Morgunblaðið - 31.05.2018, Page 13

Morgunblaðið - 31.05.2018, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018 13SJÓNARHÓLL 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri BÓKIN Er ekki skrítið hversu margir vinna störf sem þjóna hér um bil engum tilgangi? Öll þekkjum við einhvern sem hefur, í lengri eða skemmri tíma, fengið borgað fyrir að gera nánast ekkert gagn: skrifa skýrslu sem enginn les eða svara í síma sem aldrei hringir. David Graeber heldur því fram að tilgangslaus störf séu mikil plága í at- vinnulífinu og hefur skrifað um það heila bók: Bullshit Jobs: A Theory. Graeber er mannfræðingur og kennir við ekki ómerkilegri skóla en London School of Economics. Bókina byggir hann á frægri grein sem hann ritaði árið 2013 fyrir tíma- ritið Strike! og vakti svo mikla at- hygli að í framhaldinu var gerð könnun í Bretlandi sem sýndi að 37% svarenda töldu að þau legðu ekki neitt af mörkum fyrir mann- kynið með störfum sínum. Í bókinni skilgreinir Graeber fimm mismunandi gerðir af tilgangs- lausum störfum. Má þar t.d. nefna fólk sem hann kallar „þjóna“, sem hefur það hlutverk að láta yfirmenn sína líta betur út, s.s. móttökuritarinn sem eyðir deginum á Facebook. Lobbíista og almanna- tengslafólk flokkar Graeber sem „ribb- alda“ sem eru aðal- lega ráðnir vegna þess að önnur fyr- irtæki ráða fólk í sambærilegar stöð- ur, og svo eru ein- staklingar eins og „límbandsfólkið“ sem gegnir því hlut- verki að laga galla og gloppur sem ættu helst ekki að fyrirfinnast í skipuriti fyrirtækisins. Skrif Graebers vekja vissulega til umhugsunar. Hann lumar þó ekki á sérstaklega frumlegri lausn á vand- anum og leggur til að nota borg- aralaun til að uppræta tilgangslausu störfin. ai@mbl.is Af hverju öll þessi til- gangslausu störf? Það hefur löngum tíðkast hér á landi að fyr-irtæki, oft á tíðum keppinautar, bjóði sam-eiginlega í verk, vöru eða þjónustu sem hið opinbera býður út á grundvelli laga um opinber innkaup. Þannig eru dæmi um að stórfyrirtæki, t.d. á sviði hönnunar eða vegaframkvæmda, myndi sameiginlegt tilboð í opinberu útboði þrátt fyrir að fyrirtækin gætu augljóslega boðið sjálfstætt í verk- efnið. Fyrir því að fyrirtæki bjóði saman í opin- beru útboði eru margvísleg rök. Þannig geta fyr- irtæki nýtt samlegðaráhrif sem þau byggju annars ekki yfir. Sú hagkvæmni skilar sér síðan í lægra verði til hins opinbera, neytendum til góða. Í 2. mgr. 67. gr. laga um opinber innkaup er að finna heimild fyr- ir sameiginlegum tilboðum sem þessum. Þar segir að fleiri fyr- irtækjum sé heimilt að standa að tilboði sameiginlega enda teljast þau þá bera sameiginlega ábyrgð á efndum samningsins. Rökin fyrir reglunni eru þau að sameiginleg tilboð fyrirtækja geti leitt til hagstæðari nið- urstöðu. Þannig eigi fyrirtæki að geta sameinað krafta sína í þeim tilgangi að tilboðið verði lægra. Það er því ekki skrýtið að fyrirtæki telji sér full- komlega heimilt að ræða við keppinaut sinn og mynda með honum sameiginlegt tilboð fyrir útboð og þar með dreifa upplýsingum um starfsemi hvors fyrirtækis fyrir sig og kostnaðarliði. Málið flækist hins vegar þegar horft er til sam- keppnisréttar. Þannig sagði til að mynda í at- hugasemdum við reglu 2. mgr. 67. gr., þegar regl- an kom fyrst inn í lögin árið 2001, að sameiginlegt boð kynni að fela í sér samráð sem bryti í bága við 10. gr. samkeppnislaga. Úrlausn á því hvort svo sé heyri hins vegar undir samkeppnisyfirvöld. Ákvæði 10. gr. samkeppnislaga er eitt mikilvægasta ákvæði samkeppnislaganna og bannar samninga, samstarf og samskipti á milli keppinauta í sínum víðasta skilningi. Samstarf á milli fyrirtækja á sama mark- aði um að leggja fram sameiginlegt tilboð í útboði er því bannað samkvæmt 10. gr. samkeppnislaga en sé greinin brotin getur því fylgt há sektarákvörðun eins og raun bar vitni í nýlegu máli samkeppnis- yfirvalda vegna samráðs á byggingarvörumarkaði. Það hvernig samspili þessara nokkuð ósamrým- anlegu ákvæða eigi að haga er með öllu óráðið hér á landi. Samkeppnisyfirvöld á Norðurlöndunum hafa síð- astliðin ár hins vegar þurft að taka á því hvernig fara skuli með það þegar keppi- nautar taka sig saman og bjóða sameiginlega í opin- beru útboði. Niðurstöður þeirra verða ekki raktar ít- arlega hér en af þeim má ráða að ef fyrirtæki sem bjóða saman í útboði eru raunverulegir eða mögulegir keppinautar sem hefðu tök á því að bjóða upp á sitt ein- dæmi í útboðinu sem um ræðir þá virðist sem svo að samkeppnisyfirvöld telji að um samráð sé að ræða sem hafi það að markmiði að raska samkeppni. Inn í mat samkeppnisyfirvalda spila þó margir þættir og erfitt er að slá því föstu hvenær fyrirtæki telst vera bært um að bjóða sjálfstætt í útboði eða ekki. Erfitt getur þannig verið fyrir fyrirtæki að ákveða hvenær skuli bjóða sameiginlega í útboði með öðru fyrirtæki og hvenær ekki. Sé röng ákvörðun tekin gæti það kostað fyrirtækið háa sekt. Áður en sam- starf er hafið um að bjóða sameiginlega í opinberu útboði ættu fyrirtæki því að ráðfæra sig við lög- mann. Sameiginleg tilboð í útboðum LÖGFRÆÐI Magnús Ingvar Magnússon, lögmaður á LOCAL lögmönnum. ” Það er því ekki skrýtið að fyrirtæki telji sér full- komlega heimilt að ræða við keppinaut sinn og mynda með honum sameiginlegt til- boð fyrir útboð og þar með dreifa upplýs- ingum um starfsemi hvors fyrirtækis fyrir sig og kostnaðarliði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.