig, sem er best þekkt fyrir kaffivélar sínar og kaffihylki, og ýmis smásölu- fyrirtæki á borð við Peet‘s Coffee, Einstein Bros. Bagels, Krispy Kreme og Panera Bread. Félagið á einnig keðjur eins og Stumptown og Intelligentsia Coffee sem höfða til tekjuhærri neytenda. Í kaffieignasafni JAB er m.a. að finna meirihlutaeign í Jacobs Douwe Eg- berts, sem selur úrval evrópskra kaffitegunda, svo sem Senseo og Tassimo. Stækkunartilburðir JAB hafa orð- ið til þess að Nestlé hefur líka ráðist í fyrirtækjakaup. Svissneska samsteypan upplýsti að hún myndi greiða 7,15 milljarða dala til að fá að selja kaffivörur Star- bucks utan kaffihúsakeðjunnar. Í fyrra greiddi Nestlé 700 milljónir dala fyrir meirihlutaeign í lúxus kaffihúsakeðjunni Blue Bottle Coffee. Reiknað er með að lokið verði við söluna á Pret A Manger í sumar. Bridgepoint vildi ekki tjá sig um söl- una og JAB svaraði ekki fyrir- spurnum vegna málsins. Pret A Manger yfirtekið á 1,5 milljarða punda Eftir Javier Espinoza og Arash Massoudi í London Pret A Manger, sem eink- um er þekkt fyrir sam- lokur og kaffi, hefur verið selt JAB Holdings í Lúx- emborg sem er að verða eitt af stærstu fyrirtækj- um heims í sölu á kaffi. AFP JAB hefur keypt Pret A Manger sem er einkum þekkt fyrir samlokur og kaffi, en keðjan rekur 530 staði og árleg sala jafngildir um 124 milljörðum króna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.