Morgunblaðið - 25.05.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2018
Kjarr, 816 Ölfus
Símar 482 1718 & 846 9776
www.kjarr.is // kjarr@islandia.is
úrvali
Tré
og runnar í
Rekstrarland er hluti af Olís
NILFISK VINNUR
VERKIÐ Á
METHRAÐA
Nilfisk fæst í verslun Rekstrarlands, Vatnagörðum 10 og hjá útibúum Olís um land allt.
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17.Nilfisk háþrýstidælur eru til í ýmsum stærðum og styrkleikum jafnt fyrir
heimili sem til iðnaðar- og fyrirtækjanota. Með öflugri háþrýstidælu vinnur
þú verk á svipstundu sem annars tæki mun lengri tíma.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þ
egar kemur að því að leggja
hellur segir Albert Guð-
mundsson að algengustu
mistökin séu að huga ekki
nægilega vel að undirlögninni. „Það
verður yfirleitt að skipta um jarð-
veginn niður á 80 cm dýpi og setja
grús og sand svo að undirlagið sé
frostfrítt. Ef það er stutt niður á
mold þá getur hún þanist út, lyft
hellunum og aflagað stéttina.“
Albert er ráðgjafi og umsjónar-
maður sölu hjá Steypustöðinni og
manna fróðastur þegar kemur að
hellum og hleðslum.
Hann segir það sama gilda um
fráganginn á bak við hleðslusteina.
„Það má ekki láta mold liggja upp
að hlöðnum vegg því hún þenst út
þegar frystir og getur sett vegginn
á hliðina. Það fer eftir stærð veggs-
ins hversu þykkt lag af grús eða
möl þarf að setja á bak við hann, en
ef hlaðinn er 50-60 cm veggur þá
ætti að hafa um 60 cm lag.“
Albert segir líka áríðandi að
sanda hellurnar vel og steypa með-
fram öllum köntum. „Þegar kant-
arnir eru vel steyptir þá aftrar það
hellulögninni frá því að gliðna í
sundur, og góð söndun hjálpar að
koma í veg fyrir að gróður spretti
upp úr fúgunum og helst stéttin þá
falleg lengur. Einnig hefur það
færst í aukana að bera yfir-
borðsefni á hellurnar sem ver yf-
irborðið svo að hellurnar veðrast
síður og heldur líka óhreinindum
frá yfirborðinu.“
Byrja oft á framhliðinni
Að sögn Alberts gengur hellusalan
vel um þessar mundir og virðist
gott efnahagsástand í samfélaginu
hafa orðið til þess að fleiri láta það
eftir sér að helluleggja hjá sér
heimreiðina og notalegan sælureit í
garðinum. „Oft er það framhliðin
sem fólk klárar fyrst svo að fjöl-
skyldumeðlimir séu ekki að bera
sand og óhreinindi inn í húsið. Það
er ekkert sem segir að ekki megi
klára hellulögnina í áföngum og
taka t.d. inngang og plan eitt árið
og svo baklóðina það næsta.“
Greina má tískusveiflur í hellu-
valinu og eru stórar og stílhreinar
hellur vinsælli núna en oft áður. Al-
bert segir samt að alla jafna fari
best á því að velja hellur sem falla
vel að húsinu og umhverfi þess og
velja t.d. rómantískar og gamaldags
hellur með rómantískum og gam-
aldags húsum. „Það er minna um
það í dag að við séum beðin um að
hanna flóknari hellulögn, t.d. með
línum hér og þar eða ferningum
sem marka bílastæðin, og meiri
einfaldleiki í því útliti sem fólk
sækist eftir um þessar mundir. Aft-
ur á móti er allur gangur á því
hvort fólk vill minni hellur eða
stærri, og gamla útlitið eða það
nýja,“ segir hann.
Staður fyrir grillveislur
Þegar Albert er fenginn til að
hanna garða þá segir hann að það
fyrsta sem viðskiptavinirnir biðja
um sé gott svæði til að grilla og
matast. „Fólk vill hafa pláss fyrir
grillið og borð og svo nokkur garð-
húsgögn hvort sem það er á hellu-
lögðu plani eða timburpalli. Lands-
menn langar að hafa stað til að
njóta þessara fáu sólardaga og hafa
það huggulegt í birtunni og hlýj-
unni,“ útskýrir hann. „Svo leggja
margir áherslu á að hafa rými í
garðinum fyrir leiki og t.d. flöt þar
sem hægt er að koma fyrir tram-
pólíni.“
En hversu mikið þarf að leggja
til hliðar til að geta gert fallegan
garð með snoturri hellulögn, beð-
um, palli og öllu tilheyrandi? Albert
segir kostnaðinn geta verið mjög
breytilegan og fari m.a. eftir stærð
garðsins og lögun lóðarinnar. „Ef
garðurinn er stallaður þá þýðir það
viðbótarkostnað, en fyrir gott ein-
býlishús með tiltölulega flatan garð
mætti giska á að það sé um 3-5
milljóna króna fjárfesting að koma
garðinum í gott horf.“
Hellurnar ættu að
falla að húsinu og
umhverfi þess
Ef steypt er meðfram köntunum og hellurnar sandaðar
vandlega þá helst stéttin falleg lengur. Einnig er hægt
að bera á yfirborðsefni sem varnar skemmdum og gerir
það að verkum að óhreinindi loða síður við hellurnar
Mörk Hlaðin grindverk geta fegrað og skapað ákveðið öryggi. Fjölbreytni Finna má hellur sem smellpassa við bæði garð og hús.Þekking Verja þarf veggi gegn þenjandi frosti, rétt eins og hellur.
Forgangur „Oft er það framhliðin sem fólk klárar fyrst til að bera ekki sand og óhreinindi inn í húsið,“ segir Albert.
Að fjárfesta í fallegum garði getur
fegrað heimili og veitt fjölskyld-
unni góðan stað til samveru, en
líka gert fasteignina söluvænlegri
og jafnvel leitt til hærra söluverðs.
Albert segir fasteignasala á einu
máli um að alla jafna gangi betur
að selja heimili ef garðurinn er frá-
genginn og snotur en það sé líka
ákveðin tillitssemi við nágranna og
vegfarendur að a.m.k. loka görð-
unum þar sem landið hallar.
„Hvort sem það er gert með skjól-
vegg eða bara einföldum kant-
steini þá getur þetta þýtt að mold,
möl og grjóthnullungar fara ekki á
milli lóða þar sem er hæðarmunur,
með tilheyrandi sóðaskap.“
Tillitssemi
að „loka“
garðinum