Morgunblaðið - 31.05.2018, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018SJÓNARHÓLL
ARNÞÓR
Mannauðurinn er okkar mikilvægasta auðlind“er setning sem æðstu stjórnendur fyr-irtækja segja gjarnan á hátíðarstundum.
Sagt hefur verið að það sem eigendur og æðstu
stjórnendur fyrirtækja vilji bara hlusta á, og skilji
best, séu staðreyndir sem settar eru fram í fjárhags-
legu formi. Að þeir skilji kannski (upp að vissu
marki) að fagleg mannauðsstjórnun skipti máli, en
sá málaflokkur megi bara ekki kosta mikið. Þeir sjái
ekki skýrt að fagleg mannauðsstjórnun skili fjár-
hagslegum ávinningi, því það getur stundum verið
örlítið snúið að setja það fram
í krónum og aurum.
Einnig hefur verið sagt að
það sé minna mál þegar skipt
er um fjármálastjóra en mann-
auðsstjóra, en það er auðvitað
allt önnur og eldfimari um-
ræða sem ekki verður farið í
hér!
En hvað með að fara að
horfa á mannauðinn með álíka
augum og aðrar auðlindir við
stjórnun reksturs? Ekki síst
nú þegar það hversu vel fyrirtæki standa sig í að
laða að og halda í gott starfsfólk getur haft mikil
áhrif á niðurstöður rekstrarreikningsins.
Hér koma nokkrar tillögur sem gagnlegt gæti ver-
ið fyrir æðstu stjórnendur fyrirtækja, fjármálastjóra
og mannauðsstjóra að skoða saman.
Skoðið tölur eins og tekjur, kostnað, EBITDA eða
hagnað (og þá eingöngu af reglubundinni starfsemi),
á hvert stöðugildi í fyrirtækinu. Berið þær saman á
milli tímabila en líka við samkeppnisaðilana. Ef sam-
anburðurinn er fyrirtækinu óhagstæður ætti að
grafa dýpra og leita skýringa. Hvað er það á þínum
vinnustað sem gæti valdið lægri tekjum og hærri
kostnaði á hvert stöðugildi en er hjá samkeppnis-
aðilunum? Hverju þarf að breyta til að bæta niður-
stöðurnar á milli ára eða bæta samanburðinn við
samkeppnisaðilana?
Skoðið launakostnað í hlutfalli af tekjum eða
rekstrarkostnaði og hlutfall launa stjórnenda af
heildarlaunakostnaði og berið þessi hlutföll saman á
milli tímabila og sjáið hvernig þróunin er, og bregð-
ist svo við eins og tilefni er til.
Umbunið þeim stjórnendum sem starfsfólk treyst-
ir, sem bregðast við málum og búa til jákvætt og
heilbrigt starfsumhverfi. Góðir stjórnendur geta
haft mjög mikil áhrif til bætingar rekstrarniður-
staðna, til aukningar sölu, aukinna gæða, bættrar
nýtingar hráefna o.fl. Því skyldi ekki vanmeta góða
stjórnun sem mikilvægan þátt
í rekstrinum.
Samkvæmt reikningsskila-
stöðlum skal bókfæra fjár-
muni sem varið er til þekking-
aröflunar sem kostnað, en
ekki sem fjárfestingu. Alla
jafna eru nýjar auðlindir
skráðar sem fjárfesting, og þá
afskrifaðar á móti á ákveðnum
tíma. Slíkt er ekki gert með
„þekkingu“ jafnvel þótt fjár-
munum sé varið í að afla
hennar og að hún úreldist eða afskrifist á ákveðnum
tíma.
Þess vegna eru fjármunir sem varið er til þjálf-
unar oftast það fyrsta sem skorið er niður þegar
herða þarf að í rekstrinum. Jafnvel þótt árangurs-
ríkara væri að búa sig undir næstu tækifæri.
Hugsa þarf um þekkingaröflun og þjálfun sem
fjárfestingu. Fjárfestingu sem hjálpar fyrirtækjum
að þróast, skapa ný tækifæri, laða að og halda í
hæft fólk.
Af þessum dæmum ættu stjórnendur fyrirtækja
að skoða ýmsa fleti mannauðsstjórnunar í gegnum
gleraugu króna og aura.
Og mannauðsfólk þá með sama hætti að ræða við
aðra stjórnendur um málaflokkinn, til aukins árang-
urs, á þann hátt að það rími við aðra þætti sem
helst er horft á í rekstrinum.
MANNAUÐSMÁL
Herdís Pála Pálsdóttir,
félagsmaður og fyrrverandi formaður
Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi
Að stjórna mannauðinum
eins og fjármálunum
”
Hugsa þarf um þekking-
aröflun og þjálfun sem
fjárfestingu. Fjárfestingu
sem hjálpar fyrirtækjum
að þróast, skapa ný
tækifæri, laða að og
halda í hæft fólk.
FORRITIÐ
Það er í sjálfu sér ósköp auðvelt að
verða snjall og fróður. Það eina sem
þarf er að setjast niður og byrja að
læra. Verst hvað við erum öll önnum
kafin og eigum erfitt með að finna
lausa stund í öllu annríkinu til að
lesa fræðandi bók eða hlusta á fyrir-
lestur á netinu.
SkillHunt (www.skillhunt.co) er
með lausn fyrir fróðleiksfúst fólk í
tímaþröng. Um er að ræða þjónustu
sem sendir notendum tölvpóst einu
sinni á dag og leiðir þá, skref fyrir
skref, í gegnum tiltölulega viðráðan-
legt námsefni. Hvert námskeið
spannar einn mánuð og telur Skill-
Hunt að aðeins 30 tölvupóstar nægi
til að gera notandann nokkuð færan
t.d. í vörustjórnun, vöruhönnun eða
tölfræðigreiningu og mælingum.
Þjónustan er nýfarin í loftið og
námskeiðaframboðið takmarkað, en
á móti kemur að námskeiðin eru
flest ókeypis. Þarf bara að borga
fyrir eitt námskeið þar sem læra má
að smíða iOS-snjallforrit frá grunni
og kostar ekki nema 19 dali.
ai@mbl.is
Að læra nærri
því áreynslulaust