Morgunblaðið - 31.05.2018, Side 16

Morgunblaðið - 31.05.2018, Side 16
VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Barátta við „samlokusala“ Keyptu fasteignir á Spáni fyrir milljarð Fór yfir strikið í gleðskap Arion banka Fabrikkan seldi fyrir 723 milljónir FS13 tekið til gjaldþrotaskipta Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Í fyrsta skipti frá stofnun fjarskipta- félagsins Nova fækkar viðskipta- vinum þess í talsímaþjónustu milli tímabila. Fækkunin nemur þó ein- ungis tæplega 0,5%. Þetta má lesa út úr nýrri tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar fyrir árið 2017. Saga Nova, sem stofnað var í maí árið 2006, hefur til þessa verið ein samfelld sigurganga, og viðskipta- vinum fjölgað jafnt og þétt. Félagið býður einnig upp á ljósleiðarateng- ingar og á og rekur eigið 4G/4.5G farsíma- og netkerfi á landsvísu. Nova er þrátt fyrir fækkunina, enn í forystu á markaðnum í talsíma- þjónustu, en áskrifendur félagsins voru 140.812 í lok árs 2017. Í lok fyrri helmings 2017 náði áskrif- endafjöldinn til samanburðar sögu- legu hámarki og var þá 141.471. Til samanburðar fjölgaði áskrif- endum með talsímaþjónustu hjá hin- um stóru félögunum á sama tímabili, Símanum og Vodafone. Áskrifendum Símans fjölgaði þannig úr 131.117 upp í 132.291 í lok árs 2017, en áskrifendafjöldi Vodafone tók stóran kipp og fór úr 108.550 áskrifendum upp í 130.190. Þar er stærsta ástæð- an sú að Vodafone keypti ljósvaka- og fjarskiptaeignir 365 á síðasta ári. Af þessum tölum má sjá að fyr- irtækin þrjú skipta markaðnum nú nokkuð jafnt á milli sín, en minni að- ilar bítast um þau 1,8% sem eftir standa. Áhrif endalauss tals Þeir sem kunnugir eru fjarskipta- markaðnum segja ViðskiptaMogg- anum að ástæðan fyrir því að Nova lækkar nú flugið í talsímaþjónust- unni, sé sú staðreynd að í dag bjóða öll símafélög endalaust farsímatal í sínum þjónustupökkum. Þar með hefði þjónustan „Nova í Nova“, þar sem Nova áskrifendur geta hringt frítt sín á milli, engin áhrif lengur. Morgunblaðið/Ómar Samkeppni á farsímamarkaði er hörð. Þrír aðilar skipta með sér markaðnum. Fyrsta fækkun í talsíma Nova Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Vinsælasta farsímafyrir- tækið á Íslandi hefur lækk- að flugið í fyrsta skipti í kjöl- far þess að öll símafélög bjóða nú upp á endalaus símtöl. Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Það var ekki laust við að ég fengismá hland fyrir hjartað fyrir ut- an líkamsræktarstöð eina nú í vik- unni er ég varð samferða meðrækt- arsveini út á bílaplanið, grafískum hönnuði á stórri auglýsingastofu. Ég ákvað að spyrja hann af rælni þar sem við gengum í átt að bílunum okkar hvort það væri ekki nóg að gera í bransanum, vitandi það að auglýsingastofur eru eins og kanarí- fuglinn í kolanámunni, fyrstar að finna þegar kreppir að. Hönnuðurinn sagði að það væribara nóg að gera, en bætti svo við: „En þetta hefur breyst mikið.“ Ég hváði við. Nú, hvernig hefur þetta breyst? „Hönnun á heilsíðum [í blöð] er búin að vera. En það er allt í lagi, þetta er bara öðruvísi,“ sagði hann. Nú varð ég fyrst verulega óró- legur en ákvað samt að spyrja loka- spurningarinnar – hvernig öðruvísi? „Það eru samfélagsmiðlar. Nú vilja menn bara vídeóauglýsingar fyrir samfélagsmiðlana.“ Fyrir mann sem hefur viðurværisitt af því að skrifa í prentmiðil var þetta skellur. Hver er framtíð dagblaðanna ef gerð heilsíðuauglýs- inga heyrir sögunni til? Á leiðinni aftur í vinnuna ákvaðég að hætta að hafa af þessu áhyggjur. Heimurinn hefur jú alltaf þörf fyrir fréttir, þó svo að miðlarnir taki sífelldum breytingum. Kannski fer prentið og kemur svo bara aftur seinna. Kannski er netið bara bóla. Heilsíðu- blúsÞað er mikið undir í íslensku við-skiptalífi um þessar mundir. Þar ber líklega hæst væntanlega sölu á Arion banka og skráningu á hlutabréfamarkað, sem mun marka þáttaskil í enduruppbyggingu ís- lensks fjármálamarkaðar eftir efna- hagshrunið fyrir áratug. Það er gífurlega mikilvægt að veltakist til í skráningarferli Arion banka. Sú vegferð mun hafa mikið að segja um mögulega sölu ríkis- bankanna tveggja, Íslandsbanka og Landsbanka, og þar með hag allra skattgreiðenda. Ýmislegt bendir þó til þess að tímasetningin hefði getað verið betri. Afkoma Arion banka á fyrsta árs-fjórðungi var ekki meira en bærileg. Hremmingarnar í tengslum við United Silicon eru flestum kunn- ar auk þess sem nokkur umræða hefur orðið um áhættu bankans í tengslum við byggingu lúxushótels á Hörpureit. Hræringar innan Frjálsa lífeyrissjóðsins um þessar mundir valda töluverðri óvissu um liðlega 200 milljarða króna í eignastýringu. Virði Valitor virðist einnig nokkurri óvissu háð og ekki bætir úr skák að hreyfing hefur verið á stjórn- armönnum og stjórnendum Arion banka á viðkvæmum tíma. Vonandi mun þó ekkert af þessuhafa veruleg áhrif á söluna og fjárfestar taka Arion banka opnum örmum þegar þar að kemur. Samtímis hafa sterkir vindar leik-ið um Eimskip. Þótt vigt þess félags í íslensku samfélagi sé minni nú en áður var, líta ýmsir enn til þess sem eins konar mælikvarða á efnahagsástandið á hverjum tíma. Loks má minnast á viðkvæmastöðu flugfélaganna. Gengi Ice- landair Group á hlutabréfamarkaði hefur farið halloka um alllangt skeið. Á sama tíma er lítið vitað um fjár- hagsstöðu hins stóra flugfélagsins, Wow Air, sem óneitanlega hefur vakið tortryggni. Þótt spenna sé í lofti víða í at-vinnulífinu er þó margt sem bendir til þess að undirstöðurnar séu enn sterkar. Vonandi veit það á gott. Víða spenna í lofti Singapore Airlines mun í haust hefja 19 klst. áætlunarflug sitt að nýju frá Singapúr til New York. Lengsta flugið hefst að nýju 1 2 3 4 5 SETTU STARFSFÓLKIÐ Í BESTA SÆTIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.