Morgunblaðið - 25.05.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 25.05.2018, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018 Þ egar kemur að garðinum er alltaf hægt að bæta og gera betur. Nýjar hug- myndir verða til og stund- um fá gamlar hugmyndir til- verurétt aftur. Eftirfarandi eru góðar hug- myndir sem gætu áttu erindi í þinn garð fyrir sumarið í ár. Tómstundir utandyra Það hefur oft verið staðfest að hreint loftið, návist við gróðurinn og litlir skammtar af sól gleðja lík- ama og sáli. Tómstundir fólks eru misjafnar, en af hverju ekki að sinna þeim utandyra? Það eina sem maður þarf að gera er að hugsa um garðinn með slíkar tóm- stundir í huga. Finna rétta staðinn með skjól og sól í. Sem dæmi um skemmtilega hluti til að gera úti er að mála, dansa, gera jóga og fleira þar fram eftir götunum. Það eru margir að velta fyrir sér inniveru barna okkar. Gæti verið að þau geri hlutina bara nákvæmlega eins og við? Með því að nota garðinn betur, verðum við fyrirmyndir að betri og hollari lífsstíl fyrir alla í kringum okkur. Svo ekki sé talað um eigið sálatetur. Útisturtur Útisturtur hafa lengi verið vin- sælar en sjaldan eins mikið og nú. Ef þú ert einn/ein af þeim sem hafa aldrei skilið fólk sem vill sturta sig úti, prófaðu að fara í úti- klefa í laugunum og þá sannast fyrir þér gildi þess að baða sig úti. Það sem er mælt með hér er að búa til skjólvegg þannig að hægt sé að sturta sig nakinn. Eins að hafa hirslur fyrir sjampó og hand- klæði svo auðvelt sé að nota sturtuna á öllum árstímum. Um- stangið þarf ekki að vera mikið, en gildi þess að baða sig úti er varla hægt að setja í orð. Mælt er með að stilla á kalda bunu í lok sturt- unnar til að hámarka ánægju. Með tíð og tíma breytist þol líkamans fyrir kalda vatninu og upplifun og ánægja eykst í línulegum tengslum við fjölda sturta á viku. Hengirúm í garðinn Í dag eru margir að hugleiða eða í bæn reglulega heima. Sumir elska að lesa allan ársins hring, eða taka stutta lúra yfir daginn. Hefurðu prófað slíkt í hengirúmi? Það er ævintýri líkast. Hægt er að fá ýmiskonar hengirúm í versl- unum borgarinnar. Biðjið um þannig útfærslur að hægt sé að taka niður á veturna og verið dug- leg að liggja í hengirúminu og flæða um eigin garð innan um blóm og grasið sem ilma guð- dómlega á sumrin. Munið bara eft- ir sólhlífinni til að brenna ekki húðina. Því tíminn flýgur í góðu hengirúmi. Hirslur í garðinn Í dag er mikið um að fólk nýti skúrinn sinn sem herbergi eða tómstundaherbergi. Eins eru margir að vilja spara sér sporin innandyra og vilja hafa hlutina þar sem þeir eiga heima hverju sinni. Ef þú ert mikið fyrir að vera í garðinum, en langar að auka á tíðni þína þar, er ekkert sniðugra en að setja þá hluti sem þú notar oftast yfir sumartímann í góðar hirslur utandyra. Þannig verður minna mál að koma sér vel fyrir í garðinum og kunnir segja að úti- vera og ánægja aukast til muna. Steyptir pottar og sundlaugar í garðinn Flestir þeir sem hafa fjárfest í útisvæði við húsin sín segja að verðmæti eignarinnar aukist í línu- legum tengslum við útfærslurnar sem þeir fara í. Það hafa ótal margir fundið leiðir til að gera úti- veruna góða hér á landi. Mörg hús eru byggð þannig að það myndast skjól til að sitja úti. Ein helsta kúnstin við að búa hér á landi svo ánægja hljótist af er að finna leiðir til að gera slíkt úti í garði allan ársins hring. Gott dæmi um þetta eru heitir pottar eða sundlaugar í garðinn. Nú er mikið um að fólk geri litlar laugar í garðinum sín- um, sem ýmist er hægt að njóta sín í eða hægt er að skreyta í veislum sem halda á bæði innan- og utandyra. Prófaðu þig áfram. Valmöguleikarnir eru endalausir. Ein fallegasta laug landsins að margra mati er laugin í Laxnesi. Hún er svo sannarlega byggð með framtíðina í huga, innan um nátt- úruna og ferska loftið. Góðar hugmyndir fyrir garðinn Ljósmynd/Söstrene grene Söstrene grene Hillur hjálpa til við að hafa hlutina nálægt án þess að taka of mikið pláss í garðinum. Ljósmynd/Thinkstockphotos Útivera Ef mamma og pabbi elska að leika úti eru meiri líkur á að börnin geri það líka. Ljósmynd/Thinkstockphotos Hamingja Lítil sundlaug í garðinn er gulls ígildi. Ljósmynd/Thinkstockphotos Afslöppun Hengirúm er góð fjárfesting í garðinn. Ljósmynd/Thinkstockphotos Útfærslur Útisturtur eru allskonar. Hér er ein falleg. Ljósmynd/Thinkstockphotos Njóta Að færa tómstundirnar út í garðinn er góð hugmynd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.