Morgunblaðið - 31.05.2018, Síða 15
Hádegisverðarfundur Félags viðskipta- og hagfræðinga var haldinn
á Nauthóli gær, miðvikudag, undir yfirskriftinni Starfsframi eða
stöðnun? Kjör, umhverfi og verkfæri millistjórnenda.
Þar ræddi Andrés Jónsson almannatengill um vinnumarkaðinn fyrir við-
skipta- og hagfræðinga, starfsframann á tuttugustu og fyrstu öldinni og
leiðir til að gera sig sýnilegri, auk þess sem kjarakönnun FVH var kynnt.
Spurt um starfsframa eða stöðnun
Björn Brynjúlfur Björnsson
var á meðal fundargesta.
Andrés Jónsson hélt erindi
um vinnumarkaðinn fyrir
viðskipta- og hagfræðinga.
Létt var yfir Katrínu
Þyri Magnúsdóttur
og Dögg Hjaltalín á
fundinum.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2018 15FÓLK
Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is
FJÖLPÓSTUR
SEM VIRKAR
*könnun Zenter apríl 2016.
61% landsmanna lesa fjölpóst
70% kvenna lesa fjölpóst
58% neytenda taka eftir tilboðum á
vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst*
Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili
MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR
EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR
Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar
Við erum í hjarta borgarinnar
að Þverholti 13. Komdu við í
kaffisopa eða sendu okkur
línu og óskaðu eftir tilboði í
prentverkið þitt, stórt eða
smátt.
MIÐBORGIN
HÁDEGISVERÐARFUNDUR
Kvika Sigþór Jónsson hefur verið ráðinn til starfa hjá
Kviku Securities Ltd., dótturfélagi Kviku banka í Bretlandi.
Sigþór hefur langa reynslu af fjármálamarkaði og starf-
aði á síðustu árum sem framkvæmdastjóri Íslenskra verð-
bréfa. Áður var hann framkvæmdastjóri Landsbréfa og þar
áður sjóðstjóri og forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga
hjá Stefni.
Sigþór er með MSc.-gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og er nú að
ljúka MBA-námi hjá EADA Business School í Barcelona. Hann mun koma
til liðs við Kviku Securities í ágúst að námi loknu.
Sigþór ráðinn á skrifstofu Kviku í London
Advania Data Centers Elizabeth Sargent hefur verið ráð-
in í nýja stöðu samskiptastjóra. Hún mun stýra upplýsinga-
og samskiptamálum gagnvart erlendum mörkuðum, vinna
með samstarfsaðilum og viðskiptavinum við tæknilega
skjölun, skriftir og úrvinnslu efnis sem snýr að ofur-
tölvutækni og gagnaverum.
Elizabeth starfaði áður við upplýsingamiðlun fyrir Novomatic Lottery
Solutions í Austurríki og sem verkefnastjóri hjá ráðgjafarfyrirtækinu Sa-
saki Associates í Boston í Bandaríkjunum. Hún er með BA-gráðu í sagn-
fræði frá Yale og meistaragráðu í skipulagsfræðum frá Cornell-háskól-
anum. Hún er búsett á Íslandi og hefur lokið BA-námi við Háskóla Íslands,
þar sem hún nam íslensku sem annað mál.
Jóhann Þór Jónsson, sem gegnt hefur starfi forstöðu-
manns rekstrarsviðs og áður fjármálastjóra Advania á Ís-
landi, hefur tekið við starfi forstöðumanns verkefnastofu
og rekstrar. Jóhann Þór er formaður Samtaka gagnavera
og hefur unnið að framgangi greinarinnar hérlendis. Hann
var áður fjármálastjóri Skýrr og Kögunar og gegndi lykil-
hlutverki við sameiningu þeirra félaga sem runnu saman á
árunum 2009-2014 og mynda nú Advania. Jóhann Þór er viðskiptafræð-
ingur frá Háskóla Íslands.
Tveir nýir starfsmenn til Advania Data Centers
VISTASKIPTI
Morgunblaðið/Eggert